Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.03.2003, Qupperneq 35

Fréttablaðið - 14.03.2003, Qupperneq 35
Rapparinn Eminem hefur ákveð-ið að skrópa á Óskarsverð- launaafhendingunni. Akademían hafði haft miklar áhyggjur af því að pilturinn hagaði sér ekki sem skyldi og hafði tekið lof- orð af honum að hann blótaði ekki við flutn- ing lagsins „Loose Your- self“. Eminem fékk víst upp í háls af öllu veseninu og sagði um- boðsmanni sínum að tilkynna Aka- demíunni að hann ætlaði bara að vera heima hjá sér. Eminem er til- nefndur fyrir lag sitt „Loose Your- self“ og verður því ekki á staðnum til þess að taka við styttunni ef hann vinnur. Enginn óttast þó að CatherineZeta-Jones verði orðljót á Ósk- arsverðlaunahátíðinni en í staðinn óttast menn að hún missi legvatnið. Á há- tíðinni verður hún fjórar vikur frá fæðingu. Hún ætlar þó ekki að láta það stoppa sig í því að mæta. Það sem er kannski merkilegra er að hún ætlar ekki einu sinni að láta það stoppa sig í því að taka lagið á hátíðinni. Blur hefur nú bæst í hóp þeirrasveita sem leika á Hró- arskelduhátíðinni í ár. Sveitin mun einnig halda óauglýsta tónleika á tónleikahátíðinni South by South- west þar sem Singapore Sling og Ensími eru nú staddar. Aðrir sem hafa boða komu sína á Hró- arskeldu í ár eru meðal annars Queens of the Stone Age, Metall- ica, Iron Maiden, Coldplay og Björk. Nýja Blur platan, „Think Tank“ kemur út 5. maí. 36 14. mars 2003 FÖSTUDAGUR LORD OF THE RINGS bi. 12 ára kl. 4 í LÚXUSSPY KIDS 2 kl. 3.45 og 5.50 GANGS OF NEW YORK b.i.16 kl. 10.10 P. DRUNKEN LOVE 3.45, 5.50, 8, 10.30 GULLPLÁNETAN m/ísl.tali 4 THE RING kl. 8 og 10.10 SKÓGARLÍF 2 m/ísl.tali kl. 3.40 TWO WEEKS NOTICE 5.50, 8, 10.20 ADAPTATION kl. 5.50, 8, 10.20 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.20 Sýnd í LÚXUS kl. 8 og 10.20 kl. 6 og 9CATCH ME IF YOU CAN Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20 kl. 6, 8 og 10NÓI ALBINÓI MAN WITHOUT A PASTkl. 6, 8 og 10 NORRÆNIR BÍÓDAGAR Sýnd kl. 5.15, 8 og 10.45 bi. 12 ára Sýnd í lúxus kl. 5.15, 8 og 10.45 Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10 Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.20 b.i.16 THUNDRPANTS kl. 4 og 6 kl. 4DIDDA OG DAUÐI KÖTTURINN Sýnd kl. 6 og 9 Harðakjarnarokksveit inArtimus Pyle er ein þeirrasveita sem berst á móti auknum sljóleika meðal ungs fólks. Öllum virðist sama um allt og enginn þorir að opinbera af- stöðu sína á umdeildum málefn- um. Sveitin notar tónlist sína sem tjáningarform og beintengist þan- nig áhorfendum sínum. Tónleikarnir hér á landi eru þeir fyrstu í þriggja vikna túr um Evrópu til þess að kynna aðra breiðskífu þeirra, „Civil Dead“. „Artimus Pyle var trommu- leikari rokksveitarinnar Lynyrd Skynyrd,“ útskýrir Robert söngv- ari og bassaleikari. Fornafninu stal hann víst eftir guði æsku og sakleysis í grísku goðafræðinni en eftirnafnið var hans eigið. „Hann gaf síðar út tvær eða þrjár plötur undir eigin nafni. Þær eru hræðilegar.“ Í gegnum texta sína losar Ro- bert það hugarangur sem þreytir herðar hans hverju sinni. Hvort sem það eru vandamál vina, lygar eða ákvarðanir Bush Bandaríkja- forseta. Í einu lagi nýju plötunnar bregður setningunni „This Bush infests like a weed“ meðal annars fyrir. „Ég held að við séum nú ekkert sérstaklega pólitískir. Þetta eru því persónulegir hlutir frekar en pólitískir. Lagið um George Bush er samið rétt eftir 11. september. Það hafa hræðilegir hlutir gerst um allan heim og loksins gerðust þeir líka í Bandaríkjunum. Ríkis- stjórnin notaði árásina sem ástæðu til þess að leyfa sér að gera það sem heni sýnist. Mjög undarleg lög voru samþykkt strax eftir þetta. Til dæmis er bóka- söfnum núna skylt að gefa ríkis- stjórninni skýrslu um hvaða bæk- ur einstaklingar eru að lesa. Þetta á að vera frjálsasta þjóðfélag heims, en það er bara bull.“ Liðsmenn Artimus Pyle lifa eftir pönkhefðinni og vilja helst gera allt sjálfir. Þegar þeir ferð- ast út fyrir Bandaríkin verða þeir þó að halla sér upp að öðrum. Það virðist ekki vera mikið mál að finna áhugasamt og vinsamlegt fólk hér og þar um heimsbyggð- ina. „Pönkrokkið er gífurlegt net. Fyrir sex mánuðum þekktum við ekkert til Íslands. Í gær komu gæjar til þess að sækja okkur á flugvöllinn og þeir leyfa okkur að gista heima hjá sér. Fólk stendur saman í þessu,“ segir Robert og felur öxina betur í herfrakkanum sínum. Artimus Pyle leika í Undir- heimum FB í kvöld ásamt Snafu og I Adapt. Á morgun verða þeir á GrandRokk ásamt Innvortis og Lunchbox. biggi@frettabladid.is CHICAGO bi. 12 ára kl. 8 Fréttiraf fólki Hávært hugarangur Í kvöld og á morgun heldur bandaríska harðkjarnarokksveitin Artimus Pyle tónleika hér á landi. Liðsmenn sveitarinnar lifa eftir eigin höfði og hika meðal annars ekki við að skjóta á Bush Bandaríkjaforseta í textum sínum. GERI HALLIWELL Hefur lifað skírlífi síðasta mánuðinn, býður sig einhver fram? Geri Halliwell: Átti stutt lesbíu- ævintýri FÓLK Fyrrum kryddstúlkan Geri Halliwell kom hlustendum útvarps- þáttar Howard Stern í opna skjöldu þegar hún viðurkenndi að hafa átt í stuttu lesbísku ástarævintýri. Hún vildi ekki segja hvenær eða með hverri en fullyrti að þetta hefði gerst milli þess sem hún var 16 og 30 ára gömul. „Ég hef aldrei sagt neinum frá þessu áður,“ sagði hún í viðtalinu. „Ég veit að karlmönnum finnst þetta spennandi. Þetta var bara til- raunastarfsemi hjá mér - ég var svolítið drukkin þegar þetta gerð- ist. Ég held að stelpan hafi ekki verið lesbía og ég áttaði mig á því snemma að ég væri það ekki held- ur.“ ■ ■ FÓLK ■ TÓNLIST Kringlukast í DUKA „Anna“ 12 manna kaffistell áður 32.040 nú 14.900 Heimsendingar og sótt! A f g r e i ð s l u t í m i : 1 1 - 2 4 v i r k a d a g a o g 1 1 - 0 3 u m h e l g a r Grensásvegur 12 533 2200 SPRENGITILBOÐ! 12“ pizza m/3 áleggstegundum 690 kr. 16“ pizza m/3 áleggstegundum 990 kr. 18“ pizza m/3 áleggstegundum 1.190 kr. EF SÓTT EF SÓTT EF SÓTT gildir 28. feb - 9. mars þegar sótt er

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.