Fréttablaðið - 14.03.2003, Page 38
39FÖSTUDAGUR 14. mars 2003
KARATE „Þegar ég var lítill blund-
uðu í mér draumar um sjálfan mig
sem ofurhetju. Þegar þeir voru
um það bil að eldast af mér fann
ég fyrir óþoli í skrokknum út af
hreyfingarleysi. Handan við horn-
ið í New Jersey þar sem ég bjó á
háskólaárunum var karateklúbb-
ur og þaðan bárust ægileg öskur.
Ég var dauðhræddur við þetta
fyrst, en smám saman varð krafa
líkamans svo sterk að ég gekk í
klúbbinn,“ segir Haukur Ingi Jón-
asson prestur og sálgreinir, og
áhugamaður um karate. „Þarna
komst ég í hendurnar á ótrúlegum
snillingum sem tóku mig mis-
kunnarlaust í gegn.“
Haukur segist ekki vera mjög
góður í karate, enda sé það ekki
aðalatriðið. Hann hefur ekki verið
nógu duglegur við að mæta á
karateæfingar hjá Þórshamri
undanfarið, sökum erils, og það er
ekki laust við að hann sé farinn að
sakna þess að öskra úr sér þindina
á karateæfingu. „Karate er ekki
bara mjög góð hreyfing,“ segir
Haukur, „því þetta er líka mjög
góð þerapía. Einbeitingin við lest-
ur bóka í háskólanáminu, til dæm-
is, snarbatnaði eftir að ég fór að
stunda karate. Maður hvílist líka
betur og er ánægðari með sjálfan
sig. Þetta er bara eins og í kristin-
dómnum, þegar Kristur segir að
maður eigi að lifa lífi sínu í
gnægð. Karate hjálpar manni að
lifa lífi sínu til fullnustu, að full-
nýta möguleika sína.“
Á Íslandi eru nokkur karatefé-
lög. Nánari upplýsingar má finna
á eftirfarandi slóðum:
www.thorshamar.is,
www.ia.is/karate,
www.breidablik.is/karate,
www.kdh.is,
www.toto.is/felog/kfr.
BLAÐBURÐUR „Það var hringt í mig
á miðvikudaginn og mér sögð
þessi tíðindi. Þetta kom mér
mjög ánægjulega á óvart. Ég hef
aldrei unnið í neinu slíku áður.
Ég hef reyndar prufað að vera á
snjóbretti en átti ekki neitt fyrir.
Nú ætla ég að fara að stunda
þetta reglulega,“ segir Marteinn
Áki Ellertsson sem alltaf er kall-
aður Matti. Hann var kjörinn
blaðberi mánaðarins af dreifing-
ardeild Fréttablaðsins og hlaut
að launum glæsilegt snjóbretti
og bindingar frá Everest-búð-
inni í Skeifunni. Ætlunin er að
tilnefna blaðbera mánaðarins
reglulega og að verðlaunin verði
vegleg. Að sögn Hildar Sifjar
Lárusdóttur hjá Fréttablaðinu er
Matti fyrirmynd annarra blað-
bera. Hann hefur starfað lengi
hjá Fréttablaðinu, aldrei nokkru
sinni hefur verið kvartað undan
honum né hann sjálfur hringt og
kvartað.
Matti býr á Álftanesinu og ber
út í Vesturtúni í Bessastaðahreppi.
Foreldrar hans eru Ellert Gissur-
arson smiður og Selma Björk Pet-
ersen bókhaldari og eldri systir
hans Selma Björk er nú við nám í
Tékklandi. Matti lætur vel af bú-
setu á Álftanesinu og þó félagslíf-
ið sé ekki mikið sé ævinlega hægt
að finna sér eitthvað að gera.
Hann er í 10. bekk í Garðaskóla en
eftir 7. bekk eru krakkarnir á
Álftanesi sendir þangað. „Það er
fínt að bera út Fréttablaðið, góð
aukavinna og peningarnir koma
sér vel. Blaðburður hófst hjá mér
þegar blaðið byrjaði og ég hef
aldrei lent í neinum vandræðum í
tengslum við slæma færð eða ann-
að slíkt.“ ■
DIANA ROSS
Hér sést Díana Ross flytja lagið „God Bless
America“ á minningartónleikum fyrir fórn-
arlömb hryðjuverkanna 11. september
sem haldnir voru tíu dögum eftir atburð-
inn. Á sunnudaginn síðasta lenti hún aftur
í vandræðum þegar lögreglan stöðvaði
hana og benti henni á að bíllinn ætti
löngu að vera farinn í skoðun. Á nýársdag
var hún handtekinn fyrir ölvun undir stýri.
JPV-Útgáfa hefur sent frá sérmetsölubækurnar Umkomu-
lausi drengurinn eftir Dave Pelz-
er og Leiðin til lífshamingju eftir
Dalai Lama í kiljum. Umkomu-
lausi drengurinn er sjálfstætt
framhald metsölubókarinnar
Hann var kallaður „þetta“ sem
kom út á síðasta ári í kilju. Dalai
Lama þarf sjálfsagt ekki að
kynna en í Leiðinni til lífsham-
ingju greinir hann frá því hvern-
ig hann öðlaðist sálarró og vinnur
að innri friði og segir frá því
hvernig hægt er að sigrast á
þunglyndi, kvíða, reiði, afbrýði
eða bara hversdagslegri geð-
vonsku. Hann ræðir um mannleg
samskipti, heilbrigði, fjölskyldu
og vinnu og sýnir fram á að innri
friður er öflugasta vopnið í bar-
áttunni við dagleg vandamál.
Bókin kom fyrst út í innbundinni
útgáfu árið 2000 og seldist upp á
svipstundu og hefur verið ófáan-
leg þar til núna að hún kemur út í
kiljubroti.
KARATEPRESTUR
Haukur Ingi Jónasson prestur og sál-
greinir hefur haft áhuga á karate síðan
hann lærði í Bandaríkjunum. Hann segir
karate skerpa einbeitinguna og hafa
mörg önnur góð áhrif á sálarlífið.
Áhugamálið:
Karate er góð þerapía
FYRIRMYNDAR BLAÐBERI:
Silja Sif Smáradóttir afhendir fyrir hönd Fréttablaðsins Marteini Áka verðlaun en hann var
kjörinn blaðberi mánaðarins.
Blaðberi mánaðarins:
Fínt að bera út
Fréttablaðið
■ Nýjar bækur