Fréttablaðið - 14.03.2003, Side 39

Fréttablaðið - 14.03.2003, Side 39
40 14. mars 2003 FÖSTUDAGUR MADNESS Söngleikurinn „Our House“ sem byggður er utan um lög Madness vann nýlega verð- laun sem „besti nýi söngleikurinn“. Söngvari Madness: Leikur í eigin söngleik LEIKHÚS Söngvarinn Suggs, sem skaffaði bros á andlit margra á ní- undaáratugnum ásamt sveit sinni Madness, er á leiðinni upp á leik- svið í London. Söngleikurinn „Our House“ sem samin var utan um vinsæl- ustu lög sveitarinnar hefur notið mikilla vinsælda í London síðustu ár og meðal annars unnið til verð- launa. Allir liðsmenn sveitarinnar lögðu hönd á plóginn til að koma söngleiknum á fjalirnar. Nú ætlar Suggs söngvari að taka að sér hlutverk „Joe“. Hann fyrsta sýn- ing verður 17. mars. ■ Tölvuleikja- fíklar í Paradís Skjálfti 1 - 2003 er um helgina en þá mæta á sjötta hundrað manns með tölvurnar sínar í íþróttahús HK og keppa sín á milli í tölvuleikjum. TÖLVULEIKIR „Við eigum von á eitt- hvað á sjötta hundrað manns sem keppa í átta greinum. Aðallega eru þetta leikirnir Quake og Half- live þar sem Counter-Strike er mest áberandi,“ segir Árni Rúnar. Nú ríkir gríðarleg eftirvænt- ing hjá mörgum unglingnum því Tölvuleikjamót Símans Internet, svokallaður Skjálfti, verður hald- ið í íþróttahúsi HK við Skálaheiði í Kópavogi um helgina. Þangað rogast menn með tölvurnar og keppa sína á milli, einkum í liða- keppni en einnig einstak- lingskeppni. Skjálfti er það sem heitir stærsta Lan landsins en Lan er nafn yfir atburð þar sem menn koma og tengja saman tölvur. Leikirnir sem keppt er í eru Net- leikir en þegar menn koma saman er engin hætta á að nettengingin hafi áhrif á leikinn. Skjálfti er þetta meira í ætt við hörkuí- þróttaatburð en einskæra afþrey- ingu. Þeim sem ekki til þekkja hætt- ir til að vanmeta þennan atburð og það sem þarna er lagt stund á. Liðin sem þarna takast á hafa æft von úr viti og þeir sem hafa sigur þurfa að vera vel þjálfaðir í leikn- um sem slíkum og samhæfingin þarf að vera með allra besta móti. „Þetta er 19. Skjálftinn,“ segir Árni Rúnar sem hefur með hönd- um yfirstjórn Skjálfta en umsjón- armennirnir ganga undir nafninu p1mpar og er Árni Rúnar þar með yfir-P1mp. „Mótin hafa stækkað og í dag eru 550-600 keppendur sem mæta fjórum sinnum á ári.“ Aldursdreifing þátttakenda er mikil en óneitanlega eru ungling- ar mest áberandi. Yfir-p1mpinn segist ekki hafa leyfi til að ræða hvernig Skjálfti kemur út fjárhagslega. Þátttöku- gjald er 3.500 en fyrir þá sem eru í leikjaáskrift Símans er það 2.500. Lauslega áætlað má segja að tekjur séu um og yfir ein og hálf milljón. Á móti kemur að kostnaður er talsverður, tækni- búnaður og hús kostar sitt auk starfsmanna - sem reyndar eru flestir hverjir í sjálfboðavinnu að sögn Árna Rúnars. jakob@frettabladid.is FERÐIR Um næstu mánaðamót verður boðið á ný upp á ferðir um Njáluslóðir með tilheyrandi skemmtidagskrá um kvöldið á vegum Njálusetursins á Hvols- velli. „Við förum alltaf í gang með hækkandi sól,“ segir Arthúr Björgvin Bollason, forstöðumað- ur Njálusetursins. „Við verðum vikulega með þessa Njáludag- skrá alla laugardaga fram í júlí.“ Skipulagðar eru dagsferðir fyrir hópa austur í Fljótshlíð þar sem fólk fær bæði fróðleik um Njálu og skemmtun í bland. „Fólk kemur hingað og fer í ferð um svæðið með leiðsögn um Njálustaðina. Síðan er haldið inn á Njálusafnið okkar, einnig með leiðsögn. Loks er kvöldverður í skála þar sem söngvarar flytja brot úr söngleiknum eftir Jón Laxdal, sem við höfum ferðast með út um heim.“ Þessar dagsferðir eru einkum ætlaðar Íslendingum. Þegar líða tekur á sumar verður svo söng- leikurinn sýndur í heild sinni, og er sú sýning meira miðuð við er- lenda ferðamenn. ■ Dagsferðir á Njáluslóðir: Fróðleikur í bland við skemmtun Dýralíf RISAVAXINN OG ÓMÓTSTÆÐILEGUR Risavaxni pandabjörninn Gao Gao, sem var kynntur fyrir fjölmiðlum síðastliðinn þriðjudag, lét sér fátt um athyglina finn- ast og einbeitti sér að bambusnum sín- um sem hann át með bestu lyst. Gao Gao fæddist í Kína, en býr í dýragarðin- um í San Diego þar sem hann verður til sýnis almenningi frá og með deginum í dag. Hann er þriðji pandabjörninn sem garðurinn eignast. Á NJÁLUSLÓÐUM Ferðalög um Njáluslóðir geta verið mikið ævintýri. ALSÆLIR Á SKJÁLFTA Tilkomumikil sjón er að sjá þegar ljósin eru dregin niður í íþróttahúsinu og grárri skímu frá hundruðum tölvuskjáa slær á andlit spenntra keppenda. ÁRNI RÚNAR Hefur yfirumsjón með stærsta tölvuleikja- móti landsins og gegnir því nafngiftinni yfir-p1mp. Félagsvist. Hin sívinsæla Framsóknarvist verður spil- uð í sal Framsóknarfélags Mosfellsbæjar föstudagskvöldið 14.mars að Háholti 14 2. hæð. Fyrsta gjöf kl. 20.30. Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra stjórnar vistinni að þessu sinni. Glæsi- legir vinningar, léttar veitingar og allir velkomnir. ath. einnig verður spilað föstudagskvöldið 21.mars á sama stað á sama tíma. Hugrækt og Feng Shui Samspil hugar og umhverfis Leið til hamingju, árangurs og velmegunar Níu vikna námskeið hefst mánudaginn 24. mars 2003 kl. 17.30. Heimavinna. Leiðbeinandi: Jóhanna Kristín Tómasdóttir Skráning og nánari upplýsingar hjá Gestamóttökunni ehf. Símar: 551.1730 og 692.1730. Netfang: gestamottakan@yourhost.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.