Fréttablaðið - 14.03.2003, Síða 43
TÍSKA Það gekk eftir sem flestir
bjuggust við að sýning breska
fatahönnuðarins John Galliano í
París á dögunum koma á óvart.
Enda er hann þekktur fyrir að
daðra við ímyndunaraflið í hönn-
un sinni í stað þess að eltast við
að búa til föt sem seljast í bíl-
förmum.
Í þetta skiptið notaði hann
ímynd Hollywood leikkvenna
frá fimmta og sjötta áratugnum
sem innblástur. Næst ýkti hann
allt sem hægt er að ýkja í þeirra
fari og bauð áhorfendum upp á
heljarinnar sýningu við undir-
leik gamalla djassslagara.
Nú þegar seinni hluti tísku-
vikunnar er hafinn keppast er-
lendir fatahönnuðir sem
starfa í borginni um athyglis-
leifarnar. Tveir japanskir hönn-
uðir, Junko Shimada og Hiroaki
Ohya, sýndu afurðir sínar á
þriðjudag og miðvikudag.
Kóreski hönnuðurinn með
skemmtilega nafnið Li Sang
Bong hélt sýningu sína á mið-
vikudag.
Talað var um að Texasbúinn
Tom Ford sem hannar nú fyrir
Yves Saint Laurent væri jafnvel
of franskur. Hann er greinilega að
reyna að fóta sig í Frakklandi, og
leitaði full mikið út fyrir uppruna
sinn að mati gagnrýnenda. ■
44 14. mars 2003 FÖSTUDAGUR
THE EDGE
Þessi mynd af The Edge, gítarleikara U2,
var tekinn þegar hann þakkaði rokksveit-
inni The Clash fyrir innblásturinn í gegnum
árin. Sveitin var innlimuð inn í frægðarhöll
rokksins síðastliðinn mánudag.
Tónlist
FÓLK Læknar lamaða leikarans og
ofurmannsins Christopher Reeve
hafa grætt raftæki í þind hans
sem gerir honum kleift að anda án
aðstoðar öndunarvéla. Læknar
hans segja aðgerðina hafa heppn-
ast vel og að útlitið sé bjart.
Reeve, sem nú er fimmtugur,
lamaðist fyrir átta árum eftir að
hann datt af hestbaki og hálsbraut
sig. Hann hefur alla tíð verið von-
góður um bata og ætlar að koma
fram á sérstökum blaðamanna
fundi til þess að ræða bata sinn á
síðustu mánuðum.
Reeve er þriðji einstaklingur-
inn sem fer í slíka aðgerð en hún
byggist á því að litlu hylki er kom-
ið fyrir utan á líkama hans. Frá
því eru tengdir vírar inn í þind
hans. Hylkið sendir frá sér raf-
eindir tólf sinnum á hverri mín-
útu. Við það spennist þindin og
Reeve andar án þess að vera
tengdur stórri öndunarvél.
Nú þegar getur leikarinn and-
að án aðstoðar stórra tækja.
Læknar segja að þetta geri leikar-
anum einnig kleift að tala skýrar í
framtíðinni.
CHRISTOPHER REEVE
Hafði sett sér það markmið að ganga
fyrir fimmtugsafmælið sitt. Það tókst
reyndar ekki en bati hans hefur engu að
síður verið stórkostlegur.
Christopher Reeve:
Andar sjálfur
THE BACHELOR
Nýju þættirnir um ríku og fátæku pipar-
sveinana verða í anda þáttanna vinsælu
The Bachelor og Joe Millionaire.
Nýir raunveruleikaþættir:
Ríkur og fá-
tækur pipar-
sveinn
SJÓNVARP Sjónvarpsstöðin ABC
mun á næstunni hefja framleiðslu
á nýjum raunveruleikaþáttum
sem kallast „Rich Guy, Poor
Guy.“ Þættirnir, sem verða sjö
talsins, fjalla um tvo piparsveina
sem verða látnir velja úr hópi
fagurra kvenna.
Hið óvænta er að annar þeirra
er forríkur en hinn bláfátækur.
Hvorki konurnar sem taka þátt né
sjónvarpsáhorfendur fá að vita
hvor er hvað. Hvernig pipar-
sveinarnir velja síðan stúlkurnar
hefur ekki verið látið uppi.
Sýningar á þáttunum hefjast í
sumar ef allt gengur að óskum. ■
Sambíóin og Háskólabíó:
Miðverð
lækkar um
6,25%
KVIKMYNDIR Miðaverð í Sambíóunum
og Háskólabíói lækkar í dag úr 800
krónum í 750, eða um 6,25%.
Í fréttatilkynningu sem bíóin
sendu frá sér í gær er tekið fram að
þetta sé mögulegt þar sem bíóin
hafi náð fram hagstæðari innkaup-
um og náð að lækka ýmsan kostnað
við reksturinn. Fallandi gengi
dollarans hefur einnig gert það
hagstæðara að versla við banda-
rísku kvikmyndaverin.
Í tilkynningunni kom einnig
fram að bíóin ætluðu sér að halda
áfram að vera með skemmtilegar
uppákomur og hin ýmsu tilboð. ■
Tískuvikan í París:
Óður til
ímyndun-
araflsins
JOHN GALLIANO
Breski snillingurinn John Galliano kom, sá
og sigraði með litríkri sýningu sinni á
sunnudaginn var. Hérna sjáum við hvernig
hann ýkti allt í fari Hollywoodtískunnar frá
fimmta áratugnum sem hægt var. Meira
að segja fegurðarbletturinn yfir vörinni var
óvenju stór.
TOM FORD
Texasbúinn Tom
Ford sýndi fyrstu
línuna sem hann
hannaði fyrir Yves
Saint Laurent
Rive á mánudag-
inn síðasta. Hann
þótti leita of mik-
ið í franskan upp-
runa, í stað þess
að elta sinn eigin.
Junko Shimada
Sitthvað bendir til að japanski
fatahönnuðurinn Junko Shimada
sé uppalinn á níunda áratugnum
þegar blásið hár og skærir litir
réðu ríkjum. Þessi hefði sómt sér
vel í myndbandi Duran Duran fyr-
ir um 17 árum.
LIE SANG BONG
Kóreski fatahönnuðurinn Lie Sang Bong
sýndi föt sín í París á miðvikudag og þótti
standa sig í stykkinu.
HIROAKI OHYA
Japanski hönnuður-
inn Hiroaki Ohya
leitaði til indíána,
frumbyggja Norður-
Ameríku, eftir inn-
blæstri. Davíðsstjarn-
an prýddi svo vinstri
kinn fyrirsætunnar af
einhverjum ástæð-
um.
Leikfélag
Mosfellssveitar
REVÍA
í Bæjarleikhúsinu
við Þverholt
föstudag. kl. 20
laugardag kl. 20
aukasýning laugardag kl. 23
Það sem er að gerast bak við
tjöldin í bæjarfélaginu.
Hverjir ráða? Kusum við rétt eða
eigum við að breyta þessu næst
eða þarnæst...
Fáar sýningar
Sími 566 7788
Kíktu á www.leiklist.is