Fréttablaðið - 14.03.2003, Blaðsíða 45
Með súrmjólkinni 46 14. mars 2003 FÖSTUDAGUR
■ Fréttir af fólki
Bíður eftir þyrlunni
Á þessum degi fyrir einu ári
skreið Helga Vala Helgadóttir
leikkona yfir áratugsmúrinn óg-
urlega þegar hún fagnaði þrjátíu
ára afmæli sínu. Afmælisdagur-
inn í dag verður líklegast öllu ró-
legri því eiginmaður hennar,
Grímur Atlason, kom henni á
óvart í fyrra með fjögurra daga
hátíðarhöldum.
„Ég get ekki beðið eftir því að
verða fertug,“ segir Helga Vala og
ljómar af endurminningunni frá
fjörinu í fyrra. Afmælisdagurinn í
ár gæti þó orðið eftirminnilegur.
Grímur var til dæmis búinn að
panta handa henni óvænta klipp-
ingu og hafði hárgreiðslumaður
hendur í hári hennar á meðan hún
talaði við blaðamann.
Á mánudaginn fór Helga Vala
með dóttur sinni til Bessastaða
þar sem hún tók við verðlaunum
fyrir að hafa hafnað í öðru sæti
smásagnakeppni Æskunnar. „Þar
bað hún forsetann um að skrifa
ekki undir lögin um Kárahnjúka.
Hún spurði hann hvort hann
gerði sér grein fyrir því að allt
„þetta lið“ á þingi væri milli
fimmtugs og sextugs og ætti því
stutt eftir. Hún ákvað að vaða í
hann og ég hljóp í felur. Hann
sagðist ætla að hugsa málið.“
Afmælisdagurinn er nokkuð
óákveðinn en Helga á sér þó
draum um góðan dag. „Ég myndi
vilja sofa alla nóttina. Það hefur
ekki gerst lengi þar sem ég á
fimm mánaða gamlan strák. Svo
myndi ég vakna og fá unaðslegan
morgunmat með góðu kaffi frá
Kaffitári í rúmið. Svo færi ég í
sund og myndi stoppa við í Ing-
ólfsstræti 5, þar sem kosninga-
skrifstofa Vinstri grænna er. Eft-
ir það færi ég út að borða um
kvöldið. Eftir matinn myndi svo
bíða mín þyrla fyrir utan veiting-
astaðinn sem myndi fljúga með
mig og alla fjölskylduna í sólina.“
Nokkuð framkvæmalegt flest.
Eða er það ekki, Grímur? ■
HELGA VALA
Fór með dóttur sinni á Bessastaði á mánu-
dag þar sem hún tók á móti öðrum verð-
launum í smásögukeppni æskunnar.
Afmæli
■ Helga Vala Helgadóttir
leikkona á afmæli í dag en á
ekki von á að dagurinn toppi
þrítugsafmælið í fyrra.
Leiðrétting
■ Að gefnu tilefni skal tekið fram að
þó Guðni Bergsson hafi verið valinn
í landsliðið gildir það sama ekki um
Ellert B. Schram. Hann verður áfram
í Samfylkingunni þó hann sé í Sjálf-
stæðisflokknum.
Bohem-strip
Helgarpartý, haltu þitt eigið
partý á Bóhem - fáðu
súper-strip frítt
Grensásvegi 7 • Sími: 517 3540
Opið öll kvöld frá 21-01.00 • Fös. og lau. frá 21-05.30
Tilvalið fyrir hópa. Kannið VIP - stofuna.
Við höfum áhuga á því að kaupa lítil
og meðalstór ræstingafyrirtæki.
Stök verkefni koma einnig til greina.
Upplýsingar í síma 824 1230
Starfsmenn RÚV eru margirhverjir orðnir heldur ruglaðir í
ríminu í tengslum við þráláta um-
ræðu um hina bláu hönd sem á að
halda um stjórnartauma stofnunar-
innar. Til dæmis
heldur Sverrir Her-
mannsson, fráfarandi
formaður Frjálslynda
flokksins, því fram
við hvern sem heyra
vill að Hannes Hólm-
steinn Gissurarson ráði þar öllu
sem hann vill. Þegar svo nýverið
voru hengdar upp ýmsar portrett-
myndir af Davíð Oddssyni á veggi
í húsnæði Ríkissjónvarpsins við
Efstaleiti með þeim orðum að þetta
væri „skipun að ofan“ urðu ótrú-
lega margir til að trúa því. Raunin
mun hins vegar sú að „málverka-
sýningin“ tengist gerð næsta þátt-
ar Spaugstofunnar.
Sigurður Einarsson, fyrrumforstjóri og núverandi stjórn-
arformaður hjá Kaupþingi hf.,
hefur verið talsvert í fréttum
vegna veglegrar bónusgreiðslu í
hans vasa uppá 70 milljónir. Þá
hafa Sigurður og félagar hans hjá
Kaupþingi einnig vakið athygli
fyrir það að senda teppi til þeirra
sem hafa greitt í séreignarsjóði í
tengslum við lífeyrissparnað.
Neikvæð ávöxtun hefur verið á
sjóðnum og teppin kannski ekki
verið sá plástur á sár skjólstæð-
inga Kaupþings og vænst var.
Lesandi Fréttablaðsins hafði sam-
band og benti á þá raunalegu
staðreynd að hann og kona hans
hefðu greitt hvort inn á sinn sér-
eignarreikning en þeim hafi ein-
ungis borist eitt teppi. Þetta þótti
honum sérkennilegt í ljósi þess
að séreignin væri orðin sameign
um teppi. Þá væru teppin ekki
svo breið að þar undir væri væn-
legt að kúra saman.
JARÐARFARIR
13.30 Friðrik Ólafur Ólafsson verður
jarðsunginn frá Kópavogskirkju.
13.30 Hannes H. Garðarsson, Gauks-
hólum 2, Reykjavík, verður jarð-
sunginn frá Fella- og Hólakirkju.
13.30 Helga Jóna Elíasdóttir, fyrrver-
andi skólastjóri og organisti á
Þórshöfn, verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju.
13.30 Ísfold Elín Helgadóttir, Sléttuvegi
9, verður jarðsungin frá Árbæjar-
kirkju.
13.30 Kristinn Sigmundsson fyrrverandi
bóndi á Arnarhóli verður jarð-
sunginn frá Akureyrarkirkju.
14.00 Anna Magnea Bergmann, Hring-
braut 77, Keflavík, verður jarð-
sungin frá Keflavíkurkirkju.
14.00 Einar Vilhelm Guðmundsson
Garðvangi, Garði, verður jarðsung-
inn frá Hvalsneskirkju.
15.00 Guðbjörg Hermannsdóttir, Há-
vegi 15, Kópavogi, verður jarð-
sungin frá Digraneskirkju.
■ Tímamót
Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
1.
2.
3.
Stefán Jónsson.
Zoran Djindjic.
Sigurður Helgi Guðjónsson. Við erum mjög ánægðir,“ segirIngvar Ásbjörnsson, 12 ára
nemandi í Rimaskóla, sem varð
Íslandsmeistari í skák ásamt
bróður sínum Sverri í sveita-
keppni grunnskóla sem haldin var
um síðustu helgi. Þeir Ingvar og
Sverrir hafa vakið athygli undan-
farið, því þeir voru líka í sigur-
sætum í Meistaramóti grunn-
skólanema á vegum Hróksins og
Eddu sem var haldið á Kjarvals-
stöðum á dögunum. Þar varð
Ingvar í fyrsta sæti og Sverrir í
öðru sæti.
Ingvar segir að Sverrir hafi
ekki orðið sár yfir því að lenda í
öðru sæti á eftir bróður sínum.
Þeir tefla mikið á hverjum degi og
þá aðallega á kvöldin. Það er eng-
in óheilbrigð samkeppni á milli
þeirra, segir Ingvar, þó svo að
Sverrir myndi ekkert hafa á móti
því að sigra bróður sinn. Sverrir
bendir líka á það að Ingvar er einu
og hálfu ári eldri en hann, þannig
að það sé eðlilegt að hann beri oft-
ar sigur úr býtum. Ingvar útilokar
alls ekki að Sverrir vinni hann á
næsta móti. Það var pabbi þeirra
sem kenndi þeim mannganginn
þegar þeir voru sex ára gamlir og
þeir hafa haft áhuga á skák alla
tíð síðan, ekki síst vegna öflugrar
skákkennslu í Rimaskóla. „Það
tefla mjög margir í skólanum,“
segir Ingvar. „Það eru skákæfing-
ar einu sinni í viku.“
Ingvar og Sverrir stunda ekki
bara skákíþróttina af kappi held-
ur eru þeir einnig í fótbolta, og
eru að eigin sögn bara nokkuð
góðir í því sporti líka. Ingvar seg-
ist þó frekar vilja stefna að því að
verða stórmeistari í skák heldur
en atvinnumaður í fótbolta. En
hvað er svona skemmtilegt við
skák? Það stendur ekki á svari frá
Ingvari: „Maður þarf að hugsa svo
mikið.“
gs@frettabladid.is
Fugla-andskotar!
Imbakassinn eftir Frode Øverli
Æi, haltu kjafti!
Maður þarf að
hugsa svo mikið
Skákbræður úr Grafarvogi hafa slegið í gegn á
skákmótum á meðal grunnskólanema undanfarið.
■ PERSÓNUR
INGVAR OG SVERRIR
ÁSBJÖRNSSYNIR
Íslandsmeistarar í sveita-
keppni grunnskóla í
Reykjavík í skák, með sveit
Rimaskóla, Í Meistaramóti
Hróksins og Eddu á Kjar-
valsstöðum á dögunum
varð Ingvar í fyrsta sæti og
Sverrir í öðru sæti.
Silfurþáttur Egils Helgasonar áSkjá Einum á sunnudaginn
verður sjálfsagt lengi í minnum
hafður enda dramatíkin í hámarki
og að sama skapi
deildar meiningar
um frammistöðu
bæði stjórnandans
og viðmælenda.
Hægrikratarnir á
vefnum
www.kreml.is eru hæstánægðir
með þáttinn og lofa hann fyrir að
þar „er tekist á af hörku um mál-
efni án mikilla áhrifa frá póli-
tískri rétthugsun samtímans.“
Þátturinn hefur það fram yfir
aðra slíka, að mati Kremlverja, er
„sá léttleiki og frjálsræði sem ein-
kennir stjórnanda hans sem er
óhræddur við að ræða um og
kryfja það sem aðrir þora ekki
alltaf að snerta.“ Kremlverjar
klykkja svo út með því að leggja
fram þá frómu ósk að Silfrið fái
að vera sem lengst í loftinu „enda
væri synd að missa hann af dag-
skrá, ekki síst nú þegar kosningar
fara í hönd.“ Það fylgir hins vegar
ekki sögunni hvort ungkratarnir
hafi heyrt eitthvað sem gefur
þeim tilefni til að ætla að Silfrið
hætti korteri fyrir kosningar.
■ Fréttir af fólki
Mannætan tók ungan sonsinn með sér í gönguferð
um skóginn. Þar sem þeir feðg-
ar eru á göngu og faðirinn er að
uppfræða son sinn um lífsins
gang verður á vegi þeirra, í
rjóðri nokkru, stórglæsileg
kona, sofandi í sólbaði. Sonur-
inn hvíslar ákafur: „Pabbi!
Étum hana.“
„Hmmm, nei... veistu... ég er
með betri hugmynd,“ segir
mannætan. „Við skulum taka
hana með okkur heim og éta
mömmu þína.“
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M