Fréttablaðið - 14.03.2003, Blaðsíða 47

Fréttablaðið - 14.03.2003, Blaðsíða 47
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500 Atvinnuaug- lýsing Það er ótrúleg tregða í gangi hjáeigendum Fréttablaðsins að ganga frá hefðbundnum starfsloka- samingi við mig upp á skitnar 200.000.000 krónur. Ég hef því ákveð- ið að gerast forstjóri og auglýsi hér- með eftir þokkalegri forstjórastöðu. LAUNAKRÖFUR mínar eru mjög hóflegar miðað við það sem tíðkast í Ameríku. Ég er til í að taka við for- stjórastarfi strax í dag fyrir lúsar- laun, eða 1,5 til 2 millur á mánuði og vitanlega þarf þá að fylgja ökufær götujeppi, svartur eða silfurgrár, upp á 6 til 8 milljónir með líknarbelgjum og ABS-bremsum, krítarkort frá fyr- irtækinu, árskort í líkamsræktarstöð, frí áskrift að Sýn og 100 þúsund birkiplöntur til að græða landið. KAUPAUKINN er samkomulagsat- riði. Mér líst best á svokallaðan „tví- virkan kaupauka“, en tvívirkur kaup- auki kemur til útborgunar hvort held- ur fyrirtækið er rekið með tapi eða gróða, og reiknast sem ákveðið hlut- fall af bæði gróða og tapi. Það er ekki sanngjarnt að bjóða góðum forstjóra smánarsamning eins og aumingja Flugleiðaforstjóranum sem fær að- eins kaupauka þá sjaldan gróði er á fyrirtækinu. Að vísu fær hann fáein- ar krónur núna í ár en hefur ekki séð goddamn cent í öll þau ár sem það hefur tekið kompaníið að tapa öllum þessum milljörðum undir hans ör- uggu stjórn. Og hvaða sanngirni er í því? KAUPRÉTT á hlutabréfum á útsölu- verði þarf ég auðvitað að fá líka, helst á genginu 1,6. Allir vita að það er fyrst og fremst bókhaldslegt atriði hvort fyrirtæki sýna tap eða gróða svo að ég get ekki alltaf reitt mig á að endurskoðandinn sé í stuði. Fyrir utan þetta geri ég ekki miklar kröfur: Tvær utanlandsferðir á mánuði (og ekki með Iceland Express), dagpen- ingar, hótelpeningar, matarpeningar, leigubílapeningar, bílaleigupeningar, og svo „petty cash“ eða skotsilfur til eigin ráðstöfunar því að maður þarf alltaf að vera að moka þjórfé í fólk til að halda uppi virðingu fyrirtækisins. Tilboð merkt „Gott starf – lítil vinna“ leggist inn á afgreiðslu Fréttablaðs- ins. Auðvitað eru fyrirtæki rekin til að einhver græði á þeim. Og ég er reiðubúinn að fórna mér í þágu við- skiptalífsins. Bakþankar ÞRÁINS BERTELSONAR Ertu að kaupa, byggja eða breyta? Þú getur á auðveldan hátt samið um fasteigna- eða framkvæmdalán hjá Frjálsa fjárfestingarbankanum. Um er að ræða hagstætt lán, sem veitt er til allt að 30 ára gegn veði í fasteign. Allt að 80%veðsetningarhlutfallaf verðmæti fasteignar Frjálsa fjárfestingarbankans Fasteignalán Frjálsi fjárfestingarbankinn, Ármúla 13a, sími 540 5000, www.frjalsi.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.