Fréttablaðið - 20.03.2003, Side 1
KVIKMYNDIR
Clooney í
geimdrama
bls. 22
Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500 Fimmtudagurinn 20. mars 2003
Tónlist 20
Leikhús 20
Myndlist 20
Bíó 22
Íþróttir 18
Sjónvarp 24
KVÖLDIÐ Í KVÖLD
FUNDUR Andstæðingar stríðs gegn
Írak safnast saman á Lækjartorgi í
dag klukkan 17.30 til að mótmæla
árásum á landið.
Stríðinu mótmælt
Grindavík og KR
KÖRFUBOLTI Grindavík tekur á móti
KR í úrslitakeppni 1. deildar
kvenna í körfubolta klukkan 19.15.
Þetta er önnur viðureign liðanna en
KR vann þá fyrstu örugglega.
FUNDUR Opinn fundur verður í Há-
tíðarsal Háskóla Íslands um stefnu
stjórnmálaflokkanna í málefnum
Háskóla Íslands. Fyrir svörum sitja
fulltrúar stjórnmálaflokkanna. Páll
Skúlason, rektor Háskóla Íslands,
stjórnar umræðum og hefst fund-
urinn klukkan 12.00.
Stefna
stjórnmálaflokka
TÓNLEIKAR Tónleikar á Grand Rokk
til styrktar samtökunum Ísland-
Palestína. Fram koma hljómsveit-
irnar I Adapt, Dys, Changer,
Kimono, Albert og Innvortis.
Styrktartónleikar á
Grand Rokk
HAFRANNSÓKN
Loðnan á
kaldari slóðir
FIMMTUDAGUR
67. tölublað – 3. árgangur
bls. 30
STJÓRNMÁL
Járnabindingamaður
gegn formanni
bls. 10
Olíufélagið Ker yfirtekið:
Gagnkvæm eignatengsl rofna
VIÐSKIPTI Vörðuberg, félag undir
forystu Ólafs Ólafssonar, stjórn-
arformanns Samskipa, og Krist-
jáns Loftssonar hefur keypt allan
hlut Vátryggingafélags Íslands og
Samvinnulífeyrissjóðsins í olíufé-
laginu Keri á genginu 12. Eftir
kaupin á Vörðuberg tæplega 60
prósenta hlut í félaginu, en eig-
endur þess áttu fyrir samtals um
30 prósent í félaginu. Ker er í
gegnum hlutdeild í hlutafélaginu
Eglu kaupandi að um tólf prósenta
hlut í Búnaðarbankanum. Ker á
einnig um 20 prósenta hlut í VÍS.
Jón Helgi Guðmundsson, for-
stjóri BYKO, á tæp 23 prósent í
Keri í gegnum eignarhaldsfélag-
ið Gerði. Honum verður ásamt
öðrum hluthöfum gert tilboð á
sama gengi. Í framhaldinu verð-
ur Ker afskráð í Kauphöllinni.
Ólafur Ólafsson segir að ekki
hafi verið haft samráð við Gerði
um kaupin: „Við höfum átt góð
og farsæl samskipti við þá og
þeir verða að taka afstöðu til
þess hvort þeir vilja vera með
okkur eða selja.“
Ólafur segir það stefnu Kers
að einbeita sér að kjarnastarf-
semi. Hann segir sjónum nú
beint að olíu og flutningastarf-
semi, auk eignarhlutarins í Bún-
aðarbankanum. Töluverð upp-
stokkun hefur verið á eignar-
haldi fyrirtækja sem tilheyrðu
Samvinnuhreyfingunni. Með
þessum viðskiptum rofnar gagn-
kvæmt eignarhald VÍS og Kers.
„Við töldum rétt að gera þessum
aðilum tilboð til að flýta fyrir
þeim breytingum sem við telj-
um eðlilegar á rekstri félags-
ins.“ ■
Óreiðan á
Löggildingarstofu:
Starfsmenn
ósáttir við
forstjórann
STJÓRNSÝSLA Starfsmenn Löggild-
ingarstofu munu vera ósáttir við
forstjóra sinn, Gylfa Gaut Péturs-
son, vegna óreiðumálsins sem nú
skekur stofnunina.
Eins og fram hefur komið
skellir forstjórinn skuldinni, í
andsvörum sínum til iðnaðarráð-
herra, að langmestu leyti á skrif-
stofustjóra sem gerður var starfs-
lokasamningur við í fyrra.
Forstjórinn segist ekki hafa
haft ástæðu til að vantreysta
skrifstofustjóranum „lengi vel“,
en að hann hafi vísvitandi farið á
bak við sig. Öllum sé nú ljóst að
skrifstofustjórinn hafi keypt sér
vinsældir starfsmanna Löggild-
ingarstofu með alls kyns tækjum
og tólum sem þeir máttu hafa
heim með sér.
Starfsmönnum munu líka um-
mæli forstjórans illa. Þeir héldu
sérstakan fund um málið síðdegis
í gær. Ekki náðist að fá upplýsta
niðurstöðu þess fundar.
Starfsmenn Löggildingarstofu
eru nú fimmtán talsins. Þeir voru
tuttugu þegar Ríkisendurskoðun
hóf athugun sína á starfseminni.
Fimm var sagt upp eftir að rann-
sóknin hófst. ■
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 12 TIL 80 ÁRA
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 69,6% SAMKVÆMT
FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP Í OKTÓBER 2002.
Fr
é
tt
a
b
la
ð
ið
M
o
rg
u
n
b
la
ð
ið
Meðallestur 25 til 49
ára samkvæmt
fjölmiðlakönnun
Gallup frá
október 2002
28%
D
V
80.000 eintök
70% fólks les blaðið
Hvaða blöð
lesa 25 til 49
ára íbúar á
höfuðborgar-
svæðinu á
fimmtu-
dögum?
53%
72%
LAGÐIR AF STAÐ TIL BAGDAD
Hersveitir Bandaríkjanna og Bretlands héldu inn á vopnlausa svæðið milli Íraks og Kúvæts í gær og tóku sér þar stöðu til innrásar í Írak.
ÍRAK Fresturinn sem George W.
Bush Bandaríkjaforseti gaf
Saddam Hussein til að halda í út-
legð og komast hjá stríði rann út
klukkan eitt í nótt. Fyrr um dag-
inn höfðu bandarískar og breskar
hersveitir lagt af stað upp í herför
sína. Snemma í gærmorgun fóru
fyrstu hersveitirnar inn á vopn-
lausa svæðið sem skilur að Kúvæt
og Írak og bjuggust til árásar. Sú
árás var ekki hafin þegar blaðið
fór í prentun en hennar vænst.
George W. Bush Bandaríkja-
forseti fundaði með ráðgjöfum
sínum í gær. Hann ræddi einnig
við Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, sem hafði þá nýlega
fengið stuðningsyfirlýsingu
þingsins við innrás í Írak og fund-
að með stríðsráðuneyti sínu. Sam-
an lögðu þeir á ráðin um hvernig
staðið skyldi að innrás í Írak.
Það var enginn uppgjafartónn í
íröskum ráðamönnum þótt stund
innrásar nálgaðist. „Við erum
reiðubúnir að berjast, við erum
undir það búnir að mæta árásar-
mönnum og öruggir um sigur,“
sagði Tariq Aziz, aðstoðarforsæt-
isráðherra Íraks, á blaðamanna-
fundi nokkrum klukkustundum
eftir að orðrómur breiddist út um
að hann hefði flúið land. „Þetta
verður ekki stutt stríð nema hann
(Bush) ákveði að hætta við árás-
ina. Þetta verður ekki auðvelt fyr-
ir hann.“
Hamad bin Isa Al Khalifa,
konungur Barein, varð í gær
fyrsti þjóðarleiðtogi heims til að
tilkynna opinberlega um að
Saddam Hussein fengi hæli í
landi sínu ef hann færi í útlegð
frá Írak til að afstýra stríði.
Konungurinn var einn nokkurra
þjóðarleiðtoga sem reyndu fram
á síðustu stundu að afstýra
stríði.
„Þetta er sorgardagur fyrir
Sameinuðu þjóðirnar,“ sagði
Kofi Annan, aðalritari þeirra,
við lok fundar í Öryggisráðinu í
gærkvöldi. Hann lýsti áhyggjum
af því að miklar hörmungar biðu
írösku þjóðarinnar og hvatti
Bandaríkjamenn og Breta til að
gleyma ekki hjálparstarfi með-
an stríð geisaði.
Meira á bls. 6 og 8
Innrásarherinn
lagður af stað
Tæpum sólarhring áður en fresturinn sem Saddam Hussein fékk til að
yfirgefa Írak rann út héldu bandarískar hersveitir að landamærunum.
Íraskir ráðamenn voru vígreifir þegar fresturinn rann út.
M
YN
D
/A
P
Á LÖGGILDINGARSTOFU
Starfsmenn Löggildingarstofu funduðu í
gær um óreiðumál í stofnuninni og við-
brögð forstjórans við þeim.
REYKJAVÍK Suðaustan 18-23
m/s og rigning. Hægari
síðdegis Hiti 2-8 stig.
VEÐRIÐ Í DAG
VINDUR ÚRKOMA HITI
Ísafjörður 18-23 Rigning 5
Akureyri 13-18 Rigning 8
Egilsstaðir 13-18 Rigning 8
Vestmannaeyjar 18-23 Rigning 5
+
+
+
+➜
➜
➜
➜