Fréttablaðið - 20.03.2003, Page 4

Fréttablaðið - 20.03.2003, Page 4
4 20. mars 2003 FIMMTUDAGUR GENGI GJALDMIÐLA Bandaríkjadalur 79.61 0.01% Sterlingspund 124.1 -0.60% Dönsk króna 11.39 0.56% Evra 84.66 0.57% Gengisvístala krónu 123,10 -0,15% KAUPHÖLL ÍSLANDS Fjöldi viðskipta 384 Velta 8.998 m ICEX-15 1.390 0,89% Mestu viðskipti Ker hf. 3.552.000.537 Kaupþing banki hf. 1.246.738.983 Grandi hf. 696.469.496 Mesta hækkun Hraðfrystihúsið-Gunnvör hf. 10,94% Plastprent hf. 3,45% Íslandssími hf. 3,07% Mesta lækkun ÍLíftæknisjóðurinn MP BIO hf. -16,67% Líf hf. -2,73% Landssími Íslands hf. -2,59% ERLENDAR VÍSITÖLUR DJ*: 8174,5 -0,2% Nasdaq*: 1383,5 -1,2% FTSE: 3765,4 0,5% DAX: 2615,2 1,2% Nikkei: 8002,7 1,7% S&P*: 864,5 -0,2% *Bandarískar vísitölur kl. 17.00 Ertu hlynnt(ur) innrás í Írak? Spurning dagsins í dag: Óttastu afleiðingar innrásarinnar í Írak? Niðurstöður gærdagsins á www.frett.is Kjörkassinn Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun frétt.is VESTURBAKKINN Mahmoud Abbas hefur samþykkt að taka við embætti forsætisráðherra heimastjórnar Palestínu. Yasser Arafat tilnefndi Mahmoud Abbas í embættið í gær en Abbas hefur um árabil verið nánasti sam- starfsmaður Arafats í Frelsis- hreyfingu Palestínumanna. Þetta er í fyrsta sinn sem honum býðst að deila völdum með leiðtoganum með formlegum hætti. Arafat reyndi með öllum tiltækum ráð- um að takmarka vald þessa nýja embættis en varð að lokum að láta í minni pokann fyrir þinginu. Abbas hefur fimm vikur til þess að mynda nýja ríkisstjórn. Hann hefur í gegnum tíðina gagnrýnt harðlega árásir Palest- ínumanna á Ísraelsmenn og hafa samskipti hans við ísraelsk og bandarísk yfirvöld verið með ágætum. Samband Abbas við Arafat hefur aftur á móti verið nokkuð stormasamt þó hann hafi aldrei risið gegn leiðtoganum á opinberum vettvangi. ■ Voðaskot lögreglumanns: Skaut sig óvart í ennið NOREGUR, AP Lögreglumaður í Krist- jánssandi í Noregi varð fyrir því óhappi að skot hljóp úr byssu sem hann bar á sér, fór í vegg og hafnaði loks í enni hans. Maðurinn var flutt- ur á sjúkrahús þar sem hann gekkst undir aðgerð og er hann nú á bata- vegi, að sögn Aftenposten. Forsaga málsins er sú að lög- reglunni barst tilkynning um vopn- aðan mann sem væri að skjóta út í loftið. Lögreglumaðurinn var send- ur ásamt fleirum á staðinn til að yf- irbuga manninn. Lagði hann hald á byssuna en þegar hann kom á lög- reglustöðina datt hún úr vasa hans með fyrrgreindum afleiðingum. ■ Smáralind mán.-fös. kl. 11-19 lau. kl. 11-18 sun. kl. 13-18 Glæsibæ mán.-fös. kl. 10-18 lau. kl. 10-16 30-50 % afsláttur af völdum vörum • Dömu-, herra- og barnaúlpur • Íþróttaskór • Golffatnaður (eingöngu í Glæsibæ) • Veiðivörur (eingöngu í Glæsibæ) Smáralind - Glæsibæ Sími 545 1550 og 545 1500 ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S U TI 2 06 03 03 /2 00 3 LÖGREGLUMÁL Hálfþrítugur út- varpshlustandi telur Jón Gnarr hafa brotið gegn lögum um barna- klám í morgunþætti á útvarpsstöð- inni Múzík 88,5. Hlustandinn gerði ýmsum yf- irvöldum viðvart vegna leikins at- riðis í fram- haldsþætti sem Jón semur og flytur. Í atriðinu, sem frumflutt var 7. mars, krafðist faðir þess meðal ann- ars að tólf ára sonur sinn afklæddi sig fyrir ljós- myndatöku. Í staðinn fengi dreng- urinn ís. Myndirnar fengi hins veg- ar Lassi, pennavinur föðurins í Noregi. Auk ríkislögreglustjóra hafa Umboðsmaður barna, Barna- verndarstofa, Útvarpsréttarnefnd og félagsmálaráðuneytið málið til skoðunar. „Ég hef ekki brotið nein lög um barnaklám. Ég hef verið kærður fimm til sex sinnum á ári síðustu árin. Það hefur aldrei verið neinn fótur fyrir því. Þetta hafa alltaf verið einhverjir vitleysingar. Til dæmis þessi gaur núna sem segist vilja sjá hvort ríkislögreglustjóra þyki þetta jafn fyndið og til stóð. Það vita það allir að menn bera það ekki undir ríkislögreglustjóra hvort eitthvað sé fyndið,“ segir Jón. Að mati Jóns er málið fyrst og fremst auglýsing fyrir hann og út- varpsþáttinn. Hann muni ekki breyta efni eða efnistökum. „Það er frekar að ég geri meira af þessu ef eitthvað er,“ segir hann. Eins og áður segir er í atriðinu sem um er deilt sagt frá því að senda eigi nektarmyndir af 12 ára dreng til Noregs. Jón segir engar kvartanir enn hafa borist þaðan. „En það hlýtur að koma að því,“ segir hann. Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, segir Jón lýsa háalvarlegri atburðarás sem sé til þess fallin að særa blygðunar- kennd fólks. „Ég efast um að nokkrum manni þyki þetta fyndið. Fyrst og fremst er þetta hugsunarleysi og dómgreindarleysi sem er sjálfsagt að bregðast við,“ segir Bragi. Jón segir fjölskylduleikrit sitt lýsa Íslendingum eins og þeir séu meira og meira að verða. „Þetta er um dýrslega og siðlausa plebba sem er ekkert heilagt. Kannski er það einmitt það sem þessum manni svíður.“ gar@frettabladid.is SJÁVARÚTVEGSMÁL „Þessir menn eru að reyna að blekkja almenning með því að halda því fram að grá- sleppan drepist í netunum og þeim sé þannig skipað að stunda siðlaust brottkast á fiski. Þetta er einfaldlega rangt og ég er fylli- lega dómbær um það mál eftir að hafa stundað netaveiðar árum saman,“ segir Heimir Ingvason grásleppukarl vegna ummæla Stefáns Egilssonar skipstjóra í Fréttablaðinu þar sem Stefán lýsti furðu sinni á þeirri tilskipun Fiskistofu að sjómenn á netabát- um skuli henda allri lifandi grá- sleppu í sjóinn aftur. Stefán sagði að grásleppan væri að öllu jöfnu dauð þegar hún kæmi um borð og því væri það hrein sóun að fleygja henni. Heimir er á allt öðru máli og segir að þvert á móti lifi grásleppan af veiðarnar, jafn- vel þótt hún hafi verið veidd á miklu dýpi. „Ég hef verið 10 vertíðir á neta- veiðum og þær grásleppur sem ég hef veitt í þorskanet voru lang- flestar lifandi. Þeir sem stundað hafa veiðar í grásleppunet þekkja að verið er að draga þau eftir allt að vikutíma og þá hefur verið hægt að sleppa 9 af hverjum 10,“ segir Heimir. Hann segir að netasjómenn haldi því fram í eiginhagsmuna- skyni að grásleppan drepist í net- unum. Grásleppuveiðar séu háðar sérveiðileyfi og aðrir eigi því ekki að fá að veiða hana undir röngu yf- irskyni. „Þetta er bara lélegur áróður því auðvitað vilja þessir kappar landa grásleppunni. Það væri gam- an að sjá hversu mikið af grá- sleppu kæmi í land ef þessir herra- menn þyrftu að leigja kílóið á 60 til 80 krónur,“ segir Heimir. Í samtali við Árna Múla Jónas- son aðstoðarfiskistofustjóra kom fram að netabátum væri skylt að henda fyrir borð lifandi grásleppu en hirða þá sem drepist hefði í net- um. Hann taldi, líkt og Heimir, að mikill meirihluti þeirrar grásleppu sem veiddist lifði af netin. ■ BÓNDI Í VÍGAHUG Hinn fimmtugi Dwight Watson veifaði bandaríska fánanum frá dráttarvélinni sem hann hafði keyrt út í tjörn skammt frá merkum minnismerkjum í Washington. Ósáttur tóbaksbóndi: Með sprengiefni í dráttarvél WASHINGTON, AP Laganna verðir í Washington virtust standa ráð- þrota frammi fyrir tóbaksbónda frá Norður-Karólínu sem ók á dráttarvél út í tjörn skammt frá nokkrum af merkustu minnis- merkjum Bandaríkjamanna í Washington. Lögreglan hafði stað- ið í viðræðum við manninn síðan á mánudaginn en hann sat sem fast- ast í dráttarvélinni, í hermanna- klæðum og með hjálm á höfði. Bóndinn hefur haldið því fram við lögreglu að hann sé með sprengiefni í dráttarvélinni en hann segist vera ósáttur við stefnu ríkisstjórnarinnar í tóbaks- varnarmálum. Að sögn lögreglu er ætlunin að tryggja að málið verði leyst með friðsamlegum hætti. ■ Grásleppukarl og fyrrum sjómaður á netabátum: Grásleppan sögð lifa af netaveiðar RIFIST UM GRÁSLEPPU Sjómenn á netabátum halda því fram að grásleppan drepist í netum og því sé það hrein sóun að fleygja henni í hafið aftur. Grásleppukarlar halda því þvert á móti fram að grásleppan lifi. Jón Gnarr, sem sakaður er um að hafa útvarpað barnaklámi í útvarpsþætti, heldur sínu striki. Jón segir að í framhaldsþáttum sínum um drenginn Óla og fjölskyldu hans sé Íslendingum lýst eins og þeir séu; plebbum sem ekkert sé heilagt. „Fyrst og fremst er þetta hugsun- arleysi og dómgreindar- leysi sem er sjálfsagt að bregðast við. JÓN GNARR „Það vita það allir að menn bera það ekki undir ríkislögreglustjóra hvort eitthvað sé fyndið,“ segir Jón Gnarr um rannsókn á meintum brotum sínum á lög- gjöf um barnaklám. Nýr forsætisráðherra í Palestínu: Bakvörður í framlínuna FORSÆTISRÁÐHERRAEFNI Mahmoud Abbas nýtur stuðnings banda- rískra og ísraelskra yfirvalda í embætti for- sætisráðherra í heimastjórn Palestínu. 3% 79,1%Nei 17,9% Veit ekki Já Útvarpar meintu barnaklámi áfram SKARST Á HÖFÐI Vörubílstjóri skarst illa á höfði þegar álramm- ar sem hann var að hífa af palli sínum við Menntaskólann á Akur- eyri féllu á hann. STAKK Á DEKK Í PORTI Lögregla leitar að þeim sem skar og eyði- lagði þrjú dekk á bíl í porti við Skipagötu á Akureyri í fyrrinótt. ■ Lögregla

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.