Fréttablaðið - 20.03.2003, Side 6
ÍRAK Við upphaf þriðja stríðsins
sem Íraksher berst í á tæpum ald-
arfjórðungi verða íraskir her-
menn að gera upp við sig hvort er
ógnvænlegra; bandarískur og
breskur innrásarher eða reiði
Saddams Husseins Íraksforseta.
Fyrir Persaflóastríðið 1991 var
talað um Íraksher sem einn öflug-
asta her heims. Annað kom á dag-
inn. Fjöldi hermanna flúði af víg-
vellinum. Fjölþjóðaherinn sem
var saman kominn til að frelsa
Kúvæt þurfti því ekki að hafa jafn
mikið fyrir sigrinum og hafði ver-
ið óttast. Í kjölfar Persaflóastríðs-
ins var íraski herinn í sárum. Nú
treysta bandamenn á að baráttu-
andi óbreyttra hermanna sé brost-
inn og þeir leggi á flótta frekar en
að mæta innrásarhernum. Til þess
að það gerist verða hermenn að
komast að þeirri niðurstöðu að
þeir óttist innrásarherinn meira
en yfirmenn sína.
Fyrr í vikunni skipti Saddam
Hussein Írak upp í fjögur varnar-
svæði. Yfir þau setti hann son sinn
og þrjá trygga foringja. Allir eiga
þeir frama sinn og langlífi því að
þakka að þeir hafa sýnt Saddam
fulla hollustu. Aðrir hafa verið
myrtir eða þeim varpað í fangelsi.
Hvort sem vonir um fjölda-
flótta íraskra hermanna rætast
eða ekki búast flestir hernaðar-
sérfræðingar við því að til harka-
legra bardaga kunni að koma í hel-
stu borgum Íraks. Tvær helstu
borgirnar eru höfuðborgin
Bagdad og hafnarborgin Basra,
sem er aðeins 55 kílómetra frá
landamærunum að Kúvæt. Í stríði
Íraka og Írana varð borgin fyrir
miklum skemmdum í bardögum.
Bandarískir hernaðarsérfræðing-
ar gera ekki ráð fyrir að mikil
áhersla verði lögð á varnir Basra.
Hertaka hennar er þó mikilvæg til
að tryggja öryggi hersveita í
Kúvæt.
Gert er ráð fyrir að hörðustu
bardagarnir verði í og nærri
Bagdad. Þar hefur loftvarnakerf-
um Íraks verið safnað saman. Að
auki eru sterkustu hersveitir
landsins þar til varna, lífvörður
Saddams Husseins. Hættan er því
sú að til bardaga komi í borginni
með tilheyrandi mannfalli, hvort
tveggja hermanna og óbreyttra
borgara. Bandaríkjaher var kall-
aður frá Sómalíu eftir götu-
bardaga þar. ■
6 20. mars 2003 FIMMTUDAGURInnrás í Írakyfirlit
• Vilja fund í
utanríkismálanefnd
• Fjórir Íslendingar
í viðbragðsstöðu
• Almenningur í Bagdad
• Ferill Saddams
• Innrás hörmuð
• Bandalag hinna viljugu
• Varnir Íraks
• Íslendingar í
Miðausturlöndum
MBA nám
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F/
SI
A
.I
S
H
IR
2
05
51
0
3.
20
03
Opinn kynningarfundur
þriðjudaginn 1. apríl kl. 17.15
í Háskólanum í Reykjavík.
22 mánaða MBA-nám við Háskólann í Reykjavík eflir
stjórnunar- og leiðtogahæfileika þína. Námið byggir á
sterkum tengslum við virta háskóla í Evrópu og gefur
nemendum kost á að sérhæfa sig í fjármálum,
mannauðsstjórnun og „Global eManagement“.
www.ru.is/mba
■ Innrás í Írak
STÖÐUGUR ÁRÓÐUR Bandaríkja-
menn hafa stóraukið áróður sinn
í Írak síðustu daga. Metfjölda
dreifimiða hefur verið varpað til
jarðar auk þess sem stöðugar út-
varpssendingar eru til íbúa
landsins. Útsendingarnar eru
skipulagðar af sérfræðingum í
sálfræðihernaði.
DEILT UM NOTKUN EFNAVOPNA
Menn greinir á um hvort Írakar
beiti efnavopnum til að svara inn-
rás Bandaríkjanna og banda-
manna þeirra. Starfsmenn banda-
ríska varnarmálaráðuneytisins
segja mikla hættu á því að Írakar
beiti efnavopnum. Hans Blix, yf-
irmaður vopnaeftirlitsins, segist
efast um það, Írakar viti að noti
þeir efnavopn snúist almennings-
álit heimsins gegn þeim.
■ Íraksdeilan/Íslendingar
Leynd um Íslend-
inga á svæðinu
ÍSLENDINGAR „Við gefum ekki upp
hversu margir Íslendingar né
hverjir eru á svæðinu. Við erum
að safna saman í skrá og gera
lista yfir þá Íslendinga sem eru
staddir á þeim slóðum þar sem
vænta má átaka,“ segir Anna
Katrín Vilhjálmsdóttir, sendi-
ráðsritari utanríkisráðuneytis-
ins.
Anna hvetur alla aðstandend-
ur til að setja sig í samband við
ráðuneytið og tilkynna um þá
sem vitað er að eru í Írak eða
þar um slóðir. Hún segir lista
ráðuneytisins ekki tæmandi en
að því sé stefnt.
„Við erum að gera okkar
besta og allt það sem hægt er til
að tryggja öryggi þeirra ís-
lensku ríkisborgara sem eru á
svæðinu,“ segir Anna. Tilkynn-
ing frá utanríkisráðuneytinu
hefur verið send út þessa efnis
en ekki hafa margir sett sig í
samband vegna þessa. ■
■ Innrás í Írak/Varnir
Bandamenn vona að íraskir hermenn óttist
innrásarherinn meira en Saddam Hussein.
Hörðustu bardaga er vænst í Bagdad.
Skilyrði til
herflutninga
Góð - auðvelt að
ferðast.
Þokkaleg -
nokkrar ferðatak-
markanir.
Erfið - miklar tak-
markanir á liðs-
flutningum, vötn,
lægðir og fjöll.
Ófær - landslag
leyfir aðeins
minniháttar flutn-
inga, fjöll, skurðir.
Stærri vegir
Sveitavegir
Hröð yfirferð
Sérfræðingar telja að
innrásarher geti náð til
Bagdad frá Kúvæt á tveim-
ur til fjórum dögum. Hörð
andstaða Íraka eða vand-
ræði með vélbúnað gætu
tafið þá för.
Þegar stríðið
hefst verður
flugskeytum og
stýrðum
sprengjum
skotið á mikil-
væg skotmörk
við radarstöðv-
ar og stjórn-
stöðvar...
...á sama tíma má
senda herlið með
flugi og hraðskreið-
ar brynsveitir á
undan til að ná
mikilvægum stöð-
um á borð við olíu-
lindir.
Þyrlur geta
kastað út
birgðum
og elds-
neyti...
...sem hraðskreiðar sveitir inn-
rásarmanna geta náð á framrás
sinni meðan hægfara birgða-
sveitir fylgja í kjölfarið.
KO
RT
A
P
Óttinn við
Saddam og
innrásarher
LEIÐIN TIL BAGDAD GEGNUM ÍRAK
Það getur reynst vandkvæðum bundið að flytja fjölmennt herlið og vígbúnað í gegnum
sum svæði í sunnanverðu Írak, sérstaklega á milli fljótanna Tígris og Efrat. Hernaðarsér-
fræðingar telja að hersveitir bandamanna muni stefna í norðvestur frá Kúvæt, fara í
gegnum eyðimörkina áður en þær snúa til hægri og stefna til Bagdad.
Í MIÐBÆ BAGDAD
Sjálfboðaliði úr röðum liðsmanna
Saddams Husseins í viðbragðsstöðu.
Veitir
aðstöðu
ÍSLAND Bandaríkjaher getur flogið
um íslenska lofthelgi til að flytja
búnað til Persaflóa og millilent á
Keflavíkurflugvelli. Þetta er sú
aðstoð sem íslensk stjórnvöld
veita Bandaríkjunum og banda-
mönnum við innrás í Írak. Íslend-
ingar munu síðar taka þátt í upp-
byggingu Íraks að stríði loknu. ■
■ INNRÁS Í ÍRAK
EKKERT FLUG TIL BAGDAD Síð-
asta flugfélag heims til að halda
uppi reglulegu flugi til Bagdad,
konunglega jórdanska flugfélag-
ið, frestaði í gær öllu flugi fram
yfir lok stríðsátaka.
ÍSLENSK KONA Í HERNUM Íslensk
kona tekur þátt í innrásinni í
Írak. Hin tæplega þrítuga Stein-
unn Hildur Truesdale keyrir
sjúkrabíl í bandaríska hernum og
kom til Kúvæt í ársbyrjun að því
er Ríkisútvarpið greindi frá.
ÍRAKAR GREIÐI HJÁLPARSTARF
Bandaríkjamenn og Bretar vinna
að áætlun um hjálparstarf til
handa þeim sem verða fyrir tjóni
vegna stríðsins. Þeir gera ráð
fyrir að afrakstur af íröskum
olíulindum verði notaður til að
standa straum af kostnaði.
Tvær fylkingar
STYÐJA INNRÁS
Afganistan, Albanía, Aserbaídsj-
an, Ástralía, Bandaríkin, Bret-
land, Danmörk, El Salvador, Eist-
land, Eritrea, Eþíópía, Filippseyj-
ar, Georgía, Holland, Ísland, Ítal-
ía, Japan, Kólumbía, Kúvæt, Lett-
land, Litháen, Makedónía, Níg-
ería, Pólland, Rúmenía, Slóvakía,
Spánn, Suður-Kórea, Tékkland,
Tyrkland, Ungverjaland, Úsbek-
istan.
ANDVÍG INNRÁS
Arababandalagið, Frakkland, Ind-
land, Indónesía, Íran, Kína,
Malasía, Mexíkó, Noregur, Nýja-
Sjáland, Rússland, Sviss, Sýrland,
Þýskaland.
■ Innrás í Írak/
Afstaða ríkja
ÍRAK Fréttaskýrendur sem hafa
borið saman svokallað bandalag
hinna viljugu sem styður innrás-
ina í Írak nú og fjölþjóðabanda-
lagið sem stóð að frelsun Kúveits
í ársbyrjun 1991 segja bandalag-
ið nú sýnu veikara en það fyrra.
Þegar litið er til fjölda þeirra
ríkja sem styðja innrás sést að
þau eru litlu færri en ríkin sem
stóðu að frelsun Kúvæt, 31 gegn
34. Nú vanti hins vegar stærri
ríki á borð við Frakkland og
Þýskaland, sem eru andvíg inn-
rás. Í stað þeirra hafi komið ríki
sem hafi minna vægi í alþjóða-
samfélaginu og búi yfir minni
hernaðarmætti.
„Á listanum eru mörg „hverj-
um er ekki sama“ ríki,“ segir
Jonathan Stevenson, sérfræð-
ingur í varnarmálum við
International Institute for Stra-
tegic Studies í London.
Það verður þó seint sagt að
bandalagið sé ekki öflugt. Um
300.000 bandarískir hermenn
eru staddir á Persaflóasvæðinu,
studdir af um þúsund herflug-
vélum.
Bretar hafa sent 45.000 her-
menn og stærstu flotaherdeild
sem kölluð hefur verið út frá
Falklandseyjastríðinu 1982. Að
auki senda Ástralar 2.000 her-
menn og Pólverjar 200. ■
SKRIFAÐ TIL MÖMMU
Þessi hermaður notaði tækifærið og skrif-
aði móður sinni páskakveðju. Óvíst er
hvenær hann fær næst tækifæri til að
skrifa henni bréf.
■ Innrás í Írak/Bandalag hinna viljugu
Veikara bandalag en í Flóastríðinu
■ Innrás í Írak/
Liðveisla Íslands