Fréttablaðið - 20.03.2003, Side 8
8 20. mars 2003 FIMMTUDAGUR
■ Innrás í Írak
■ Innrás í Írak/
Orðrómur
Ótímabær
fögnuður
ÍRAK, AP Menn þóttust sjá merki
þess að Íraksstjórn væri að
hrynja þegar fréttir bárust af
því að Tariq Aziz, aðstoðarfor-
sætisráðherra Íraks, væri flúinn
frá Bagdad og héldist við á yfir-
ráðasvæðum Kúrda í Norður-
Írak. Aziz hefur verið einn helsti
samstarfsmaður Saddams
Husseins.
Síðar í gær var fréttin borin
til baka og síðla dags kom Aziz
fram á blaðamannafundi í
Bagdad. ■
Sími 545 1200 I Netfang: ns@ns.is I www.ns.is
Ísland og ESB
Neytendasamtökin efna til ráðstefnu um Ísland og Evrópusambandið og
hagsmuni neytenda í dag, fimmtudag kl. 13.00-16.30 á Grand Hótel
Reykjavík við Sigtún. Aðgangur er öllum opinn án endurgjalds og boðið
verður upp á kaffiveitingar. Ráðstefnan verður send út á heimasíðu
Neytendasamtakanna, www.ns.is.
Setning: Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna.
Ávarp: Kristján Skarphéðinsson, ráðuneytisstj. í viðskiptaráðuneytinu.
Hverju hefur Evrópusamvinnan skilað íslenskum neytendum?
Framsögumaður: Jón Magnússon hrl. og fyrrverandi
formaður Neytendasamtakanna.
Hver er framtíð EES í ljósi stækkunar Evrópusambandsins?
Framsögumaður: Árni Páll Árnason hdl.
Hver er staða neytenda í Evrópu framtíðarinnar?
Framsögumaður: Felix Cohen, forstjóri hollensku
neytendasamtakanna, Consumentenbond.
Hverju hefur Evrópusambandsaðild og upptaka evrunnar
breytt fyrir finnska neytendur?
Framsögumaður: Sinikka Turunen, forstjóri finnsku
neytendasamtakanna, Suomen Kuluttajaliitto.
Kaffihlé.
Matvælamarkaðurinn og neytendur – verð og vöruframboð,
hverju breytir Evrópusambandsaðild fyrir íslenska neytendur?
Framsögumaður: Ari Skúlason, hagfræðingur og
framkvæmdastjóri Aflvaka.
Fjármálamarkaðurinn og neytendur, hverju breytir
Evrópusambandsaðild fyrir íslenska neytendur?
Framsögumaður: Edda Rós Karlsdóttir, forstöðumaður
greiningardeildar Búnaðarbankans.
Niðurstöður skoðaðar með neytendagleraugum.
Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar.
Jónmundur Guðmarsson, bæjarstjóri Seltjarnarnesbæjar.
Ráðstefnustjóri: Jón Sigurðsson, rekstrarhagfræðingur.
Ráðstefna um
hagsmuni neytenda
G
A
R
Ð
A
R
G
U
Ð
JÓ
N
S
S
O
N
/
M
Á
T
T
U
R
IN
N
O
G
D
Ý
R
Ð
IN
0
3
.0
3
FÉKK STUÐNING ÞINGSINS Drjúg-
ur meirihluti þingmanna á breska
þinginu greiddi atkvæði með yfir-
lýsingu til stuðnings stefnu Tony
Blair forsætisráðherra gagnvart
Írak. 149 þingmenn greiddu at-
kvæði gegn henni, nokkuð færri
en búist hafði verið við.
1957 Saddam Hussein gengur til
liðs við Baath-flokkinn, flokk íra-
skra sósíalista.
1958 Saddam lætur fyrst til sín
taka svo eftir er tekið þegar hann
tekur þátt í misheppnaðri tilraun
Baath-flokksins til að ráða af dög-
um þáverandi forsætisráðherra
Íraks. Í kjölfarið flýr hann til Eg-
yptalands.
1963 Saddam snýr aftur til Íraks
til þess að taka þátt í valdaránstil-
raun en er tekinn höndum og hon-
um varpað í fangelsi.
1966 Saddam tekst að flýja úr
fangelsi og er kosinn varaformað-
ur Baath-flokksins.
1968 Baath-flokkurinn nær völd-
um í Írak með leiðandi þátttöku
Saddams, sem sest í sæti varafor-
seta. Ahmad Hasan al-Bakr, frændi
Saddams, verður forseti landsins.
1969 Saddam lætur hengja opin-
berlega, án dóms og laga, fjórtán
meinta síóníska andófsmenn á
torgi í Bagdad.
1978 Þátttaka í stjórnarandstöðu í
Írak er gerð að dauðasök.
1979 Saddam tekst að krækja sér í
embætti forseta landsins, meðal
annars með því að láta taka af lífi
eða senda í útlegð um þriðjung
meðlima stjórnar Baath-flokksins.
1980 Deilum við Íran lýkur með
innrás Íraka, með leynilegum
stuðningi Bandaríkjamanna, Rússa
og fleiri. Stendur stríðið í átta ár
með litlum ávinningi en gríðarlegu
mannfalli og skuldasöfnun Íraka.
1988 Saddam gerir árás á Kúrda í
Norður-Írak og varpar meðal ann-
ars efnavopnasprengjum á borgina
Halabja. Á bilinu 50.000 til 100.000
manns bíða bana.
1990 Saddam gera innrás í Kúvæt
sem hafði verið einn af lánar-
drottnum Íraka í stríðinu við Íran.
Þetta reyndust forsetanum dýr-
keypt mistök og markaði upphafið
að átökum hans við Vesturlönd.
1991 Saddam heldur völdum þrátt
fyrir ósigur gegn Bandaríkja-
mönnum og bandamönnum þeirra í
stríðinu í Kúvæt. Skömmu eftir að
stríðinu lýkur gera Kúrdar í Norð-
ur-Írak uppreisn og Saddam sendir
her á svæðið. Talið er að á bilinu
30.000 til 60.000 manns hafi fallið
og um ein og hálf milljón Kúrda
flúði til Íran og Tyrklands.
2000 Saddam Hussein hafnar al-
farið samstarfi við Hans Blix, yfir-
mann vopnaeftirlitssveita Samein-
uðu þjóðanna.
■ Innrás í Írak/
Ferill Saddams
■ Innrás í Írak/Rauði kross Íslands
Fjórir Íslendingar
í viðbragðsstöðu
HJÁLPARSTARF „Við ætlum að senda
bréf til ríkisstjórnarinnar á næstu
dögum þar sem við munum fara
fram á aðstoð við hjálparstarfið í
Írak,“ segir Þórir Guðmundsson
hjá Rauða Krossi Íslands.
Rauði krossinn er, eftir því
sem næst verður komist, einu al-
þjóðlegu hjálparsamtökin sem
eru núna með alþjóðlega starfs-
menn í Írak og búast þeir við því
að vera starfandi í Írak á meðan á
styrjöld stendur og eftir að henni
er lokið – ef af því verður. Þá seg-
ir Þórir Rauða Krossinn einnig
með heilmikinn viðbúnaði í lönd-
unum í kringum Írak þar sem gert
er ráð fyrir að flóttamenn muni
leita, yfir landamærin, ef til átaka
kemur.
„Þetta er auðvitað stríð sem
mun hafa verstar afleiðingar fyr-
ir almenning í
Írak. Fólkið þar er
langþjáð og hefur
búið við lélega
heilsugæslu og
slæman kost núna
í rúman áratug en
viðskiptabannið
var sett á árið
1990.“
Einn Íslending-
ur, Þorkell Þor-
kelsson ljósmynd-
ari, er þegar kom-
inn á þessar slóðir
og er hann á vegum Rauða kross-
ins gagngert til að mynda átökin.
Þá eru fjórir Íslendingar eru í sér-
stakri viðbragðsstöðu og fara á
vettvang um leið og beiðni um að-
stoð berst. Þeirra á meðal eru
hjúkrunarfræðingar. ■
ÞÓRIR GUÐ-
MUNDSSON
Rauði kross Ís-
lands fer fram á
aðstoð ríkisstjórn-
arinnar við hjálp-
arstarf – ef af
verður.
STJÓRNMÁL For-
menn Samfylk-
ingar og Vinstri
grænna hafa ósk-
að eftir fundi í ut-
anríkismálanefnd
Alþingis þar sem
rætt verður um
Íraksmál.
„ S a m k v æ m t
lögum er skylt að
u t a n r í k i s m á l a -
nefnd sé ríkis-
stjórn til ráðu-
neytis um meiri-
háttar utanríkis-
mál, líka í þinghléum,“ segir Öss-
ur Skarphéðinsson, formaður
Samfylkingar, og gagnrýnir að
stjórnvöld hafi ákveðið að styðja
Bandaríkjamenn og Breta í árás-
arstríði gegn Írak án þess að bera
málið undir utanríkisnefnd. „Mér
finnst niðurlæging sem íslenskur
borgari að fá fregnir af því í
gegnum talsmann Bandaríkja-
stjórnar að Ísland sé í hópi þeirra
ríkja sem styðja
þetta stríð.“
Afstaða Ís-
lands gagnvart
yfirvofandi áras á
Írak er mótuð
með bandaríska
sendiherranum,
segir Steingrímur
J. Sigfússon, for-
maður Vinstri
grænna. „Þessi
ákvörðun er, eins
og þér er manna
best kunnugt, tek-
in án nokkurs
samráðs við utanríkismála-
nefnd,“ segir hann í bréfi til Sig-
ríðar Önnu Þórðardóttur, for-
manns utanríkismálanefndar.
„Niðurlæging utanríkismála-
nefndar og Alþingis fullkomnast
í því að fréttir af stuðningi Ís-
lands verða opinberar þegar
Bandaríkjastjórn birtir lista yfir
þau lönd sem þeim fylgja að mál-
um.“ ■
■ Innrás í Írak/Íslensk stjórnmál
Afstaðan mótuð
með sendiherra
STEINGRÍMUR
J. SIGFÚSSON
Krefst fundar í ut-
anríkisnefnd.
ÖSSUR SKARP-
HÉÐINSSON
Stjórnvöld huns-
uðu utanríkis-
nefnd.
ÍRAK, AP Íbúar Bagdad notuðu gær-
daginn til að búa sig undir innrás,
vitandi að þeir kynnu að vera að
upplifa síðustu klukkustundirnar
áður en innrás og loftárásir byrj-
uðu.
Óvenju hljóðlátt var í borginni í
gær. Fjölmargar búðir voru lokaðar
og umferðin um götur borgarinnar
minni en alla jafna. Íbúar borgar-
innar flykktust í bakarí og verslan-
ir borgarinnar og á bensínstöðvar
til að birgja sig upp af nauðsynjum.
Fólk keypti helst matvæli sem
hægt er að geyma lengi án þess að
þau skemmist.
„Dauðinn kemur, sama hvar þú
ert,“ sagði Lamia’a Kazem Mo-
hammed, húsmóðir í Bagdad. „Ég
fer ekkert þegar sprengjurnar
byrja að falla. Ég ætla að halda mig
heima við.“
Meðan almenningur bjó sig und-
ir sprengjuregn héldu vopnaðir fé-
lagar í Baath-flokki Saddams
Husseins út á götur Bagdad og
bjuggu sig undir að verjast innrás-
arhernum. ■
FÁIR Á FERLI
Eftir því sem fresturinn sem Banda-
ríkjaforseti gaf Saddam Hussein til
að fara í útlegð styttist fækkaði
þeim sem voru á ferli í Bagdad.
Búa sig undir árás
■ Innrás í Írak/Almenningur ■ Innrás í Írak/
Öryggisráðið
Innrás
hörmuð
SÞ, AP „Ef við byggjum yfir óyggj-
andi upplýsingum sem sýndu að
Bandaríkjunum stafaði bein ógn af
Írak myndum við gera allt í okkar
valdi til að hjálpa,“ sagði Igor
Ivanov, utanríkisráðherra Rúss-
lands, á fundi í öryggisráði Sam-
einuðu þjóðanna.
Ivanov og starfsbræður hans
frá Frakklandi og Þýskalandi
sögðu engar sannanir fyrir því að
heiminum stafaði hætta af Írak.
Þeir ítrekuðu allir andstöðu landa
sinna við innrás í Írak. Fundurinn
var haldinn að beiðni Frakka. ■