Fréttablaðið - 20.03.2003, Síða 22
Umsjónarmaður Ósk-arsverðlaunahátíðar-
innar í ár, Gil Cates, hefur
bannað þeim leikurum
sem eiga að kynna á
hátíðinni að mótmæla
stríði. Hann segist þó
ómögulega geta bannað
sigurvegurunum sem
taka á móti styttum að
segja það sem þeir
vilja. Sigurvegararnir
fá þó aðeins 45 sekúndur
til þess að flytja
þakkarræður sínar.
Undirbúnings-vinnan fyrir
Óskarsverðlaun-
in er mikil
vinna fyrir til-
nefnda leikara.
Þessu hefur
Renée Zellweger kom-
ist að síðustu tvær vikur. Hún seg-
ist hafa klæðst í
meira en 40 kjóla
og farið í fleiri við-
töl en nokkru sinni
fyrr. Hún segist
vera orðin hund-
leið á því að tala
um sjálfa sig og
bara tala yfirleitt.
Rokksveitin System of a Downhefur gert nýtt myndband þar
sem stríðsátökum gegn Írak er
mótmælt harkalega. Myndbandið
er við lagið „Boom!“ og er einmitt
gert af heimildarmyndamanninum
Michael Moore, sem tilnefndur er
til Óskarsverðlauna í ár. Mynd-
bandið var frumsýnt á MTV2-sjón-
varpsstöðinni í Bandaríkjunum á
þriðjudag. Í myndbandinu sjást
klippur frá fjöldamótmælum sem
fóru fram víðs vegar um heiminn
þann 15. febrúar síðastliðinn.
Einnig eru teiknaðar myndir af
Tony Blair, Saddam Hussein,
George W. Bush og Osama bin
Laden þar sem þeir sitja á flug-
skeytum. Með myndbandinu vill
sveitin sýna bandarísku þjóðinni
hversu fjölmenn mótmælin voru
en samkvæmt þeim var lítið sem
ekkert fjallað um þau í fjölmiðlum
þar í landi.
Heimildarmyndamaðurinn og rit-höfundurinn Michael Moore
heldur því fram að hann geti ekki
unnið Óskarsverðlaun þar sem
brögð séu í tafli. Mynd hans
„Bowling for Columbine“ er til-
nefnd í flokki heimildamynda og
er þeim sem kjósa skylt að sjá all-
ar heimildamyndirnar áður en
hægt er að kjósa. Fáir hafa þó séð
frönsku myndina sem tilnefnd er
og óttast Moore því að aðeins sér-
vitrir kvikmyndagagnrýnendur fái
skorið úr um hver fái Óskarinn.
Moore reyndi hvað hann gat til
þess að koma sinni mynd og þeirri
frönsku í almenna sýningu en fékk
synjun.
Sjónvarpsmaðurinn Tony Wilson,sem myndin „24 Hour Party
People“ fjallaði um, þurfti að biðja
áhorfendur sína afsökunar eftir að
hafa notað ljótt fjögurra stafa orð í
beinni útsendingu. Fyrrum Fact-
ory-forstjórinn missti sig víst lítil-
lega yfir kvikmyndavélafólkinu og
gerði sér enga grein fyrir því að
hann væri í beinni. Granada-sjón-
varpsstöðinni barst fjöldi kvartana
og mætti Wilson ekki í næstu út-
sendingu á eftir. Daginn eftir baðst
hann svo afsökunar.
Slitnað hefur upp úr áralöngumvinskap Michael Jackson og
Elizabeth Taylor.
Poppkóngurinn
föli sýndi henni
víst fádæma dóna-
skap þegar hann
bað hana um að
heimsækja sig í
Neverland, búgarð
sinn, en var svo
ekki á staðnum þegar hún mætti.
Næst þegar þau hittust rifust þau
heiftarlega og hafa þau ekki talað
saman síðan. Jackson mætti t.d.
ekki í 71 árs afmæli leikkonunnar í
síðasta mánuði.
22 20. mars 2003 FIMMTUDAGUR
Mér finnst þrælmerkilegt hver-su margir síðrokkarar hafa til-
einkað sér kántrískotna tóna á sein-
ni árum. Þannig hafa sumir þeirra,
eins og Wild Oldham (sem gefur út
undir nafninu Bonnie „Prince“
Billy) sökkt sér algjörlega í þá með
frábærum árangri. Sá piltur er án
efa bjartasta von kántrísins í dag.
Þessa sunnudagsslóð hefur eins
manns sveitin Smog, mönnuð af Bill
Callahan, ákveðið að rölta líka. Rifn-
ir rafmagnsgítarar látnir víkja fyr-
ir órafmögnuðum eða myndarleg-
um „slide“-gítarstrokum og þægi-
legheitin í hávegum höfð.
Þetta gefur Smog enn blíðara
viðmót og hentar einsleitri tónlist
Callahan vel. Helsta breytingin er
sú að flutningurinn virðist öruggari
en Callahan er kominn ansi langt
frá þeim brothætta hljóm sem ein-
kenndi fyrri plötur. Bæði í söng og
hljóðfæraleik.
Hann virðist líka verða betri
lagasmiður með hverri plötu. Hér er
að finna nokkur stórfín lög, nefni
„Ambition“ og „Our Anniversary“
sem dæmi.
Hér segir hann skilið við alla
depurð og hljómar nokkuð ham-
ingjusamur á þessari skífu. Útkom-
an er afbragðs teplata fyrir friðar-
sinna. Inn um nefið, út um munninn.
Birgir Örn Steinarsson
Umfjölluntónlist
Gott að einhver
er friðsamlegur
SMOG: Supper
LORD OF THE... bi. 12 kl. 4 og 4 LÚXUSSPY KIDS 2 kl. 3.45 og 5.50
GANGS OF NEW YORK b.i.16 kl. 8
THE RING kl. 8 og 10.10 bi. 16 ára
SKÓGARLÍF 2 m/ísl.tali kl. 4
TWO WEEKS NOTICE 5.50, 8 og 10.10
TRAPPED kl. 5.50, 8, 10.10
GULLPLÁNETAN kl. 4
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.20
Sýnd í lúxus kl. 8 og 10.20
kl. 10CATCH ME IF YOU CAN
kl. 5.50, 8 og 10.10LILJA 4-EVER
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20
kl. 6, 8 og 10NÓI ALBINÓI MAN WITHOUT A PAST kl. 6 og 8
NORRÆNIR BÍÓDAGAR
Sýnd kl. 5.15, 8 og 10.10 bi. 12 ára
Sýnd í lúxus kl. 5.15 og 8
Sýnd kl. 8
Sýnd í lúxus kl. 8
Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.20 bi. 16 ára
THUNDERPANTS kl. 4 og 6
4 og 6DIDDA OG DAUÐI KÖTTURINN
Sýnd kl. 6 og 9
CHICAGO bi. 12 ára kl. 8 og 10.20
Vísindaskáldsagan „Solaris“ erlíklega þekktust fyrir deilur
um afturenda aðalleikarans Geor-
ge Clooney. Leikarinn hrjúfi sést
sprikla um á rasskinnunum einum
saman í myndinni og fór það svo
fyrir brjóstið á kvikmyndagagn-
rýnendum í Bretlandi að þeir
bönnuðu myndina börnum. Kan-
arnir þykjast vera frjálslyndari í
þessum efnum. Þeir kærðu niður-
stöðu eftirlitsins og fengu niður-
stöðunni breytt. Rasskinnar leik-
arans voru víst það mikilvægar
fyrir „listræna tjáningu“ Steven
Soderbergh að hann þvertók fyrir
það að klippa þær út, eða á maður
að segja „af“?
Þetta er í annað skiptið sem
saga úkraínska vísindaskáld-
sagnahöfundarins Stanislaw Lem
er kvikmynduð. Bókin var gefin
út árið 1961 en fyrri kvikmyndin
gerð 11 árum síðar af rússneska
leikstjóranum Andrei Tarkovskí.
Þá hét hún „Solyaris“ á frummál-
inu.
Sagan fjallar um sjávarplánet-
una Solaris sem vísindamenn
jarðarinnar telji að geymi hugs-
anlega líf. Þeir telja að haf plánet-
unnar sé í raun ein stór vitsmuna-
vera sem hafi heila er starfi líkt
og heilar teygjudýra. Hafið virð-
ist að minnsta kosti geta fram-
kallað form og myndir sem gefa
til kynna að um vitsmunalegt líf
sé að ræða. Allar tilraunir vís-
indamannanna til að ná sambandi
við lífveruna hafa þó mistekist.
Þegar vísindamaðurinn Chris
Kelvin (George Clooney) er sendur
til geimstöðvarinnar sem er á spor-
braut um plánetuna til þess að
rannsaka dularfullan dauða yfir-
mannsins fær hann heimsókn frá
manneskju er ætti ekki að vera til.
Er þetta plánetan að reyna ná sam-
skiptum, eða er hún að verja sig?
Sagan er ein af nokkrum sem
Lem skrifaði um það þegar mann-
veran reynir að ná samskiptum við
vitsmunaveru af öðrum toga.
Fyrri myndin studdist við sögu
Lem en útgáfa Soderbergh þykir
fylgja henni betur eftir. Hins veg-
ar virtust margir gagnrýnendur á
því máli að fyrri myndin væri
jafnvel betri, en það er önnur saga.
biggi@frettabladid.is
■ KVIKMYNDIRFréttiraf fólki
Ævintýrið um Öskubusku er sígiltog við höfum alltaf þurft á
svona draumórum að halda og vonin
um að óskir geti ræst er ómissandi.
Ekki síst á kosninga- og stríðsári.
Það er því engin sérstök ástæða
til þess að amast við því að
Hollywood taki söguna upp á sína
arma og matreiði hana ofan í okkur
með vænni slettu af bleiku glassúri.
Maid in Manhattan er vitaskuld ger-
sneydd öllum frumleika og kemur
aldrei á óvart. Það kemur hins vegar
ekki að sök þar sem maður þyrfti að
vera klepptækur ef maður gerði slík-
ar kröfur til rómantískrar gaman-
myndar með Jennifer Lopez í aðal-
hlutverki.
Myndin verður aldrei leiðinleg,
sem er stór framför frá síðustu
tveimur myndum latíngellunnar,
The Wedding Planner og Angel Eyes.
Handritshöfundarnir og leikstjórinn
missa þó alveg tökin á froðunni í lok-
in og hún flæðir hressilega yfir
bakka sína. Annars má vel una við
þessa mynd. Lopez er gullfalleg, eins
og venjulega, Ralph Fiennes er mik-
ið sjarmatröll og þeir Bob Hoskins
og Stanley Tucci klikka ekki í
skemmtilegum aukahlutverkum. Þá
stelur Natasha Richardson ófáum
senum í dásamlega ýktri útgáfu af
vondu stjúpsysturinni.
Þórarinn Þórarinsson
Umfjöllunkvikmynd
Voða sætt
allt saman
MAID IN MANHATTAN
Leikstjóri: Wayne Wang.
Leikarar: Jennifer Lopez, Ralph Fiennes.
DÓMAR Í ERLENDUM MIÐLUM:
Internet Movie Database - 6.5 / 10
Rottentomatoes.com - 64% = Fresh
Entertainment Weekly - C
Los Angeles Times - 3 1/2 stjarna
AÐRAR FRUMSÝNINGAR
UM HELGINA:
8 Femmes
Final Destination 2
The Hunted
Clooney
í geimdrama
Á morgun verður frumsýnd nýjasta mynd leikstjórans Steven Soderbergh,
„Solaris“. Myndin er endurgerð rússnesku myndarinnar „Solyaris“ frá árinu 1972.