Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.06.2003, Qupperneq 1

Fréttablaðið - 16.06.2003, Qupperneq 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500 Tónlist 34 Leikhús 34 Myndlist 34 Bíó 36 Íþróttir 14 Sjónvarp 38 KVÖLDIÐ Í KVÖLD PERSÓNAN Á leið austur á Hérað MÁNUDAGUR 116. júní 2003 – 133. tölublað – 3. árgangur bls. 26 TÓNLIST NoFx heldur tónleika á Gauknum bls. 16 STA Ð R EY N D UM MEST LESNA DAGBLAÐIÐ Samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup í mars/apríl 2003 22,1% 52,3% 61,7% FR ÉT TA B LA Ð IÐ M O R G U N B LA Ð IÐ D V Fundað um hvalveiðar FUNDUR Ársfundur Alþjóðahval- veiðiráðsins hefst í Berlín í dag. Ís- lensk stjórnvöld kynna þar hug- myndir sínar um hvalveiðar í vís- indaskyni. Búist er við átökum um þær hugmyndir. Karlmennskukvöld Femínistafélagsins FUNDUR Femínista- og karlahópur Femínistafélags Íslands stendur fyrir karlmennskukvöldi á Grand Rokk. Fjallað verður um karl- mennsku í auglýsingum, sjónvarpi og í hernum, kynlífskaup karla og karlmennsku og húmor. Dagskráin hefst klukkan 19. Trabant á Grand Rokk TÓNLEIKAR Popprokk sveitin Trabant ætlar að hita upp fyrir þjóðhátíðar- daginn í kvöld á Grand Rokk. Sveit- in hefur verið að geta sér gott orð á tónleikum eins og áhugasamir komast að í kvöld. Húsið opnar kl. 22:00 og kostar 500 krónur inn. Dregið í bikarnum FÓTBOLTI Dregið verður í 16 liða úr- slit bikarkeppni karla og átta liða úrslit bikarkeppni kvenna á hádegi. Öll lið efstu deildar karla komust áfram úr 32 liða úrslitum, fimm 1. deildarlið og eitt ungmennalið. FÉLAGSMÁL „Krakkarnir stóðu sig alveg frábærlega vel,“ segir Árni Salómonsson, leiðbeinandi í ung- lingastarfi Sjálfsbjargar, eftir maraþonferð unglinga í unglinga- starfi Sjálfsbjargar á rafdrifnum farartækjum frá Akranesi til Reykjavíkur. Ákveðnir byrjunarörðugleikar komu fram þar sem tvö farartæki biluðu í upphafi maraþonferðar- innar, en þau vandamál voru leyst með þrautseigju og komu krakkarnir þremur korterum fyrr til Reykjavíkur en gert hafði verið ráð fyrir, að sögn Árna. Söfnun fylgdi maraþonferð- inni. Tilgangurinn með henni er að safna peningum upp í ferð hreyfihamlaðra unglinga til Sví- þjóðar á næsta ári. „Í ár er líka Evrópuár fatlaðra og gaman að gera eitthvað jákvætt og skemmtilegt af því tilefni,“ bætir Árni við. Ekki er vitað hversu mikið hefur safnast þar sem bilun kom upp í tölvubúnaði Símans sem heldur utan um þær upplýsingar. Söfnunarsíminn er þó í góðu lagi og verður hann opinn að minnsta kosti út mánuðinn. ■ UNGLINGAR Í SJÁLFSBJÖRG Unglingarnir að koma til Reykjavíkur eftir tveggja daga maraþonferð í rafdrifn- um farartækjum. Söfnun hreyfihamlaðra unglinga: Maraþonferð í hjólastól HVALVEIÐAR Viðbúið er að áætlun ís- lenskra stjórnvalda um hvalveiðar í vísindaskyni verði andmælt á fundi Alþjóðahvalveiðiráðsins sem hefst í Berlín í dag. Nokkur aðild- arríki eru alfarið á móti slíkum veiðum og enn eru nokkur lönd sem eru andvíg aðild Íslands að ráðinu vegna fyrirvarans við banni við hvalveiðum. Stefán Ásmundsson, formaður íslensku sendinefndarinnar á fund- inum, segir viðbúið að sum ríki lýsi andstöðu sinni við áætlunina en það eigi þó alls ekki við um öll rík- in. „Við höfum þegar fundið að ýmis ríki eru mjög ánægð með áætlunina, sérstaklega með rann- sóknir sem snúa að því að skoða hlutverk hvala í vistkerfinu og samskipti þeirra við fiskistofna.“ „Það sem við höfum sérstaklega áhuga á í því sambandi er umfjöll- un vísindanefndarinnar,“ segir Stefán og leggur áherslu á að fá fram faglega umfjöllun um málið. „Auðvitað á það til læðast pólitík inn í vísindanefndina eins og við þekkjum,“ segir hann en telur um- fjöllunina þar samt til góðs. „Um- ræða í Hvalveiðiráðinu sjálfu um vísindaveiðar skipta okkur svo ekki endilega öllu máli.“ Líklegt er að sú umræða fari fram á miðviku- dag, Stefán segir þó möguleika á því að sú umræða frestist fram á fimmtudag, síðasta dag ársfundar- ins. „Ég geri ráð fyrir að einhverjir muni ítreka afstöðu sína vegna að- ildarmála,“ segir Stefán en á ekki von á því að það hafi nokkur áhrif á stöðu Íslands. „Meirihluti aðild- arríkja lítur á okkur sem aðila. Í ljósi þess að ríki eins og Bandarík- in, sem stóðu allan tímann gegn að- ild okkar, líta á okkur sem aðila og styðja okkur sem slíka er það stór ástæða fyrir því að ég býst ekki við að neinn taki það upp. Ég geri eng- an veginn ráð fyrir því að slík til- laga ætti möguleika að ná fram að ganga,“ segir hann aðspurður um möguleika á tillögu þess efnis að Íslandi verði vikið úr Alþjóðahval- veiðiráðinu. Talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytisins var spurð- ur út í stuðning við slíka tillögu á blaðamannafundi fyrir helgi. Hann gat ekki svarað því en lýsti þeirri skoðun Bandaríkjastjórnar að Ís- land væri fullgildur aðili. brynjolfur@frettabladid.is Vísindaveiðar í brennidepli SÍLDARLÖNDUNNorsk-íslenska síldin hefur nú veiðst í ís-lensku lögsögunni í fyrsta skipti í fimm ár. Síldveiði: Fimm ára bið lokið SÍLD Íslensk skip hafa síðustu daga veitt norsk-íslensku síldina innan íslensku lögsögunnar í fyrsta skipti í fimm ár. „Veiðin innan íslensku lögsög- unnar hefur nú eitthvað farið minnkandi. Það er líklegt að það þurfi að leita aftur inn í smugu,“ segir Gunnþór Ingvason, hjá Síld- arvinnslunni á Neskaupstað. Að sögn Gunnþórs hefur síld- veiðin í ár gengið mjög vel, en skip hafa ekki getað landað í Nor- egi eins og undanfarin ár þar sem samningar eru ekki lengur í gildi. „Norðmenn hafa ekki viljað taka á móti skipunum svo þau hafa þurft að sigla langan veg heim. Það er því er meira sem berst á land hér heima núna,“ segir Gunnþór. ■ HUGAÐ AÐ HESTUM Þessir ungu krakkar gáfu hestunum í Árbæjarsafni hey þegar ljósmyndara Fréttablaðsins bar að garði. Heimsóknir í safnið færast í aukana og á þjóðhátíðardaginn fá gestir sem mæta í þjóðbúningi frítt inn. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T                 !"   # $%# # &' ##(&   fyrsti bíllinn ● smurning ▲ SÍÐUR 12-13 bílar o.fl. Finnur ennþá drossíulyktina Guðfinnur bílasali: Nokkur aðildarríki Alþjóðahvalveiðiráðsins eru líkleg til að andmæla áætlun Íslands um hvalveiðar í vísindaskyni. Formaður íslensku sendi- nefndarinnar segist hafa orðið var við stuðning við áætlunina. Fæðingarorlof: Karlar fá mun meira borgað FÆÐINGARORLOF Meðalgreiðslur til karlmanna í fæðingarorlofi eru um hundrað þúsund krónum hærri en meðalgreiðslur til kven- na. Konur fengu að meðaltali greiddar 152.000 krónur á mánuði meðan þær voru í fæðingarorlofi. Karlar fengu hins vegar 254.000 krónur. Það hefur áhrif á þetta að mun algengara er að konur á barneignaaldri séu í hlutastarfi heldur en gerist hjá körlum. Ein af hverjum hundrað konum fengu hálfa milljón eða meira á mánuði meðan þær voru í fæðing- arorlofi. Einn af hverjum ellefu körlum voru með hálfa milljón eða meira á mánuði. ■ REYKJAVÍK Hægviðri og skýjað, en vaxandi austanátt, 10-15 m/s. Hiti 8 til 15 stig. VEÐRIÐ Í DAG + + VINDUR ÚRKOMA HITI Ísafjörður 3-8 Rigning 9 Akureyri 3-8 Rigning 9 Egilsstaðir 3-8 Skúrir 9 Vestmannaeyjar 10-18 Súld 12 ➜ ➜ ➜ ➜ + +

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.