Fréttablaðið - 16.06.2003, Síða 2
2 16. júní 2003 MÁNUDAGUR
„Nei, tvo silunga í hendi“
Veiði hófst í Elliðaánum í gær. Þórólfur Árnason,
borgarstjóri, opnaði ána í fyrsta sinn.
Spurningdagsins
Þórólfur, fórstu heim með
öngulinn í rassinum?
LANDSÍMINN „Lögum samkvæmt
verður farið í endurkröfu á fénu.
Það tekur tíma að rekja hversu há
fjárhæðin er en það er alveg ljóst
að við munum leggja áherslu á fá
hana til baka með viðeigandi vöxt-
um og dráttarvöxtum,“ segir
Heiðrún Jónsdóttir, upplýsingafull-
trúi Landsímans. Um 130 milljónir
af fénu sem Sveinbjörn Kristjáns-
son, fyrrum aðalgjaldkeri Símans,
dró að sér og lagði inn á banka-
reikning Alvöru lífsins runnu í
rekstur Íslenska sjónvarpsfélags-
ins á árunum 1999 til 2001.
Nýir fjárfestar voru fengnir að
Íslenska sjónvarpsfélaginu 2001
þegar fjárhagur þess var mjög slæ-
mur. Ljóst þykir að Kristján Ra.
Kristjánsson og Árni Þór Vigfús-
son hafi fjármagnað þátttöku sína í
Íslenska sjónvarpsfélaginu með fé
frá Landsímanum.
Kristján Geirsson, fram-
kvæmdastjóri Íslenska útvarpsfé-
lagsins, sagði við Fréttastofu Út-
varps á laugardag að félagið ætti
ekki óuppgert við neinn vegna
málsins. Hluti fjárins hefði verið
endurgreiddur. ■
NÝR FORSÆTISRÁÐHERRA LÍBÝU
Leiðtogi Líbýu, Muammar
Gaddafi, hefur ákveðið að skipta
um forsætisráðherra í landinu,
en efnahagur landsins þarfnast
endurbóta. Nýi forsætisráðherr-
ann er hagfræðingur að mennt og
bindur Gaddafi vonir við að hon-
um takist að endurreisa efnahag
landsins.
UMFERÐASLYS Í ÚGANDA
Átján manns létu lífið þegar lítill
strætisvagn keyrði út í mýri í
Úganda. Einungis ein kona og
barn komust lífs af úr slysinu, en
farþegarnir lokuðust inni í vagn-
inum þegar hann sökk í mýrina.
Fleiri voru í vagninum en leyfi-
legt er. Mjög algengt er í Úganda
að vagnarnir séu ofhlaðnir fólki.
JAFNRÉTTI „Við erum að vinna
greinargerð til að skila andsvari
við greinargerð Flugleiða. Við
höfum fengið gríðarleg viðbrögð
frá almenningi. Fólk er hneykslað
og afskaplega
hlynnt því sem
við erum að
gera,“ segir Þor-
björg Inga Jóns-
dóttir, formaður
Kvenréttindafé-
lags Íslands, um
stöðu kærumáls
félagsins á
hendur Flugleiðum. Kvenrétt-
indafélagið kærði flugfélagið til
kærunefndar jafnréttismála
vegna auglýsinga Flugleiða sem
félagsmenn telja niðurlægjandi
fyrir íslenskar konur. Þar er vísað
til auglýsinga á borð við Dirty
Weekend og One Night Stand.
Flugleiðir fengu lögfræðistofuna
Logos til að svara kærunni. Ítar-
leg greinargerð Flugleiða vegna
málsins er nú til umsagnar Kven-
réttindafélagsins sem hefur frest
til 30. júní að svara.
Mál þetta hefur vakið athygli
erlendra fjölmiðla. Meðal annars
tók BBC það upp. ■
VARNARMÁL „Það eru almenn við-
horf um varnar- og öryggishags-
muni Íslendinga sem ráða ferð-
inni,“ segir Jónína Bjartmarz,
varaformaður utanríkismála-
nefndar Alþingis og þingmaður
Framsóknarflokks. Hún varar við
því að dregið verði úr vörnum þó
menn sjái ekki fyrir beinar ógnir
eins og þær sem landsmenn stóðu
frammi fyrir á tímum Kalda
stríðsins. Nýjar hættur steðji að.
„Við getum litið aftur til 11. sept-
ember. Það sá enginn þá ógn og
þær hörmungar fyrir. Við verðum
því að hafa trú-
verðugar varn-
ir.“
„Staðreyndin
er sú að það þarf
að fara fleiri
þúsund kíló-
metra, eiginlega
um hálfan hnött-
inn, til að kom-
ast til ríkja sem
ekki eru í ýmis
konar pólitísk-
um, efnahags-
legum eða jafn-
vel hernaðarleg-
um bandalögum
með Íslandi,“
segir Steingrímur J. Sigfússon,
formaður Vinstri-grænna. „Þess
vegna spyr maður sig hvaðan sú
ógn sem kallar á viðveru hersins
stafi. Menn nefna helst til sögunn-
ar hryðjuverk og skipulagða
glæpastarfsemi. Þeirri ógn verj-
ast menn ekki með herstöðvum.“
„Allar þjóðir í heiminum telja
sig þurfa á ákveðnum grunnvörn-
um að halda gegn fyrirséðum og
ófyrirséðum ógnum,“ segir Guð-
mundur Árni Stefánsson, fulltrúi
Samfylkingar í utanríkismála-
nefnd. „Við lifum því miður í
óstöðugum heimi. Þó það sé frið-
vænlegt í okkar heimshluta um
þessar mundir og verði vonandi
áfram er erfitt að spá fyrir um
framtíðina.“ Hann segir að í raun
megi lýsa afstöðunni með enska
orðtakinu „better save than
sorry“, það eigi frekar að halda
uppi vörnum en taka áhættuna á
því að ekkert gerist.
Guðlaugur Þór Þórðarson,
varamaður Sjálfstæðisflokks í
utanríkismálanefnd, segir að
málaflokkar verði ekki mikið
mikilvægari en öryggismál. Þar
sé ekki um neina skammtíma-
hagsmuni að ræða. „Það er ekki
verið að hugsa tvo daga fram í
tímann. Menn hljóta að hugsa
þetta í lengra samhengi.“ Hann
segir að þó ógnir kalda stríðsins
eigi ekki lengur við horfi menn
upp á nýjar og jafnvel hættulegri
ógnir, til dæmis í formi hryðju-
verka. „Ég ætla ekkert að fara að
leggja út af því að það geti hitt og
þetta gerst. Það sem ég vil hins
vegar sjá er að öryggis- og varn-
armál séu vel tryggð. Þar er ég
ekki reiðubúinn að taka neina
áhættu.“
brynjolfur@frettabladid.is
SÖLUMIÐSTÖÐ
HRAÐFRYSTIHÚSANNA
Erlendir fjárfelstar vilja kaupa fjórðungs-
hlut í Sölumiðstöð Hraðfrystihúsanna.
Útlendingar vilja SH:
Styrkir
félagið
SJÁVARÚTVEGUR Tvö erlend fyrir-
tæki hafa sýnt áhuga á að kaupa
fjórðungshlut í Sölumiðstöð Hrað-
frystihúsanna. Annað er kanadíska
sjávarútvegsfyrirtækið Clearwa-
ter Fine Food og hitt er nýsjá-
lenska fyrirtækið Sanford.
„Ég held að ef að þessir aðilar
kæmu inn myndi það styrkja fé-
lagið,“ segir Róbert Guðfinnsson,
formaður stjórnar SH. „Félagið
hefði stærri grunn til að byggja á.“
Róbert telur erlendu fjárfestana
ætla að nota SH sem grunn fyrir
stórt alþjóðlegt fyrirtæki í sölu- og
markaðssetningu á fiski. ■
HEYRNARLAUSIR KANDÍDATAR
Þrír heyrnarlausir kandídatar
voru útskrifaðir frá Kennarahá-
skóla Íslands á laugardag, allar
með B.Ed. próf af grunnskóla-
braut. Þær eru fyrstu heyrnar-
lausu kandídatarnir sem braut-
skráðir eru frá íslenskum há-
skóla.
ÍRAK
Bandarískir hermenn í skriðdrekum berja
niður andspyrnu.
Bandaríkjaher í Írak:
Gera vopn
upptæk
ÍRAK, AP Bandarískir hermenn réð-
ust inn á heimili hjá meintum and-
spyrnumönnum í Írak og gerðu
vopn upptæk. Aðgerðin var gerð í
þeim tilgangi að uppræta and-
spyrnuna í Írak, sem hefur verið
að færast í aukana undanfarið.
Hermennirnir réðust á fjölda
bygginga og gerðu upptækt tölu-
vert magn ólöglegra vopna,
sprengja og ólöglegra samskipta-
tækja.
Töluvert mannfall hefur orðið í
Írak undanfarið og hefur mest
farið fyrir mannfalli í röðum fylg-
ismanna Saddams Hússeins. ■
130 milljónir úr Símanum runnu inn í Skjá einn:
Síminn vill féð aftur
LANDSÍMINN
Mun leggja fram endurkröfu á þeirri fjár-
hæð sem fyrrum aðalgjaldkeri félagsins
dró að sér, þar á meðal peninga sem
runnu í hlutafjáraukningu Kristjáns Ra. og
Árna Þórs í Íslenska sjónvarpsfélaginu.
■ Afríka
Kæra á Flugleiðir vegna meintra niðurlægjandi auglýsinga:
Kvenréttindafélagið
undirbýr andsvar
„Við höfum
fengið gríðar-
leg viðbrögð
frá almenn-
ingi
„Þó það
sé friðvænlegt
í okkar
heimshluta
um þessar
mundir og
verði vonandi
áfram er erfitt
að spá fyrir
um framtíð-
ina.
TONY SOPRANO
Í sjónvarpsþættinum The Sopranos
komu íslenskar flugfreyjur við sögu
og voru þar hinar mestu glyðrur.
Almennt öryggi
frekar en bein ógn
Svo virðist sem rök þeirra sem vilja tryggja varnir landsins séu að best sé
að hafa vaðið fyrir neðan sig og taka enga áhættu. Minna var um að við-
mælendur blaðsins bentu á beina hættu sem kallaði á veru varnarliðs.
VARNARLIÐIÐ Á KEFLAVÍKURFLUGVELLI
Framtíð varnarliðsins ræðst væntanlega á næstu vikum.
■ Útskriftir
■ Húsnæðismál
LEIGUMARKAÐUR KANNAÐUR
Árni Magnússon félagsmálaráð-
herra hefur ákveðið að setja á fót
nefnd sem á að skoða leigumark-
að íbúðarhúsnæðis. Sérstaklega á
að meta þörfina fyrir félagslegt
leiguhúsnæði og aðgerðir hins
opinbera og einkaaðila á þeim
vettvangi.
Steinunn Marteinsdóttir:
Þiggur til-
nefningu
BÆJARLISTAMAÐUR Ég þigg þetta
vegna þess að ég vil ekki að það
falli enn frekari rýrð á þennan
gjörning. En þetta verður mér
ekki til neinnar ánægju eins og
málin hafa þróast,“ segir Steinunn
Marteinsdóttir sem ákveðið hefur
að þiggja útnefningu Mosfells-
bæjar sem bæjarlistamaður.
Deilur hafa risið um hvernig
staðið var að útnefningunni og að-
komu bæjarstjóra Mosfellsbæjar
að henni. ■