Fréttablaðið - 16.06.2003, Side 4

Fréttablaðið - 16.06.2003, Side 4
4 16. júní 2003 MÁNUDAGUR Eiga landsmenn rétt á því að vita hvað stóð í bréfi forsætisráðherra til forseta Bandaríkjanna um varnarliðið? Spurning dagsins í dag: Fer David Beckham frá Manchester United? Niðurstöður gærdagsins á www.frett.is 18,8% 81,2% Nei Já Kjörkassinn Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun frétt.is ■ Lottó VIÐSKIPTI Fjöldi gjaldþrota á fyrstu fjórum mánuðum ársins hefur tvöfaldast ef litið er til sama tíma- bils frá fyrir tveimur árum. Á fyrstu fjórum mánuðum ársins 2001 voru gjaldþrotaúrskurðir 212 talsins en í ár eru þeir orðnir 425. Í fyrra voru gjaldþrotaðúr- skurðir á fyrstu fjórum mánuðum ársins 264 talsins og hefur gjald- þrotum því fjölgað um 61% á milli ára. Allt árið í fyrra voru gjald- þrotaútskurðir 939 talsins og svarar því fjöldinn á fyrstu fjór- um mánuðum þessa árs til 45,3% allra gjaldþrota síðasta árs. Þessar tölur koma fram í nýút- komnu fréttabréfi Lánstrausts. Þar segir enn- fremur að fjölgun gjaldþrota á síð- ustu árum sýni að vipskiptabankar og fyrirtæki þurfi að sýna enn meiri aðgæslu í fjár- málaumsýslu en verið hefur. Þar segir svo að ein af ástæðum gjaldþrotahrinunnar sé þar sem kallað er „timburmenn góðærisins“ sem er vísun til þess að bankar og fyrirtæki láni á slík- um tímum fleiri aðilum meira fé en á öðrum tímum. ■ FJÖLDI GJALDÞROTA Ár Gjaldþrot 1998 275 1999 242 2000 276 2001 212 2002 264 2003 425 Sláandi niðurstöður frá Lánstrausti hf.: Gjaldþrot hafa tvöfald- ast á tveimur árum TVÖFALT FLEIRI GJALDÞROTA Gjaldþrotum hafa tvöfaldast á síðustum tveimur árum og eru nú 425. Ungir framsóknarmenn: Kusu nýjan formann FRAMSÓKN Haukur Logi Karlsson var kjörinn formaður Sambands ungra framsóknarmanna á auka- þingi sambandsins sem haldið var á laugardag. Haukur Logi hlaut 65 atkvæði en mótframbjóðandi hans, Egill Arnar Sigurþórsson, hlaut 48 atkvæði. Alls kusu 114, en eitt atkvæði var ógilt. Haukur Logi tekur við for- mannsembættinu af Dagnýju Jónsdóttur sem tekur sæti á þingi. Haukur Logi, sem kemur úr vin- stri armi Framsóknarflokksins, hefur gegnt starfi formanns Fé- lags ungra framsóknarmanna í Reykjavík suður. ■ ÁTTA TEKNIR FYRIR ÖLVUN- ARAKSTUR Átta manns voru handteknir aðfaranótt sunnudags grunaðir um ölvunarakstur. Allir ökumennirnir voru stöðvaðir á tímabilinu frá miðnætti til kl. 7 um gærmorgun. Þetta er frekar yfir meðaltali samkvæmt lög- reglu. TEKINN Á YFIR 140 KÍLÓMETRA HRAÐA Lögreglan í Kópavogi stöðvaði bifreið á Hafnarfjarðar- vegi á laugardagskvöldið á 140 kílómetra hraða á klukkustund. Ökumaðurinn var karlmaður á fer- tugsaldri. Málið er nú í rannsókn. KONA BEINBROTNAÐI VIÐ DJÚPA- LÓNSSAND Kona hrasaði við Djúpalónssand á laugardag með þeim afleiðingum að hún hlaut opið beinbrot. Lögreglunni í Ólafsvík var gert viðvart um klukkan fjögur. Konan var sótt með þyrlu tæpum klukkutíma síðar og flutt til Reykjavíkur. Flutningurinn gekk mjög vel fyr- ir sig. ENGINN MEÐ FIMM RÉTTA Fyrsti vinningur í Lottó gekk ekki út á laugardag þar sem enginn var með fimm tölur réttar og verður hann því tvöfaldur næst. Einn fékk fjórar tölur réttar auk bónustölu og fær sá hinn sami 255 þúsund krónur í sinn hlut. Lottótölurnar voru 2, 13, 18, 26 og 33. Bónustalan var 34. Jókertölur kvöldsins voru 6, 2, 6, 5 og 0. LONDONDERRY Lögreglumenn fjarlægja sprengiefni úr bíl. Norður-Írland: Sprengju- tilræði afstýrt NORÐUR-ÍRLAND, AP Breski herinn aftengdi stóra bílasprengju við Londonderry, sem er næststærs- ta borgin á Norður-Írlandi. Eng- inn hefur lýst yfir ábyrgð á sprengjunni, en lögregla og stjórnmálamenn hafa írska lýð- veldishernum grunaðan. Lögregla kom auga á dular- fulla menn sem keyrðu bílinn á annarri af tveimur brúm sem skilja að kaþólska svæðið við Londonderry og svæði að mestu leyti byggt mótmælendum. Eftir að mennirnir yfirgáfu bílinn fann lögreglan um 250 kíló af sprengi- efni í honum. ■ ÁFENGI Allt að 170% verðmunur er á áfengum drykkjum á veitinga- húsum á höfuðborgarsvæðinu samkvæmt könnun sem Sam- keppnisstofnun gerði um síðustu mánaðamót. Samkvæmt könnun- inni er mestur munur í verði á 6 cl. Bristol Cream sérrý. Dýrast er sérrýglasið á veitingastaðnum Fridays í Smáralind, eða 800 krón- ur. Ódýrast er það á veitinga- staðnum Dong Huang í Hafnar- firði eða 300 krónur. Munurinn tæp 170%. Rúmlega 140% verðmunur er á bjór samkvæmt könnuninni. Carlsberg flöskubjór kostar 290 krónur þar sem hann er ódýrast- ur, á Nings í Hlíðasmára, en 700 krónur á Café Cozy í Austurstræti og Hótel 101 í Reykjavík þar sem hann er dýrastur. Verðbreyting á sterku áfengi hjá veitingahúsum er nokkuð í takt við verðbreytingu ÁTVR. Meðalverðbreyting á bjór er þó ívið lægri hjá veitingahús- unum. Misjafnt er hve mikið veitinga- staðir leggja á áfenga drykki. Samkeppnisstofnun segir það eðlilegt en samkvæmt reglum stofnunarinnar ber þeim sem stunda veitingarekstur að hafa uppi verðskrá á áberandi stað, fyrir framan inngöngudyr, þar sem fram kemur verð á algeng- ustu vöru og þjónustu. Helmingur veitingahúsanna hefur slíka verð- skrá uppi. ■ SJÁVARÚTVEGUR Fyrirtækið Elcon ehf. hefur í samvinnu við nokkra íslenska línuskipstjóra þróað nýja aðferðarfræði og hannað nýjan búnað við stjórnun línuveiða sem gefur notandanum allt aðra mögu- leika við línuveiðar en tíðkast hef- ur hingað til. Þannig verður nú hægt að fylgjast grannt með lín- unni og umhverfi hennar. Með búnaðinum sem hefur verið til reynslu um borð í nokkrum ís- lenskum fiskiskipum geta skip- stjórar fylgst nákvæmlega með því sem gerist undir yfirborði sjávar, en það er gjörbylting frá því sem áður var. Að sögn Árna Marinóssonar þykir búnaðurinn, sem kallast Trax, vera einstakur og hann segir að hann standist væntingar kröfu- hörðustu sjómanna. „Tilgangurinn er fyrst og fremst sá að sýna viðkomandi fljótt og örugg- lega hvar á línu- lögninni fiskur- inn gaf sig,“ seg- ir Árni. U m r æ d d u r búnaður heldur utan um línulögn- ina og ferlar hana inn á skjáinn með myndrænni framsetningu, með upphafsflaggi, millibóls- merkjum og endaflaggi ásamt því að ferla upp línulögnina. Einnig heldur búnaðurinn utan um línudráttinn með því að skrá fjölda króka og fjölda fiska á þann hátt að ferla upp í lit sam- kvæmt þar til gerðum lita kóda og setja feril fram á myndrænan hátt á skjáinn. Þá sýnir búnaður- inn öngla á bjóð og fiska á bjóð og geymir í skrá sem tilheyrir sinni línulögn. „Allar þessar aðgerðir eru ein- faldar í notkun eins og ef lína slitnar þá kemur merki inn á skjá- inn sem gefur það til kynna, ein- nig merki fyrir bjóðaskil svo eitt- hvað sé nefnt,“ segir Árni. Að sögn Árna eru ýmsir mögu- leikar á aukabúnaði í boði eins og botnhörkubúnaður sem lýsir botn- laginu. Með því að ferla upp bæði línulögn og línudrátt er auðveld- lega hægt að sjá hvernig línan kastast, til dæmis ef um straum eða fallaskipti er að ræða. Þeir sem notað hafa búnaðinn segja þetta hafa ómetanlegt gildi. rt@frettabladid.is HAMID KARZAI Forseti Afganistan Uppbygging Afganistan: Seinagangur í kerfinu AFGANISTAN, AP Forseti Afganistan, Hamid Karzai, segir að lítil skil- virkni hægi á vexti landsins í efnahagsmálum. Menn krefjast bóta á stjórnkerfinu, en seina- gangur þar kemur sérstaklega niður á kaupsýslumönnum sem vilja stofna ný fyrirtæki og þurfa að bíða lengi eftir leyfum. Ýmislegt annað hefur staðið hröðum uppgangi í Afganistan fyrir dyrum. Mótmæli hafa verið um landið allt þar sem fólk krefst þess að laun verði hækkuð og útistandandi launaskuldir stjórn- valda verði greiddar. ■ PRAG Tékknesk kona fagnar samþykki tékknesku þjóðarinnar fyrir inngöngu landsins í Evr- ópusambandið. Tékkland: Samþykktu aðild TÉKKLAND, AP Tékkar samþykktu aðild að Evrópusambandinu í þjóðaratkvæðagreiðslu sem lauk á laugardaginn. Rúm 77% þeirra sem kusu sögðu já við Evrópu- sambandinu, en tæp 23% sögðu nei. Kjörsókn var 55% og er því bindandi. Þjóðaratkvæðagreiðsl- an var sú fyrsta sem haldin hefur verið í Tékklandi. Vladimir Spidla, forsætisráð- herra Tékklands, sagði að úrslit kosninganna væru sigur fyrir tékknesku þjóðina. Hann sagði ennfremur að innganga Tékk- lands í Evrópusambandið markaði loksins enda á seinni heimstyrj- öldina og allt sem henni fylgdi í Tékklandi. Aðrir stuðningsmenn inngöngu hafa einnig sagt að fjórtán ára ferð Tékklands frá kommúnisma til vestursins sé loksins lokið. ■ ■ Lögreglufréttir Samkeppnisstofnun kannaði verðlagningu veitingastaða: Mikill verðmunur á áfengum drykkjum SETIÐ AÐ DRYKKJU Mikill munur er á verði áfengra drykkja samkvæmt könnun Samkeppnisstofnunar. Tæknibylting við línuveiðar Skipstjórar og tæknimenn hönnuðu nýjan búnað sem varpar skýru ljósi á það sem gerist neðansjávar við línuveiðar. Tilraunir Elcon á búnaðinum þykja hafa gefið góða raun. „Allar þess- ar aðgerðir er einfaldar í notkun HÁTÆKNIBÚNAÐUR Árni Marinósson selur útbúnað sem gerir skipstjórum á línveiðum auðvelt að sjá það sem gerist undir yfirborði sjávar.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.