Fréttablaðið - 16.06.2003, Side 10
KNATTSPYRNA Íslenska kvenna-
landsliðið í knattspyrnu vann góð-
an sigur á Ungverjalandi í fyrsta
leik þeirra í undankeppni Evrópu-
keppninnar 2005. Lokatölur voru
4-1 Íslandi í vil og voru úrslitin
sanngjörn miðað við gang leiks-
ins. Það verður að segjast að byrj-
unin lofar góðu.
„Ég er ofsalega sátt við sig-
urinn því við vissum nánast ekki
neitt um Ungverjana og gátum lít-
ið spáð í liðið fyrir leikinn,“ sagði
Helena Ólafsdóttir þjálfari
kvennalandsliðsins. „Við höfum
talsvert meiri upplýsingar um
hin liðin í riðlinum þannig að
þessi staða kemur vonandi ekki
upp aftur. Það er erfiðara en að
segja það að renna svona blint í
sjóinn aftur.“
Upplýsingaleysið kom ekki að
sök í þetta sinn því fyrir utan
spretti Ungverja annars lagið
voru íslensku stelpurnar með öll
völd á vellinum meðan þær sköp-
uðu sér fá marktækifæri í leikn-
um.
Mörk Íslands gerðu þær Erla
Hendriksdóttir, Olga Færseth,
Áshildur Helgadóttir og Margrét
Lára Viðarsdóttir en Margrét,
sem er 17 ára, varð þar með
yngst allra til að skora í landsleik
með kvennalandsliðinu. ■
10 16. júní 2003 MÁNUDAGURGolf
Úrval-Úts‡n
Lágmúla 4: 585 4000 • Hlí›asmára: 585 4100 • Keflavík: 420 6000
Akureyri: 460 0600 • Selfossi: 482 1666 og hjá umbo›smönnum um land allt. www.urvalutsyn.is
á mann m.v. 2 fullor›na og 2 börn 2ja - 11 ára
í íbú› m/svefnh. og stofu í 7 nætur.
64.482 kr.*
Sta›grei›sluver›
á mann m.v. 2 í íbú› m/svefnh. og stofu í 7 nætur.
79.970 kr.*
e›a
* Innif.: Flug, flugvallarskattar, gisting m/morgunver›i,
akstur og íslensk fararstjórn. Aukavika skv. ver›lista.
Barnaafsláttur: 30.000 f. börn 2ja - 11 ára.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
RV
2
14
72
06
/2
00
3
Ilianthos Villlage er gullfallegt hótel flar sem snyrtimennska
er í hávegum höf› og fljónusta er fyrsta flokks. Íbú›ir eru
loftkældar og me› öllum flægindum. Á hótelinu er veitinga-
salur, snakkbar, sundlaug og barnalaug. Hóteli› stendur vi›
strönd og er í göngufæri vi› verslanir og veitingasta›i.
Aukavika
Frítt fyrir bör
n
2ja - 11 ára í í
bú›
me› 2 fullor›
num.
VIJAY SINGH
Hann og Jim Furyk léku hvað best á Opna
bandaríska mótinu í golfi.
FÓTBOLTI „Landsbankadeildin fer
að þróast í átt að spánni frá í vor,“
sagði Ásmundur Arnarsson, þjálf-
ari og leikmaður Völsungs, þegar
Fréttablaðið bað hann að spá í
framvindu deildarinnar. Ásmund-
ur lék áður með Fram og Breiða-
bliki í efstu deild en gekk til liðs
við sitt gamla félag á Húsavík í
fyrra.
„Það eru alltaf einhver lið sem
byrja vel en dala þegar líður á.
Við höfum oft séð félag sem er
efst eftir þrjár, fjórar umferðir en
fellur kannski að hausti. Maður
sér kannski KA í því hlutverki
núna. Þeir eru í 2. sæti en ég á
ekki von á að þeir haldi þessu
flugi.“
„Fylkismenn tel ég vera með
öflugasta liðið. Mótið verður ein-
vígi milli Fylkis og KR og ég held
að Fylkir klári þetta. Valur og
Þróttur verða í baráttunni við FH
og Fram um að falla ekki og hugs-
anlega ná upp í miðja deild.“
LANDSBANKADEILD KARLA
Ásmundur Arnarsson telur raunhæft að Framarar stefni á Evrópusæti.
Fer að þróast
í átt að spánni
Ásmundur Arnarsson, þjálfari og leikmaður
Völsungs, telur að Fylkir muni hafa betur í
baráttu við KR um Íslandsmeistaratitilinn.
KVENNALANDSLIÐIÐ
Vissi ekkert um andstæðinginn en það
kom ekki að sök.
RIÐILLINN
Rússland 1 1 0 0 6:0 3 stig
Frakkland 1 1 0 0 4:0 3 stig
Ísland 1 1 0 0 4:1 3 stig
Ungverjar 3 1 0 2 3:8 3 stig
Pólland 2 0 0 2 0:8 0 stig
Stelpurnar okkar ætla sér stóra hluti:
Góð byrjun kvennalandsliðsins
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M