Fréttablaðið - 16.06.2003, Síða 12
bílar o.fl.
Vikulegur blaðauki Fréttablaðsins um al l t sem viðkemur bí lum
Ritstjórn; sími: 515 7500 – netfang: bilar@frettabladid.is. Auglýsingar; sími: 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is. Þjónustuauglýsingar: Gula línan; sími 580 8090 – netfang: auglysingar@gulalinan.is.
Fyrsti Bensinn minn er sá bíll semég sakna mest því honum fylgja
ákveðnar tilfinningar“ segir Guðfinn-
ur Halldórsson bílasali. „Þetta var 180
Bens, ‘55 módelið. Hann var dökk-
brúnn á litinn og æðislega fallegur.
Þetta var auðvitað ódýrasta gerð af
Bens á þessum tíma en engu að síður
Bens.“
Bílinn eignaðist Guðfinnur haustið
1967 þegar hann skipti á honum og
gömlum Willis-jeppa. „Jeppinn var
fyrsti bíllinn sem ég eignaðist en mað-
urinn sem átti Bensinn seldi hann víst
fyrir hey“ segir Guðfinnur og hlær.
Hann saknar jeppans lítið en það er
greinilegt að hann hugsar með hlýju
til gamla Bensins. „Eftir öll þessi ár
get ég ennþá fundið lyktina sem var í
þessum bíl. Það var svona drossíulykt.
Tilfinningin að koma inn í þennan bíl
var einstök.“
Þýskir bílar áttu ekki upp á pall-
borðið hjá ungu kynslóðinni á þessum
árum. „Pabbi átti Mercedes Benz en
vinirnir mínir og félagar voru allir á
amerískum köggum svo maður þótti
auðvitað frekar hallærislegur. Það
breyttist þó snarlega þegar maður
kom út á land því að Bensinn var
hærri en amerísku bílarnir og fór
miklu betur með mann. Þessi bíll
brást mér aldrei.“
Eftir tvö ár seldi Guðfinnur Bens-
inn og keypti sér annan nýrri. Þá varð
ekki aftur snúið. „Ég á enn Bens og
ætla alltaf að eiga Bens. Ef ég verð
blankur þá kaupi ég bara ódýrari
Bens.“ Guðfinnur minnist konu nokk-
urrar sem kom með manni sínum á
bílasöluna til að kaupa fjölskyldubíl.
Eiginmaðurinn vildi ólmur kaupa
Bens en konan var full efasemda.
„Maðurinn fékk sínu fram en þegar
búið var að ganga frá kaupsamningn-
um snýr konan sér að mér og biður
mig í einlægni að segja sér hvaða
ókostir fylgi þessum bíl. Ég svaraði
sem satt er: „Kona góð, það er aðeins
einn galli við Merzedes Benz og hann
er mjög slæmur. Þegar þú kaupir einu
sinni Bens þá getur þú aldrei keypt
neitt annað eftir það.“ Það reyndist
rétt því ég er búin að selja þessum
hjónum þrjá Bensa síðan.“ ■
Guðfinnur Halldórsson bílasali er mikill áhugamaður um bíla og hefur átt marga góðgripi
í gegnum tíðina. Hann minnist með sérstakri hlýju fyrsta Bensins sem hann eignaðist.
Ég get ennþá
fundið drossíulyktina
MERCEDES-BENZ ‘58 MÓDEL
Þennan bíl er verið að bjóða upp til styrktar
verkefninu Þjóð gegn þunglyndi. „Þetta er sams
konar bíll og ég átti. Ég treysti mér því miður
ekki til þess að bjóða í þennan bíl því að hann
fer eflaust á alltof háu verði“ segir Guðfinnur.
GUÐFINNUR HALLDÓRSSON
Guðfinnur ók stoltur um á Bensinum sínum á
meðan félagar hans skröltu eftir þjóðvegunum
á amerískum köggum sem voru hreint ekki
gerðir fyrir íslenskar aðstæður.
Margir hafa farið flatt á því aðsinna ekki reglulegri smurningu
á bílnum. Þeir sem til þekkja segja
það lykilatriði að skipta um olíusíu og
svokallaða loftsíu reglulega. Auk
þess fer illa með bílinn að láta hann
ganga á gamalli olíu. Á smurstöðinni
er ýmislegt annað gert, bílnum til
góða, svo sem að bæta á rúðupiss og
smyrja læsingar. Í bílaskiptum er bíll
sem smurður hefur verið reglulega
og dagbók haldin því til sönnunar,
mun léttari í sölu og jafnvel verð-
mætari.
Í lauslegri könnun um hve mikið
kostar að sinna þessari sjálfsögðu
þjónustu kom fram að verðið er mjög
á svipuðum nótum á þeim smurstöð-
um sem blaðið hafði samaband við.
Miðað var við lág-
marksþjónustu en
fram kom í viðræð-
um okkar við smur-
stöðvareigendur að
mjög algengt er að
skipta einnig um
loftsíur, auk þess
sem olían er mis-
dýr. Ódýrast var að
kaupa lágmark-
þjónustu hjá Véla-
verkstæði Hjalta
Einarssonar í Hafn-
arfirði en þar kost-
ar það hún 3.966
krónur. Verðið hækkar svo í samræmi
við stærð bílsins og hve mikil þjónusta
er keypt. ■
Verð á smurstöðum mjög svipað:
Smyrjið reglulega
VERÐ Á SMURNINGU Á LITLUM
BÍL - 15 SMURSTÖÐVAR Á
HÖFUÐBORGARSVÆÐINU
Smurstöð Esso, Hafnarfirði 4.050.-
Smurstöð HBS, Bíldshöfða 8 4.280.-
Smurstöð Heklu Laugavegi 178 4.824.-
Olís - Smurstöðin, Fosshálsi 1 4.600.-
Olís - Smurstöðin - Melabraut 24 3.966.-
Olís - Smurstöðin, Knarravogi 2 4.384.–
Bifreiðav. Rvk, Bæjarflöt 13 5.400.-
Bílav. Stimpill, Akralind 9 4.466.-
Bæjardekk, Langatanga 1a 4.672.-
Hjólbarðav. Vestub., Ægisíðu 102 4.839.-
Smurstöðin Stórahjalla 2 4.770.-
Smurhöllin Fellsmúla 24 4.636.-
Smurstöð Garðarbæjar 4.405.-
Nesdekk - Smurþj, Suðurst. 4 4.476.-
Bíljöfur, Smiðjuvegi 68-70 3.979.-
Meðalverð 4.516.-
*Athugið að mjög misjafnt er hvað felst í þjónust-
unni og hve vel er farið yfir bílinn. Sumir kanna
rúðupiss og bæta á það en hjá öðrum er ekki
innifalið annað en skipti á olíusíu og olíu. Miðað
er við Póló árgerð 2000 með 1400 vél.
SMURNING
Það fer vel með
hann og heldur -
verðgildi hans ofar.