Fréttablaðið - 16.06.2003, Side 13

Fréttablaðið - 16.06.2003, Side 13
FIMMTUDAGUR 12. júní 2003 Fyrsta bifreiðin sem var byggðmeð aðstoð færibanda var T- módel af Ford árið 1914. Bifreið- in sem er líklega frægasta öku- tæki sem framleitt hefur verið varð fljótt táknræn fyrir fram- sýni Ford sem notaði öll möguleg meðul til að framleiða bílinn með sem minnstum kostnaði. T mód- elið varð samt fljótt þekkt sem traustur og góður bíll. Henry Ford náði fljótt góðum árangri með færibandaframleiðslu sína og innan tíðar var hægt að bjóða T-módelið í „öllum litum svo lengi sem hann er svartur.“ Ástæðan var sú að svart lakkið þornaði mun fyrr en aðrir litir og þannig náðist enn frekari hag- ræðing í framleiðslunni. Henry Ford sjálfur áleit T- módelið hinn fullkomna bíl og vildi engu breyta í hönnun hans þangað til 1927 þegar hlutabréf í Ford fóru að falla í fyrsta sinn. Áður en framleiðslu var loks hætt þann 26. maí árið 1927 hafði Ford selt yfir 15 milljónir bíla af þessari tegund sem kostaði í upp- hafi 40.271 krónu. ■ T-módelið frá Ford var tímanna tákn: Fyrstur framleiddur á færibandi T MÓDEL FORD Sennilegast frægasta ökutæki sem fram- leitt hefur verið. Sumarið er komið og tímiferðalaga því runninn upp. Mikilvægt er að öllum líði vel þegar ekið er eftir þjóðvegum landsins. Einn hængur er þó á. Hávaxnir menn þurfa ósjaldan að gjalda fyrir karlmannlegan vöxt sinn með því að húka bogn- ir og illa haldnir í aftursætum smábíla þar sem lítið er rýmið. Fréttablaðið fór á stúfana með 193 sentimetra í farteskinu og kannaði málið nánar. Bornir voru saman þrír smábílar og þeim gefin einkunn. ■ Hávaxnir karlmenn í aftursætum smábíla: Húka bognir og illa haldnir NISSAN MICRA, ÁRGERÐ 1997 Inngangur í lagi. Gott rými. Get horft út um gluggann án þess að þurfa að beygja mig. Með því betra sem ég hef kynnst. Þrjár og hálf stjarna. Þessi fær mitt atkvæði. PEUGEOT 206, ÁRGERÐ 1999 Nokkuð auðvelt að setjast inn. Mætti samt vera hærra til lofts. Þarf að beygja mig til að horfa út um gluggann. Hef þó kynnst því verra. Tvær stjörnur af fjórum mögulegum. WW POLO, ÁRGERÐ 1998 Ágætt að komast inn og út. Mætti þó vera hærra til lofts. Hæð mín fær ekki almenni- lega að njóta sín. Tvær stjörnur. HHHh HH HH

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.