Fréttablaðið - 16.06.2003, Síða 14
16. júní 2003 MÁNUDAGUR
■ ■ FUNDIR
17.17 Landlæknisembættið gengst
fyrir almennum borgarafundi í Vetrar-
garðinum í Smáralind. Kynnt verður
fræðslu- og forvarnaverkefnið Þjóð gegn
þunglyndi - fækkum sjálfsvígum, sem er
samstarfsverkefni á vegum Landlæknis-
embættisins.
■ ■ TÓNLIST
20.30 Tónleikar tIl heiðurs Guð-
mundi Steingrímssyni trommuleikara í
Hafnarborg en hann á 60 ára starfsaf-
mæli á árinu.
Píanótónleikar með Tómasi Guðna
Eggertssyni í Salnum, Kópavogi. Tón-
leikana tileinkar Tómas lærifeðrum sín-
um Birni R. Einarssyni og Guðmundi
Norðdahl.
Dansleikur með Jagúar í Leikhús-
kjallaranum.
Hljómsveitin Trabant leikur á Grand
Rokk.
Tónleikar á Gauknum með banda-
rísku pönkhljómsveitinni NoFx. Þeim til
halds, trausts og upphitunnar verða
Brain Police og Innvortis.
Hljómsveitin Ber ásamt nokkrum
þekktum gestum verður með 16 ára
sveitaball í Festi Grindavík.
■ ■ SKEMMTANIR
11.00 Börn, starfsfólk og foreldrar í
leikskólunum Hálsaborg, Hálsakoti,
Jöklaborg, Seljaborg og Seljakoti í
Seljahverfi halda hátíð í tilefni þjóðhá-
tíðardagsins. Hátíðin hefst með skrúð-
göngu frá Hálsaborg og Hálsakoti.
■ ■ LEIKLIST
20.00 Óperustúdíó Austurlands
flytur Don Giovanni eftir W. A. Mozart í
Borgarleikhúsinu. Verkið er flutt á
Stórasviðinu.
■ ■ SÝNINGAR
Á Listasafni Reykjarvíkur - Hafn-
arhúsinu standa sýningarnar Humar
eða frægð - Smekkleysa í 16 ár, Inn-
sýn í alþjóðlega samtímalist á Ís-
landi og Erró Stríð.
Höggmyndalistamaðurinn Teddi
(Magnús Th Magnússon) verður með
sýningu á viðarhöggmyndum á vinnu-
stofu sinni til 1. júlí. Vinnustofan er á
horni Skúlagötu og Klapparstígs.
Sýningin Reykjavík í hers höndum í
Íslenska Stríðsárasafninu á Reyðarfirði
hún er sett upp af Borgarskjalasafni
Reykjavíkur og Þór Whitehead sagn-
fræðingi í samvinnu við Íslenska Stríðs-
árasafnið. Á sýningunni getur nú að líta
mun meira af stríðsminjum en áður
sem koma frá Íslenska stríðsárasafninu.
Ljósmyndir Yann Arthus-Bertrand
eru sýndar á Austurvelli. Sýningin ber
nafnið Jörðin séð frá Himni og hefur
verið sýnd víðsvegar um heiminn. Á
sama tíma verður upplýsingamiðstöð að
Kirkjustræti 12 (Skjaldbreið) þar sem sjá
má kvikmynd um tilurð verkefnisins.
Sýning á verkum Kristjáns Davíðs-
sonar og Þórs Vigfússonar í Listasafni
Árnesinga, Austurmörk 21 í Hveragerði.
Sýningin stendur til 31. júlí.
Gunnar Karl Gunnlaugsson sýnir
ljósmyndir af um það bil 60 brúm á
þjóðvegi 1 í Menningarmiðstöðinni
Gerðubergi.
hvað?hvar?hvenær?
13 14 15 16 17 18 19
JÚNÍ
Mánudagur