Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.06.2003, Qupperneq 16

Fréttablaðið - 16.06.2003, Qupperneq 16
Húsið númer fjögur við Suðurgötuhefur löngum vakið eftirtekt og mörgum þótt mikið til glæsileika þess koma. Það er tæplega hundrað ára gamalt og þar hafa búið fjórar kyn- slóðir sömu fjölskyldunnar, hver á eft- ir annarri. Nú býr í húsinu Guðjón Pedersen leikstjóri og leikhússtjóri Leikfélags Reykjavíkur með eiginkonu og tveim- ur börnum. „Ég er alinn upp í þessu húsi og man eiginlega ekki eftir að hafa búið annars staðar. Það var að- eins þegar ég flutti á sínum tíma úr föðurhúsum til að skoða heiminn að ég sagði skilið við þetta hús,“ segir Guðjón. Guðjón býr á neðri hæðinni en á hæðinni fyrir ofan býr bróðir hans. „Nú á ég helming hússins á móti mömmu en bróðir minn býr í hennar hluta. Undan- farin ár hef ég verið að gera húsið upp og er langt kominn með það að innan. Við stefnum að því að vera búin að ljúka því að gera það í stand að utan þegar húsið á aldarafmæli árið 2006.“ Vinir Guðjón líktu húsinu gjarnan við Sjónarhól, húsið hennar Línu Langsokk. „Það voru gjarnan útlendir vinir mínir sem nefndu það en fyrir mér er það eðlilegasti hlutur í heimi að búa hér.“ Guðjón segir gott að búa í mið- bænum og það sé mesti misskilning- ur að ekki sé þægilegt að vera með börn þar. Það þekki hann frá báðum hliðum. „Sjálfur var ég barn í mið- bænum og mér finnst gott að ala mín börn þar upp. Það gilda aðeins aðrar reglur sem börn verða að fara eftir en mjög þægilegt eigi að síður,“ segir hann. Guðjón segist hafa veitt því eftir- tekt að barnafjölskyldur flytji í aukn- um mæli í miðbæinn, einkum hafi breyting orðið við Suðurgötuna. Í húsið við hlið hans flutti nýlega fjöl- skylda með tvö ung börn og væntan- lega á fjör eftir að færast í leikinn við götuna.“ ■ Ég fékk símtal um daginn, á hinumendanum var vinur minn sem var nýbúinn að festa kaup á íbúð ásamt kærustunni sinni og langaði að fá álit á því hvernig best væri að hækka vinnuborðið á eldhúsinnréttingunni sem var mjög lágt. Ég fæ oft svona símtöl frá vinum mínum og bregst ávallt vel við þeim. Enda hef ég mik- inn áhuga á því sem viðkemur hýbýl- um fólks og er sá maður úr vinahópn- um sem oftast hefur gengið í gegnum þær þjáningar sem fylgja því að taka íbúð í gegn. Sú hugmynd sem fæddist þarna gæti kannski gagnast einhverjum sem á við sama vandamál að glíma og vill ekki fórna gömlu innréttingunni en gera hana samt nothæfa. Hugmyndin er einföld og notadrjúg, en hún er einfaldlega að setja nýja borðplötu á innréttinguna sem fyrir er og kaupa einnig aðra nákvæmlega eins, sníða svo renninga sem hækka þá neðri frá efri med því bili og hæð sem rúmar rauðvínsflösku. Þar med er hækkunin komin og líka rauðvíns- rekki fyrir jafn margar flöskur og lengd innréttingarinnar leyfir. Fljótlega eftir þetta giftu þau sig og þó ég ætli ekki að þakka það þessari lausn, þá langar mig að þakka fyrir stórkostlega brúðkaupsveislu. Þau lengi lifi húrra, húrra, húrra. Kveðja Frikki húsið o.fl. V i k u l e g u r b l a ð a u k i F r é t t a b l a ð s i n s u m h ú s o g g a r ð a Ritstjórn; sími: 515 7500 – netfang: husid@frettabladid.is. Auglýsingar; sími: 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is. Þjónustuauglýsingar: Gula línan; sími 580 8090 – netfang: auglysingar@gulalinan.is. Frikki Weisshappel gefur góð ráð/ Vínrekki hækkar eldhúsborð FRÉTTAB LAÐ IÐ /VILH ELM GUÐJÓN PEDERSEN VIÐ ÆTTARÓÐALIÐ Það er fallegt og reisulegt þetta hús við Suðurgötu 4. Mörgum hefur fundist ævintýrablær vera yfir húsinu þar sem Guðjón hefur búið í stærstan hluta ævi sinnar. Fjórða kynslóðin í sama húsi Guðjón Pedersen leikhússtjóri Borgarleikhússins hefur búið í sama húsinu nánast alla ævi. Áður bjuggu þar afi og langafi hans. „Ég er alinn upp í þessu húsi og man eiginlega ekki eftir að hafa búið annars staðar. SÉRSTAKT HÚS Vinir Guðjón líktu húsinu gjarnan við Sjónarhól, húsið hennar Línu Langsokk. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /B IL LI FRÉTTAB LAÐ IÐ /RÓ TB ERT

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.