Fréttablaðið - 16.06.2003, Side 17
fast/eignirMÁNUDAGUR 16. júní 2003 3
Plantan er ekki ræktuð til mat-ar en ég reikna ekki með að
hún sé óæt,“ segir Þórólfur Jóns-
son deildarstjóri garðyrkju-
deildar Reykjavíkurborgar um
skrautkálið sem prýðir blóma-
ker í miðbæ Reykjavíkur.
Kálið hefur notið vaxandi
vinsælda undanfarin ár, ekki
bara í opinberum blómakerjum
heldur líka í görðum við heima-
hús. Í Blómavali fengust þær
upplýsingar að skrautkálið væri
geysilega vinsælt. Kálið er
keypt forræktað snemma sum-
ars en stóri kosturinn við þetta
skrautlega kál er að það er
harðgert og skreytir garðana
allt til jóla. ■
Mikill munur
á málningarverði/
Allt að
340%
verðmunur
Allt að 340% verðmunur er á 10lítrum af hvítri innimálningu
samkvæmt könnun sem Frétta-
blaðið gerði hjá nokkrum máln-
ingarvöruverslunum á höfuðborg-
arsvæðinu fyrir skömmu. Meðal-
verð á tíu lítra dósum er 5.888
krónur.
Dýrasta málningin er hjá
Hörpu-Sjöfn en þar kostar tíu
lítra fata með hvítri innimálningu
9.593 krónur. Ódýrasta málningin
var hjá Íslandsmálningu, 3.267
krónur. Næstlægsta verðið á
málningu er hjá Húsasmiðjunni,
3.990, og síðan í Litaveri 4.990
krónur.
Hafa verður í huga þegar verð
á málningu eru borið saman að
sumar verslanir bjóða upp á
málningu með gljástigi 7 en aðrar
með gljástigi 10. Talsverður mun-
ur er á málningu eftir gljástigi,
því hærra sem það er því hærra
er verðið.
Könnunin var gerði með því að
hringt var í málningarverslanir á
höfuðborgarsvæðinu og spurt um
verð á 10 lítra innimálningu með
gljástigi 10. ■
Verslun Verð
Byko 5990 kr.
Húsasmiðjan* 3990 kr.
Litabær* 7500 kr.
Litaver 4990 kr.
Íslandsmálning** 3267 kr.
Harpa-Sjöfn 9593 kr.
Meðalverð 5.888 kr.
* Húsasmiðjan selur málningu með gljástigi 7
**Íslandsmálning selur 9 lítra dósir, gljástig 7
á 2970 krónur. Verðið er uppreiknað í 10 lítra.
BLÓMAKER Í MIÐBÆNUM
Skrautkálið setur skemmti-
legan svip á blómakerin
í miðbæ Reykjavíkur.
Blómatískan/
Skrautlegt
og langlíft kál
MÁLNING
Mikill verðmunur er á málningu sam-
kvæmt könnun sem Fréttablaðið gerði hjá
nokkrum málningavöruverslunum á höf-
uðborgarsvæðinu.
SKRAUTKÁL
Kálið er notað til skrauts bæði við heimahús og í opinberum blómakerjum