Fréttablaðið - 16.06.2003, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 16.06.2003, Blaðsíða 19
fast/eignirMÁNUDAGUR 16. júní 2003 5 sölu hjá Klapparhlíð – Mosfellsbæ Við erum að reisa blandaða byggð lítilla fjölbýlishúsa og raðhúsa. Byggðin rís á framtíðarbyggingasvæði Mosfellsbæjar. Mjög falleg hönnun, gott útsýni og rými milli húsa. Sérinngangur í fjölbýlishúsaíbúðir er af svalagangi eða jarðhæð. Húsin eru einangruð og klædd bárumálmi og harðviði og þarfnast því lítils viðhalds. Öll þjónusta, skóli og leikskóli í næsta nágrenni. Barnvænt umhverfi. Teiknistofan Úti og Inni sá um hönnun húsanna. Laugarnesvegur 87 og 89 Eigum eftir örfáar rúmgóðar íbúðir á einum eftirsóttasta stað í bænum (gamla Goðalóðin) í hjarta borgarinnar. Frábærlega hannaðar, bjartar og sólríkar íbúðir í 5 og 6 hæða fjölbýlishúsi með lágmarksviðhaldi og frábærri hönnun. Húsin eru einangruð að utan, klædd álklæðningu og harðvið. Sérstök áhersla er lögð á hljóðvist. Dyrasími er tengdur myndavél í anddyri. Val er um viðartegundir á innréttingum og hurðum. Skemmtilegt útsýni er úr íbúðum. Sérinngangur er í íbúðir af svalagangi eða beint af jarðhæð og er hert gler í svalagöngum til að skýla fyrir veðri og vindum. Teiknistofan Úti og Inni hannaði húsin. innig eru ítarlegar upplýsingar um eignirnar á Innréttingar eru sérlega vandaðar, en óski kaupandi eftir að hanna íbúðina að eigin smekk tökum við vel í slíkaróskir. Þær þurfa þó að koma fram í tíma. Breytingar á íbúðum Þórðarsveigur – Grafarholti Skemmtilega hannaðar 2ja, 3ja og 4ra herbergja íbúðir í 4ra og 5 hæða lyftuhúsi á eftirsóttum og fallegum útsýnisstað. Sérinngangur af svalagangi eða beint af jarðhæð í hverja íbúð. Vandaðar innrétt- ingar. Þvottahús er í öllum íbúðum. Mjög stutt er í alla þjónustu og er leikskóli steinsnar frá húsinu. Húsið er steinsallað að utan og þarfnast því lítils viðhalds. Kanon arkitektar hönnuðu húsin. Borgartún 30 A og B Stórglæsilegt 6 hæða lyftuhús með stórum og björtum íbúðum sem hannaðar eru með þægindi íbúa í huga af Ingimundi Sveinssyni arkitekt. Íbúðirnar eru sérlega vandaðar 130 til 150 fm á frábærum stað í höfuðborginni, mitt á milli Laugardals og miðbæjarins. Öllum íbúðum fylgir sérstæði í bílageymsluhúsi sem innangengt er í úr lyftu eða stigahúsi. Íbúðirnar eru afhentar fullbúnar án gólfefna að undanskildum baðherbergja og þvottahússgólfum. Yfirbyggur sólskáli úr stofu. Íbúðirnar eru í einu glæsilegasta fjölbýlishúsi í Reykjavík, við Borgartún 30A og 30B, frábærlega hannaðar, rúmgóðar og bjartar. Lyftur ganga úr bílastæðahúsi og opnast beint inn í flestar íbúðirnar. Fullkomið brunaviðvörunarkerfi tengt öryggismiðstöð er í húsinu öllu, loftskiptakerfi, mynddyrasími er tengdur myndavél í anddyri og hljóðeinangrun með því besta sem þekkist. Íbúðum á jarðhæð fylgja sérafnot af hluta lóðar og íbúðum á annarri hæð og ofar fylgja góðar suðursvalir. Skemmtilega hönnuð sólstofa er í framhaldi af stofu á móti suðri. Húsið er einangrað að utan og með álklæðningu og þarfnast því lágmarksviðhalds. Sameign og lóð verða fullfrágengin með hellulögðum gangstígum, grasflötum, gróðri og snjóbræðslukerfi í stétt fyrir framan húsið. Staðsetningin er afar hentug, stutt í miðbæinn, Kringluna og Laugardalinn, eitt helsta útivistarsvæði Reykvíkinga. Verð frá 19,2 millj. með sérstæði í bílageymsluhúsi. boði Steinás – Njarðvíkum Glæsileg, vel hönnuð tæplega 140 fermetra parhús á einni hæð við Steinás í Njarðvíkum. Húsin eru klædd að utan með álklæðningu og harðviði. Húsin eru með innbyggðum bílskúr og er í þeim gólfhiti. Þeim er skilað tilbúnum til innréttinga en að auki eru innveggir spartlaðir og grunnmálaðir. Að utan eru þau fullbúin með fullfrágenginni lóð með hita í stéttum og garður tyrfður. Húsin standa á mjög fallegum og eftirsóttum stað í Njarðvíkum. Smáraflöt – Akranesi Skemmtilega hönnuð raðhús á einni hæð með innbyggðum bílskúr. Húsin eru timburhús á steyptum sökkli, klædd að utan með bárumálm- klæðningu og þarfnast því lágmarksviðhalds. Húsunum verður skilað fokheldum að innan en fullbúnum að utan með grófjafnaði lóð. Húsin standa á skemmtilegum stað á nýjasta byggingasvæði Akraness. Mána tún Mánatún Sóltún Sóltún Só ltún Borgartún 30B og 30A

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.