Fréttablaðið - 16.06.2003, Síða 35

Fréttablaðið - 16.06.2003, Síða 35
Mennirnir sem eru að ráðgastmeð djassmál í Hafnarfirðin- um vildu endilega að halda tónleika mér til heiðurs þar sem ég á 60 ára starfsafmæli“ segir Guðmundur Steingrímsson betur þekktur sem Papa-jazz um tildrög tónleika í Hafnarhúsinu í kvöld. „Í barnaskóla fór ég að lemja á trommur eins og margir gera. Það má segja að ég hafi fyrst orðið heillaður af trommuleik þegar Skotarnir komu marserandi inn í þjóðkirkjuna nokkrir saman, sving- andi kjuðunum og allir í takt.“ „Ég byrjaði að spila þegar ég var 14 ára í Gúttó. Þar vorum við alltaf með tónleika á sunnudögum sem voru kallaðir rekstrarsjón. Þá spil- aði ég í hljómsveit sem hét Ungir piltar. Með mér í Ungum piltum var Matthías Mathiesen sem síðar varð ráðherra, Eyþór Þorláksson og Bragi Björnsson og síðar bættist við hópinn Gunnar Ormslev. Það kom alltaf troðfullur strætó að hlusta á okkur úr Reykjavík. Síðan þegar klukkan var orðin rúmlega ellefu þá þustu allir út til að ná strætó aftur í bæinn. Þetta var í kringum 1945 og stríðinu ekki lok- ið. Könunum var hins vegar aldrei hleypt inn í Gúttó því við vildum hafa þetta út af fyrir okkur,“ segir Guðmundur og bætir við að fyrir- komulagið hafi verið gagnkvæmt, íslenskum karlmönnum var aldrei hleypt inn á skemmtanir Kananna í Hafnarfirði. „Það sem er eftirminnilegast á ferlinum er þegar ég lék með Tuts Tileman, sem er munnhörpu- og gít- arleikari frá Belgíu. Við lékum saman í Gamlabíó þegar hann kom hingað í tónleikaferð 1987. Það var ég, Árni Scheving og Guðmundur Ingólfsson sem spiluðum með hon- um. Við æfðum ekkert heldur töluð- um aðeins saman um hvaða lög við ættum að taka og í hvaða tóntegund þau ættu að vera. Við fórum síðan upp á svið og byrjuðum að spila. Tuts var alveg ótrúlegur í því að grípa laglínur Guðmundar Ingólfs og spila þær á munnhörpuna.“ „Ég heillaðist af jazzinum þegar ég heyrði hann hjá hermönnunum í bröggunum. Þeir gáfu okkur krökk- unum gjarnan plötur sem voru 78 snúninga og ég gat spilað þetta á handsnúnu fónunum. Á þessum plötum var gjarnan jazz og ég heill- aðist gjörsamlega,“ segir Guð- mundur að lokum. ■ GUÐMUNDUR STEINGRÍMSSON Papa-jazz á 60 ára starfsafmæli á þessu ári. Honum til heiðurs verða tónleikar í Hafnarborg í kvöld klukkan 20.30. 15 ■ TÓNLIST Er vinningur í lokinu? Utanlandsferðir • siglingar • sjónvörp reiðhjól • myndavélar • gasgrill kælibox í bíla • línuskautar hlaupahjól og margt, margt fleira! Glæsilegir vinningar í Hafnarfirði 17.-22. júní 2003 víkinga Sólstöðuhátíð St af ræ na h ug m yn da sm ið ja n / 3 28 0 Fjölskylduhátíð Víkingamarka›ur • Leikhópur Bardagavíkingar • Erlendir víkingar Víkingaveitingasta›ir í tjöldum Sjófer›ir • Hestar ofl.ofl. Víkingahátíð við Fjörukrána Handverksvíkingar • Dansleikir Víkingasveitin • Kraftajötnar Glímumenn • Hla›bor› • Blót Víkingaveislur öll kvöld Matseðill 17 júní Forréttir Íslenskur Graflax m/graflaxssósu salati og ristuðu brauði Íslensk Kjötsúpa Aðalréttir Pönnusteiktur saltfiskur m/kartöflumús / spínati og sítrónusmjör sósu Steikt Lambalæri m/glóðuðu grænmeti / steiktum kartöflum og villijurtasósu Eftirréttur Íslensk skyrkaka m/villiberjasósu Kaffi Þriggjarétta máltíð á kr. 3,200. EFTIRMIÐDAGSKAFFI Frá kl. 14.00 Kaffi eða Súkkulaði (Rjómaterta / Súkkulaði / Gulrótarterta / Sandkaka / Kleinur ) MÁNUDAGUR 16. júní 2003 Papa-jazz heiðraður í Hafnarborg FRÉTTAB LAÐ IÐ /VILH ELM

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.