Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.06.2003, Qupperneq 37

Fréttablaðið - 16.06.2003, Qupperneq 37
Hin ítalska leikkona MonicaBellucci sem er að þreifa sig áfram í henni Hollywood sagði ný- lega sína skoðun á útliti amerískra starfssystra sinna. Að hennar mati eru þær barnalegar og horaðar á að líta því þær eru hræddar við að vera „alvöru“ kon- ur. „Þær reyna að virðast barnalegar til að laða að karl- menn sem höndla ekki alvöru konu og vilja bara eitthvað til að vernda“. Bellucci, sem er afar ánægð með eigin mjúku línur segir karlmenn allmennt hrifna af nokkuð þrýstnum líkömum og hún ætli ekki að vera með fyrirslátt um að henni líki at- hygli karla. „það er fáránlegt að kona sem hefur eytt milljónum í fegrunaraðgerðir, líkamsrækt, snyrtivörur og föt tali hneyksluð um að hún sé kjöttstykki í augum karla“. Óskarsverðlaunafljóðið GwynethPaltrow ætlar að segja skilið við glamúrlíf stórstjörnunar um skeið og ferðast um í túrrútu kærastans, Chris Martin og hljóm- sveitar hans Coldplay. Hún mun setja leiklistarferillinn í stutt hlé og ferðast um með bandinu á tón- leikaferðalagi þeirra. Chris er duglegur að tileinka lög ástinni sinni á tónleikum víða um heim og ástin milli parsins virðist blóm- stra. MÁNUDAGUR 16. júní 2003 17 SÍMI 553 2075 Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 MATRIX REL. kl. 5.30, 8, 10.30 b.i. 12 Sýnd kl. 6, 8 og 10 Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 kl. 4, 6, 8 og 10ANGER MANAGEMENT IDENTITY kl. 6, 8 og 10 WIEW FROM THE TOP kl. 6, 8 og 10 CREMASTER1, 2 OG 3 kl. 4 CREMASTER 4 OG 5 kl. 6,10 Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 Sýnd kl. 6, 8 og 10 bi 16. ára Bílavarahlutir Ásþétti Keilulegur Hjöruliðir Kúplingar og höggdeyfarKúpli deyfar Viftu- og tímareimar Kúluliðir Kúlu- og rúllulegur Hjólalegusett Hemlahlutir Bón og hreinsivörur w w w. f a l k i n n . i s KVIKMYNDIR „The Transformers“ sí- breytilegu leikföngin frá Hasbro sem urðu vinsæl á níunda áratugn- um hafa nú aftur komist í sviðs- ljósið. Framleiðendur á bak við X- men myndirnar og nú síðast „The League of Extraordinary Gentlemen“ hafa ákveðið að ráðast í gerð leikinnar kvikmynd- ar um vélmennin sem geta brugð- ið sér í allra kvikinda líki. Nú þeg- ar eru til teiknimyndaþættir, myndasögur og teiknuð kvikmynd. Myndin er þó aðeins á hug- myndastigi, og engir leikarar eða leikstjóri verið bendlaður við hana ennþá. Handritið er enn í vinnslu. Framleiðendurnir segjast þó hafa orðið varir við mikinn áhuga frá bæði kvikmyndaverum og leik- stjórum, enda mala ofurhetju- myndir gull þessa daganna. The Transformers eru, fyrir þá sem ekki vita, gríðarstór vélmenni sem á nokkrum sekúndubrotum geta breytt sér í bíla, flugvélar, báta, skot- og eggvopn og flest það sem úr málmi er. ■ Ný ofurhetjumynd: Ham- skiptandi vélmenni THE TRANSFORMERS Fjölbreytilegir og sérstæðir. Gífurlega vin- sæl leikföng sem flestir krakkar og ung- lingar kannast við. TÓNLIST Kim Mathers, fyrrum eigin- kona rapparans Eminem, er nú undir lögreglurannsókn vegna grunns um að eiga kókaín. Á þriðju- dag í síðustu viku stöðvaði lögregl- an í Michigan bifreið hennar og fann þar tvo poka sem innihéldu „hvítt duft“ í hanskahólfinu. Við frekari rannsókn fannst meira efni af sömu tegund í húsi hennar. Ekki er búið að efnagreina duftið. Þetta yrði ekki í fyrsta skiptið sem Kim yrði kærð fyrir að eiga kókaín. Í júlí árið 2001 var hún handtekinn og kærð. Hún mun því þurfa að svara fyrir bæði brotin ef um kókaín var einnig að ræða í þetta skiptið. Kim komst nýlega aftur í heims- fréttirnar þegar það spurðist út að hún og Eminem væru aftur byrjuð saman. Hvort það ástarævintýri stendur enn er ekki vitað. Ef ekki megum við líklegast búast við því að heyra hvernig fór á næstu plötu rapparans. ■ Eminem: Fyrrum eiginkonan handtekin EMINEM Nú er það ekki Eminem sjálfur sem er til vandræða, heldur fyrrum eigin- kona hans Kim.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.