Fréttablaðið - 16.06.2003, Síða 44
Þetta hljóta að vera bestukrakkar á Íslandi, ef ekki í öll-
um heiminum,“ sagði Birgir Svan
Símonarson, skáld sem var einn
leiðbeinenda í ritsmiðju 8 - 12 ára
krakka í Borgarbókasafninu í
Tryggvagötu. Eftir nokkurra daga
námskeið lásu krakkarnir upp úr
verkum sínum. Þar kenndi ýmissa
grasa og greinilegt að hópinn sko-
rti hvorki hæfileika né hug-
myndaflug. Birgir Svan sagði
erfitt að temja hugann þegar mað-
ur fengi mikið frelsi. Krakkarnir
fóru vel með það frelsi.
„Við gerðum ljóð og verkefni og
svo eitthvað frjálst,“ sagði Lovísa
Rós. „Ég gerði sögu þegar mátti
gera eitthvað frjálst. Hún var um
unga. Sætan unga sem datt úr
hreiðrinu og ég bjargaði honum.
Þetta var samt ekki sönn saga,“
segir hún. Meira svona eins og hún
myndi gera ef hún fyndi unga.
Andri er bara sjö ára. „Ég er
bara búinn að skrifa þrjár sögur.
Eina um ömmu mína sem fót-
brotnaði og aðra um afa minn sem
fótbrotnaði. Svo eina um dreka.“
Dreka sagan var rímuð, svona
söguljóð. „Kennarinn skrifaði á
hana svona F og G og svona fyrir
pabba minn af því hann kann að
slá á gítar.“
Svo mættu þeir hver af öðrum
krakkarnir og lásu upp. Bókaþjóð-
in þarf greinilega engu að kvíða
um framtíð sína.
haflidi@frettabladid
FERSK Í BÚÐIR Á HVERJUM DEGI
!"
# $%##
&' ##(&
■ Andlát
Ólafur Olgeirsson, Arnarási 6, Garða-
bæ, lést á Hrafnistu Hafnarfirði föstu-
daginn 13. júní.
Sæunn Pétursdóttir, áður Ferjubakka 4, lést
á hjúkrunarheimlinu Skógarbæ 12. júní.
Ásgeir Ásgeirsson, Barónstíg 29,
Reykjavík, verður jarðsunginn frá Foss-
vogskapellu mánudaginn 16. júní.
Ólafía Þóra Valentínusardóttir, lést á
líknardeild Landspítalans í Kópavogi
fimmtudaginn 26. maí. Útförin hefur far-
ið fram í kyrrþey.
Stefán Guðmundsson, á Núp á Skarðs-
strönd, lést 3. júní síðast liðinn. Útförin
fór fram frá Digraneskirkju 11. júní.
Matthías Jóhann Jónsson, frá Þórshöfn
á Langanesi lést þann 5. júní. Útförin var
gerð frá Fossvogskirkju þann 13. júní.
35 ÁRA „Ég er að opna búðina mína
formlega í hádeginu og reyni bara
að standa mína pligt þar,” segir
Jón Sæmundur Auðarson, mynd-
listarmaður, sem er 35 ára í dag.
„Ég fer létt út að borða með fjöl-
skyldunni og síðan verður heljar-
innar veisla á Laugavegi 11, á
hæðinni fyrir ofan búðina.“ Þar er
barinn 11 sem Jón innréttaði,
hannaði og þróaði.
„Þar verður fyrst afmælis-
veisla og síðan tekur við rokkara
grímuball þar sem fólk mun mæta
í gervum einhverra frægra rokk-
ara.“ Jón segir að líklega verði
karókí í fullum gangi á ballinu
þannig að fólk getur látið gervið
taka völdin og stigið á stokk. „Ég
er að hugsa um að vera Sid Vici-
ous,” segir Jón og bætir því við að
þeir sem vilja tryggja að ekki fari
milli mála hverjir þeir eru geti
komið í Nonnabúð fyrr um dag-
inn. „Ég get þá búið til barmmerki
sem stæði til dæmis á „Ég er Jim
Morrison“ eða eitthvað þess hátt-
ar.“
Jón Sæmundur segist ekki
vera mikið fyrir afmælisveislur.
„Ég hélt síðast upp á afmælið mitt
á gamla Bíóbarnum þegar ég varð
þrítugur en síðustu tveimur af-
mælisdögum eyddi ég í Glasgow
þar sem ég var í mastersnámi og
gerði ekkert sérstakt.“ ■
JÓN SÆMUNDUR AUÐARSON
„Manni finnst þetta eiginlega vera búið
þegar maður er orðinn 30 ára og býst ekki
við miklu en það er allt í lagi að taka á því
35 ára og svo kannski aftur þegar maður
verður fertugur.“
Afmæli
JÓN SÆMUNDUR AUÐARSON
■ Opnar Nonnabúðina sína á Lauga-
vegi 11 formlega á afmælisdaginn og
mun að mestu eyða honum þar.
Breytist í Sid
Vicious á afmælinu
FRAMTÍÐARHÖFUNDAR
Þessi krakkahópur sat við skriftir í ritsmiðju Borgarbókasafnsis. Þau lásu upp úr verkum
sínum í lok námskeiðsins.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
LOVÍSA RÓS
Skrifaði sögu um sætan unga.
Bókaþjóðin þarf
engu að kvíða
14. júní 2003 MÁNUDAGUR