Fréttablaðið - 03.07.2003, Page 2
2 3. júlí 2003 FIMMTUDAGUR
„Ég tel mig vera það.“
Arnaldur Indriðason er margverðlaunaður met-
söluhöfundur glæpasagna.
Spurningdagsins
Arnaldur, ert þú löghlýðinn?
■ Lögreglufréttir
■ Bráðalungnabólgan
SILVIO BERLUSCONI
Ítalski forsætisráðherrann lenti í kröppum
dansi þegar hann flutti stefnuræðu sína á
Evrópuþinginu í gær.
Silvio Berlusconi:
Olli deilum
BRUSSEL, AP Ræða Silvios
Berlusconis, forsætisráðherra
Ítalíu, á Evrópuþinginu í gær olli
uppnámi og reiði. Meðan
Berlusconi skýrði stefnu sína
næstu sex mánuði lyftu þingmenn
Græningja spjöldum sem á stóð:
„Allir eru jafnir fyrir lögum“.
Þeir vísuðu þar til ásakana um að
Berlusconi hafi komið sér undan
réttvísinni. Berlusconi brást reið-
ur við þessari truflun og viðhafði
niðrandi ummæli um gagn-
rýnendur sína. Hann hreytti í
Martin Schulz, fulltrúa þýskra
jafnaðarmanna, að hann minnti á
foringja í útrýmingarbúðum nas-
ista. Berlusconi sagðist vita af
gerð kvikmyndar um slíkar
útrýmingarbúðir og rétt væri að
hann mælti með Schulz í hlutverk
í myndinni. Þessi ummæli vöktu
mikla reiði meðal þingmanna.
Schulz og Pat Cox, forseti Evr-
ópuþingsins, báðu Berlusconi að
draga ummælin til baka. Hann
neitaði og sagði þau hafa verið
sett fram í kaldhæðni. Leitt væri
ef fólk skildi þau ekki. ■
ÁREKSTRAR Í KÓPAVOGI Tveir
árekstrar urðu í Kópavogi í gær-
dag. Að sögn lögreglu urðu lítils-
háttar meiðsl á fólki en eignatjón
er talsvert.
VARNARLIÐIÐ Bandaríska sendiráðið
hefur brugðist við ummælum Dav-
íðs Oddssonar forsætisráðherra í
Sjónvarpinu í fyrradag.
Þar sagði Davíð að það þjónaði
engum tilgangi að halda varnar-
liðsumræðunum áfram á meðan
hvorki íslensk né bandarísk stjórn-
völd sýndu vilja til að breyta af-
stöðu sinni. David Mees, upplýs-
ingafulltrúi sendiráðsins, segir að
fundur viðræðunefnda ríkjanna 23.
júní hafi verið mjög mikilvægt
skref í umræðunni um tilhögun
varnarmála á Íslandi.
Komið hefur fram að vilji
Bandaríkjamanna sé sá að flytja
þotusveitirnar af landi brott, en að-
spurður vildi Mees ekki staðfesta
það. Hann sagði hins vegar að
bandarísk stjórnvöld teldu sig enn
skuldbundin til að sjá um varnir
landsins. Samkvæmt því mun
málamiðlun af einhverju tagi vera
möguleiki.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins er ein helsta ástæðan fyrir
því hversu bandarísk stjórnvöld
hafa verið treg til að veita upplýs-
ingar um gang viðræðnanna og fyr-
irhugaðan niðurskurð hjá varnarlið-
inu sú að íslensk stjórnvöld hafi lít-
ið sem ekkert viljað tjá sig við fjöl-
miðla um málið. Með þögninni eru
bandarísk stjórnvöld því að þóknast
íslenskum stjórnvöldum um að
ræða ekki málið opinberlega. ■
DEILA Viðar Friðfinnsson, nætur-
vörður úr Breiðholtinu, telur af-
notadeild Ríkisútvarpsins rang-
lega hafa skráð sig fyrir sjón-
varpstæki og segir hann stofnun-
ina beita sig ofríki og fjárkúgun-
um.
Tveir tækjaleitendur RÚV
komu að heimili hans í fyrrahaust
og mættu tékkneskri eiginkonu
hans þar sem hún flutti þvott á
milli hæða í fjölbýlishúsinu. Þeir
fengu undirskrift konunnar um að
sjónvarpstæki væri á heimilinu,
en Viðar kveðst hafa neitað alfar-
ið að eiga sjónvarp og segir eigin-
konu sína hvorki hafa verið mæl-
andi á íslensku né ensku. „Svo
streymdu til mín reikningar og
þeir vilja að ég borgi eitthvað sem
ég hef ekki. Þeir höfðu komið
fimm sinnum áður og hættu ekki
fyrr en þeir skráðu mig,“ segir
hann.
„Við vitum að hann var með
sjónvarp þegar við komum, sam-
kvæmt upplýsingum konunnar,“
segir Halldór V. Kristjánsson, yf-
irmaður afnotadeildar RÚV.
Viðar kvartar undan aðferðum
RÚV og kveðst lítil not hafa fyrir
sjónvarp, þar sem hann sé í vinnu
á kvöldin. „Ég er varnarlaus og
veit ekki hvað ég á að gera, því
þetta er ríkið.“
Hann hefur leitað fulltingis hjá
menntamálaráðuneytinu, lögregl-
unni og umboðsmanni Alþingis,
eftir að hafa reynt að láta taka sig
af skrá innheimtudeildarinnar, en
allt án árangurs.
„Maðurinn er í skuld við okkur
og við lítum á málið þannig,“ seg-
ir Halldór. Aðspurður um hvort
eiginkonunni hafi verið gerð
grein fyrir innihaldi þess sem hún
skrifaði undir, en plaggið var á ís-
lensku, segir Halldór að starfs-
menn RÚV hafi geta talað við
hana á þýsku eða rússnesku.
„Fólkið sem kemur frá okkur tal-
ar ýmis tungumál.“
Afnotagjald RÚV er 27.000
krónur á ári og er grunuðum sjón-
varpseigendum sendar tvær
beiðnir um skráningu áður en
starfsmenn afnotadeildar rann-
saka það frekar. Á þriðja þúsund
óskráð sjónvarpstæki finnast ár-
lega með athugunum tækjaleit-
enda RÚV.
jtr@frettabladid.is
Uppreisnarmenn í Aceh:
Lagðir
á flótta
INDÓNESÍA, AP Eftir sex vikna her-
ferð gegn uppreisnarmönnum hef-
ur indónesíski
stjórnarherinn
náð yfirráðum í
öllu Aceh-héraði,
að sögn Endri-
artono Sutarto,
hershöfðingja.
Suarto segir
að vopnaðir að-
skilnaðarsinnar,
sem taldir eru
vera um 5.000
talsins, séu allir
lagðir á flótta.
Talið er að þeir muni leita skjóls í
frumskógum og fjalllendi og
stunda skæruhernað þaðan.
Um 350 manns hafa látið lífið í
herferð indónesískra stjórnvalda
gegn aðskilnaðarsinnum. Hátt í 600
uppreisnarmenn hafa verið teknir
höndum. Barist hefur verið fyrir að-
skilnaði Aceh-héraðs síðan 1976. ■
ÚTBREIÐSLA HEFT Í TORONTO
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hef-
ur lýst því formlega yfir að tekist
hafi að stöðva útbreiðslu
bráðalungnabólgunnar í Toronto í
Kanada. Ekkert nýtt tilfelli hefur
komið upp í borginni í þrjár vik-
ur. Tævan er nú eini staðurinn
þar sem sjúkdómurinn herjar.
FARANDVERKAMENN ATVINNU-
LAUSIR Um átta milljónir farand-
verkamanna í borgum Kína hafa
misst vinnuna vegna faraldurs-
ins. Yfirvöld höfðu farið fram á
það að farandverkamönnum yrði
ekki sagt upp af ótta við að þeir
myndu yfirgefa borgirnar og
breiða út sjúkdóminn.
LANDAMÆRI OPNUÐ Rússnesk
yfirvöld hafa ákveðið að opna að
nýju landamærin að Kína og
Mongólíu sem lokuð voru af ótta
við útbreiðslu bráðalungnabólgu.
STJÓRNMÁL Ríkisstjórnin hefur
hafnað öllum tilboðum í gerð
vegganga til Siglufjarðar um
Héðinsfjörð og frestað fram-
kvæmdum. Ástæðan er sögð
vera ótti við þenslu sem sé í upp-
siglingu vegna stórframkvæmd-
anna á Austurlandi.
Að sögn samgönguráðuneytis-
ins voru bundnar vonir við að
hagstæðari tilboð en raun bar
vitni bærust í göngin í kjölfar
framkvæmda við jarðgöng milli
Fáskrúðsfjarðar og Reyðarfjarð-
ar. Fresta eigi framkvæmdum í
tvö ár; fram á síðari hluta ársins
2006.
Guðmundur Guðlaugsson,
bæjarstjóri á Siglufirði, segir
það fyrirslátt að tilboð hafi ekki
verið hagstæð. Lægsta tilboð
hafi aðeins verið 2 til 3% fram
yfir kostnaðaráætlun, það er 6,2
milljarðar króna í stað 5,9 millj-
arða.
„Þetta er í hróplegri mótsögn
við það sem stjórnmálamenn og
ráðherrar hafa sagt við okkur að
undanförnu og fyrir kosningar.
Við höfum ekki fundið fyrir
þenslu á þessu svæði og finnst
óskiljanlegt að það sé verið að
slá af mjög arðbær samgöngu-
mannvirki á slíkum stöðum.
Menn eru þreyttir á því að það
stenst ekki sem sagt er og
treysta yfirlýsingum ekki leng-
ur,“ segir Guðmundur. ■
Skaðsemi kannabisefna:
Meginorsök
geðtruflana
LÆKNAVÍSINDI Niðurstöður nýrrar
breskrar rannsóknar benda til þess
að mikil neysla kannabisefna geti
valdið geðklofa. Rannsóknin hefur
vakið ótta manna við það að farald-
ur geðsjúkdóma sé á næsta leiti
vegna mikillar útbreiðslu efnanna
meðal ungs fólks í Bretlandi.
Vísindamenn hjá Institute of
Psychiatry í London sem gerði rann-
sóknina segja að þeir sem noti
kannabisefni séu sjö sinnum líklegri
til að fá geðsjúkdóma en aðrir. „Því
meira magn kannabisefna sem fólk
neytir þeim mun fleiri geðlækna
þurfum við,“ segir Robin Murray,
yfirmaður stofnunarinnar. ■
KEFLAVÍKURFLUGVÖLLUR
Komið hefur fram að vilji Bandaríkjamanna sé sá að flytja þotusveitirnar af landi brott.
Bandarísk stjórnvöld bregðast við ummælum forsætisráðherra:
Skuldbundin að verja landið
M
YN
D
AP
Í HALDI
Ung kona sem
grunuð er um að
tilheyra uppreisnar-
hópnum Inong
Balee heldur á
barni sínu.
SIGLUFJÖRÐUR
Bæjarstjórinn gagnrýnir að stjórnvöld hafi
ákveðið að fresta framkvæmdum.
Ríkisstjórnin hafnar smíði Héðinsfjarðarganga:
Ólga á Siglufirði
RÍKISÚTVARPIÐ
Afnotadeild RÚV fékk játningu um sjónvarpstæki hjá tékkneskri eiginkonu næturvarðar,
sem segir konu sína ekki hafa skilið erindið, enda hvorki mælandi á íslensku né ensku.
Næturvörður í
stríði við RÚV
Næturvörður úr Breiðholti segir starfsmenn Ríkisútvarpsins hafa
ranglega skráð sig fyrir sjónvarpstæki. Hann er nú í tugþúsunda
króna skuld við stofnunina og vill hvorugur aðilinn gefa eftir.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M