Fréttablaðið - 03.07.2003, Blaðsíða 4
4 3. júlí 2003 FIMMTUDAGUR
Er Sigur Rós að verða frægari en
Björk?
Spurning dagsins í dag:
Var rétt af stjórnvöldum að greina ekki
frá því að Bandaríkjastjórn vildi kalla
herþoturnar heim?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
46,3%
31,8%
Nei
21,9%Ertu frá þér?
Já
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
■ Asía
Skeljungur uppfyllir ekki skilyrði Kauphallar:
Síðasta olíufélagið af Aðallistanum?
HLUTABRÉF Skeljungur uppfyllir ekki
skilyrði um skráningu á Aðallista
Kauphallar Íslands þar sem aðeins
um 17% hlutabréfa fyrirtækisins
eru í eigu almennra fjárfesta.
Þórður Friðjónsson, forstjóri
Kauphallarinnar, segir málið verða
rætt við forsvarsmenn Skeljungs á
næstu vikum.
„Við munum ræða hvernig félag-
ið geti komist aftur undir skilyrðin
eða þá að þeir taki ákvörðun um að
annað hvort draga félagið út úr
Kauphöllinni eða færa það á Til-
boðsmarkaðinn. Leiðarljósið er að
gæta hagsmuna hluthafa og fjár-
festa,“ segir Þórður.
Meðal skilyrða fyrir skráningu á
Aðallista er að 25% hlutafjár við-
komandi félags séu í eigu almennra
fjárfesta. „Þetta skilyrði getur ekki
talist uppfyllt í tilviki Skeljungs.
Kaupþing hefur 35% og þau fyrir-
tæki sem stóðu að Haukþingi eiga
nú 48%. Þannig að nú eru aðeins
17% í eigu almennra fjárfesta,“ seg-
ir Þórður.
Olís og Esso hafa þegar verið
skráð af Aðallista Kauphallarinnar.
Skeljungur er því síðasta olíufélag-
ið sem eftir er á listanum.
Benedikt Jóhannsson, stjórnar-
formaður Skeljungs, hefur lýst
þeim vilja stjórnarinnar að félagið
verði áfram skráð á Aðallista Kaup-
hallarinnar. ■
BETLEHEM, AP Palestínski fáninn
var dreginn að húni í Betlehem
eftir að ísraelskar hersveitir
höfðu hörfað á brott úr borginni.
Palestínskar öryggissveitir
þeyttu lúðra sína á meðan þær
marseruðu inn í miðbæinn.
Íbúar Betlehem efast þó um
að miklar breytingar séu í
vændum þar sem Ísraelar verði
áfram með eftirlitsstöðvar víða
um borgina. Enn standa ísra-
elskar hersveitir vörð fyrir utan
Betlehem og takmarka ferðir al-
mennings.
Yfirtaka Palestínumanna í
Betlehem kom í kjölfar við-
ræðna Ariel Sharon, forsætis-
ráðherra Ísrael og palestínska
starfsbróður hans, Mahmoud
Abbas, þar sem leiðtogarnir
tveir féllust á að beita sér fyrir
því að vegkortinu til friðar yrði
fylgt eftir. Ísraelsk stjórnvöld
samþykktu einnig að láta 21
palestínskan fanga lausan úr
haldi, að sögn palestínsks emb-
ættismanns. Að loknum fundi
tókust Sharon og Abbas í hendur
og ítrekuðu að í grundvallarat-
riðum ríkti ekki fjandskapur á
milli þjóðanna tveggja.
Bandarísk yfirvöld hafa heit-
ið sem svarar 2,3 milljörðum ís-
lenskra króna til enduruppbygg-
ingar palestínska stjórnkerfis-
ins. Er þetta í fyrsta skipti í
langan tíma sem Bandaríkin
veita Palestínumönnum beina
fjárhagslega aðstoð. ■
Guðni heitir að
vernda laxinn
Landbúnaðarráðherra kveðst ætla að standa vörð um íslenska laxinn í
kjölfar þess að ríkisstjórnin setti bráðabirgðalög um innleiðingu tilskipunar
ESB sem felur í sér að innflutningur lifandi laxa til landsins verði opnaður.
STJÓRNMÁL Náttúrufræðistofnun
Íslands mælti gegn því 12. júní
síðastliðinn að Alþingi samþykkti
„þá opnu heimild fyrir innflutn-
ingi á laxfiskum“ sem felst í
frumvarpi landbúnaðarráðherra
um innleiðingu tilskipunar ESB
um flutning lifandi laxfiska.
Rannveig Guðmundsdóttir,
þingmaður Samfylkingarinnar í
Umhverfisnefnd, gagnrýnir land-
búnaðarráðherra fyrir meðferð
hans á málinu. „Málið fór alltof
seint fyrir þing og þegar bráða-
birgðalögin voru sett á var verið
að safna saman umsögnum um
frumvarpið. Náttúrufræðistofnun
gagnrýndi meðal annarra frum-
varpið og hún heldur utan um okk-
ar löggjöf um náttúruvernd og á
að tryggja að alþjóðasamningar
okkar á þessu sviði séu virtir.
Þetta eru slæleg vinnubrögð af
hálfu landbúnaðarráðherra.“
Í áliti stofnunarinnar kemur
fram að fordæmi séu fyrir því að
Evrópudómstóllinn hafi tekið
staðbundin verndarsjónarmið
fram yfir stofnsamning ESB um
frjálsa verslun. Þar kemur einnig
fram að áhyggjur ríkisstjórnar-
innar snúist fyrst og fremst um
sjúkdómavarnir, en stofnunin seg-
ir áhyggjuefnið vera vistfræði-
legt.
Guðni Ágústsson landbúnaðar-
ráðherra setti í gær reglugerð
ofan á lagabreytingarnar og heitir
því að standa vörð um íslenska
laxinn. „Ég hef neitað tugum og
hundruðum kvikinda að koma
hingað inn í landið af heilbrigðis-
ástæðum, þar á meðal krókódíl-
um, rottum og gullfiskum. Ég
heiti því sem landbúnaðarráð-
herra að ég mun standa mína
vakt, yfirdýralæknir og hans
menn munu standa sína.“
Guðni segir að laxeldi hafi
löngum notast við tegundir sem
séu frábrugðnar þeim villtu. „Hér
situr sá landbúnaðarráðherra sem
hefur lokað flestum fjörðum fyrir
fiskeldi, hann er eins og Guð-
mundur góði í Drangey. Einhvers
staðar verða vondir að vera.“
Íslendingar höfðu undanþágu
frá tilskipun ESB frá árinu 1994,
líkt og Norðmenn. Guðni kveðst
hafa trúað því að tekið yrði tillit
til þess að frumvarp hafi verið
lagt fram í vor og að Alþingi væri
í sumarfríi. Hins vegar hafi ekki
verið komist hjá innleiðingu til-
skipunarinnar. „Ísland á engan
kost annan. Eitt er klárt að orð
manna eiga að standa, hvað þá
undirskriftir þjóða á alþjóða-
vísu.“
jtr@frettabladid.is
VANCOUVER
Jean Chretien, forsætisráðherra, fagnar
með kanadísku sendinefndinni þegar úrslit
atkvæðagreiðslunnar lágu fyrir.
Vetrarólympíuleikar 2010:
Vancouver
fyrir valinu
ÓLYMPÍULEIKAR Vetrarólympíuleik-
arnir árið 2010 verða haldnir í
Vancouver í Kanada. Borgin hafði
betur í baráttunni við austurrísku
borgina Salzburg og Pyeongchang í
Suður-Kóreu. Vancouver sóttist eft-
ir að halda leikana árið 1976 en var
ekki valin.
Vancouver er í Bresku Kólumbíu
í vesturhluta Kanada. Borgin býr
þegar að góðri aðstöðu fyrir vetrar-
íþróttir, þar á meðal BC-höllina sem
mun hýsa opnunar- og lokahátíð
leikanna. Bættar samgöngur verða
helsta viðfangsefni Vancouver fram
að leikunum en yfirvöld hafa heitið
því að verja tíu milljörðum dollara
til þessa verkefnis. ■
BÖRN AÐ LEIK
Lögreglumenn í Ringsted voru framan af
bjartsýnir á að finna Miu Teglgaard Sprotte
á lífi. Þær vonir urðu að engu þegar lík
hennar fannst grafið í jörðu skammt frá
leikvellinum þar sem hún hvarf.
Tólf ára stúlka myrt:
Morðinginn
ófundinn
DANMÖRK Þrátt fyrir að dönsku lög-
reglunni hafi borist hundruð vís-
bendinga frá almenningi hefur
ekki tekist að hafa hendur í hári
morðingja tólf ára gamallar stúlku
sem fannst látin í byrjun vikunnar
í bænum Ringsted á Sjálandi.
Miu Teglgaard Sprotte hafði
verið saknað í þrjá daga þegar sér-
þjálfaðir hundar fundu lík hennar
grafið í jörðu skammt frá fótbolta-
velli. Yfirvöld staðfestu að henni
hefði verið misþyrmt kynferðis-
lega og hún barin í andlitið áður en
hún var kyrkt með nælonsnæri.
Lögreglan fann vasahníf og snæri
sem líklegt er að morðinginn hafi
notað og telur sig hafa undir hönd-
unum nothæf DNA-sýni.
Vitni telur sig hafa heyrt til
misyndismannsins þegar hann var
að grafa holu fyrir líkið í þéttu
kjarri á miðnætti aðfararnótt
sunnudags. ■
LEST FÓR FRAM AF BRÚ Að
minnsta kosti 18 manns fórust og
25 slösuðust þegar þrír lestar-
vagnar fóru út af sporinu og féllu
fram af brú í bænum Warangal í
suðurhluta Indlands. Vagnarnir
höfnuðu á fiskmarkaði fyrir neð-
an brúna. Hemlar lestarinnar
höfðu brugðist með þeim afleið-
ingum að lestarstjóranum tókst
ekki að stöðva hana.
Dani í gæsluvarðhald:
Sendi hass
með skipi
LÖGREGLUMÁL 23 ára gamall Dani
var í gær úrskurðaður í gæslu-
varðhald í tvær vikur vegna fíkni-
efnabrots. Tollgæslan í Reykjavík
fann tíu kíló af hassi í vörusend-
ingu sem kom með skipi frá Dan-
mörku og tilkynnti hún lögreglu
um fundinn. Á mánudaginn kom
síðan maðurinn og vitjaði send-
ingarinnar.
Maðurinn var handtekinn af
lögreglu og hefur gengist við því
að eiga efnið. Maðurinn er búsett-
ur í Danmörku og sendi sjálfur
pakkann áður en hann kom til
landsins með flugi. Ætlaði hann að
selja efnið hér á landi. ■
SKELJUNGUR OG KAUPHÖLLIN
Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallar Ís-
lands, segir Skeljung ekki lengur uppfylla
skilyrði um eign almennra fjárfesta á hlut-
fé olíufélagsins til að geta verið skráð á
Aðallista Kauphallarinnar.
Reyndi hasssmygl:
Greip í tómt
LÖGREGLUMÁL 31 árs Íslendingur,
búsettur í Danmörku, var í gær
úrskurðaður í gæsluvarðhald til
11. júlí næstkomandi vegna fíkni-
efnabrots. Tollgæsla í Svíþjóð
fann sex kíló af hassi í íslensku
skipi og lagði hald á það. Pakkinn
var síðan sendur til Íslands, eftir
að fíkniefnin höfðu verið tekið úr
honum.
Viðtakandi vitjaði síðan pakk-
ans á þriðjudag og fékk hann af-
hentan, en var í kjölfarið handtek-
inn af lögreglu. Efnið var ætlað til
sölu hér á landi og er málið í rann-
sókn. ■
MARSERAÐ
Í BETLEHEM
Palestínskir sérsveitarmenn
marsera inn í Betlehem
með fána þjóðar sinnar í
broddi fylkingar.
Friðaráætluninni hrint í framkvæmd:
Palestínumenn taka við Betlehem
LANDBÚNAÐARRÁÐHERRA LOFAR
Guðni Ágústsson telur að íslenskum laxastofnum stafi ekki hætta af tilskipun ESB, sem
var leidd í bráðabirgðalög í fyrradag. Laxveiðimenn og Náttúrufræðistofnun eru á
öndverðum meiði.