Fréttablaðið - 03.07.2003, Síða 6

Fréttablaðið - 03.07.2003, Síða 6
6 3. júlí 2003 FIMMTUDAGUR ■ Innlent Veistusvarið? 1Hvaða íslenski körfuboltakappi tekurþátt í æfingamóti með bandaríska lið- inu Dallas Mavericks í sumar? 2Hvað heitir forstjóri Barnaverndar-stofu? 3Hver verður aðalpersónan í nýjatölvuleiknum Everything or Nothing frá Electronic Arts? Svörin eru á bls. 39 1.499,-L E I Ð B E I N A N D I V E R Ð SPENNANDI FERÐ FÉLAGAR „Afar hrífandi frásögn sem heltekur  lesandann.“  Lektørudtalelse, Dansk Biblioteks Center: „Einstæð frásögn af þjáningum og þrekraunum, kjarki og hetjudáðum, djörfung og áræði  ... líflega skrifuð.“  Magnús Magnússon sjónvarpsmaður, Bretlandi: SVIPUÐ VERÐBÓLGA Greining Ís- landsbanka spáir 0,2% hækkun neysluverðsvísitölu í júní en SPRON 0,1% hækkun. Sam- kvæmt spá Greiningar er tólf mánaða verðbólga 1,9% en 1,8% samkvæmt spá SPRON. FORSETAR FUNDA Halldór Blön- dal, forseti Alþingis, er nú staddur á Grænlandi þar sem hann sækir fund vestnorrænna þingforseta. Á málaskrá þeirra er starfsemi Vestnorræna ráðs- ins og mál sem varða vestnor- rænu löndin á vettvangi Norður- landaráðs. Fundir forsetanna hófust á þriðjudag og standa fram á föstudag. GENGI GJALDMIÐLA Bandaríkjadalur 76.16 -0.08% Sterlingspund 126.63 0.10% Dönsk króna 11.82 -0.29% Evra 87.86 -0.28% Gengisvísitala krónu 124,54 0,48% KAUPHÖLL ÍSLANDS Fjöldi viðskipta 206 Velta 3.945 milljónir ICEX-15 1.496 -0,32% Mestu viðskiptin Pharmaco hf. 185.916.630 Skeljungur hf. 80.013.000 Íslandsbanki hf. 51.673.431 Landsbanki Íslands hf. 43.768.824 Fjárfestingarf. Straumur hf. 35.995.006 Mesta hækkun Líftæknisjóðurinn hf. 597,67% AFL fjárfestingarfélag hf. 3,59% Eimskipafélag Íslands hf. 0,78% Framtak Fjárfestingarbanki hf. 0,52% Pharmaco hf. 0,49% Mesta lækkun Kaupþing Búnaðarbanki hf. -1,90% Sjóvá-Almennar tryggingar hf. -1,85% Landsbanki Íslands hf. -1,23% Flugleiðir hf. -1,10% Íslandsbanki hf. -0,40% ERLENDAR VÍSITÖLUR DJ: 9093,9 0,6% Nsdaq: 1663,8 1,5% FTSE: 4006,9 1,1% Nikke: 9592,2 3,4% S&P: 987,1 0,5% Á BESSASTÖÐUM Þýsku forsetahjónin ásamt Ólafi Ragnari Grímssyni og Dorrit Moussaieff á Bessastöðum. Opinber heimsókn: Fer í dag OPINBER HEIMSÓKN Opinberri heim- sókn forseta Þýskalands Dr. Jo- hannes Rau og konu hans Christ- inu lýkur í dag. Forsetahjónin komu til landsins á ellefta tíman- um á þriðjudag og hófst heim- sóknin með veglegri móttökuat- höfn á Bessastöðum að viðstödd- um forseta landsins og ríkis- stjórn. Heimsóknin var í boði Ólafs Ragnars Grímssonar forseta Ís- lands og átti þýski forsetinn bæði fund með honum og Davíð Odds- syni forsætisráðherra í heimsókn- inni. Í gær heimsóttu síðan for- setahjónin ásamt fylgdarliði Þing- velli, Gullfoss og Geysi. ■ Tyrkland: Héróínsend- ing stöðvuð TYRKLAND, AP Lögregla í Istanbúl í Tyrklandi lagði í gær hald á 110 kíló af heróíni í flutningabíl. Ábendingar bárust um fíkniefnin frá Þýskalandi og þykir víst að fíkniefnin hafi átt að fara þangað. Eigandi flutningabílsins og bíl- stjóri voru handteknir, ásamt þrið- ja manni sem tengist málinu. Tyrk- land er mikilvægur hlekkur í leið fíkniefnasmyglara frá Mið-Aust- urlöndum og Asíu til Evrópu. ■ SJÓNVARP Hermann Hermanns- son, yfirmaður sjónvarpssviðs Norðurljósa, hefur látið af störf- um. Brotthvarf hans tengist hag- ræðingu í rekstri fyrirtækisins sem þegar hefur leitt til fjöl- margra uppsagna á fréttastofu Stöðvar 2 og reyndar víðar á sjónvarps- og útvarpssviði Norð- urljósa. Er nú stefnt að því að auka ábyrgð ýmissa millistjórn- enda og þeir látnir vinna störf sjónvarpsstjórans því nýr verð- ur ekki ráðinn. „Það varð að samkomulagi á milli aðila að ég léti af störfum eftir gott samstarf við fólk hér í tæp 10 ár,“ segir Hermann Her- mannsson. „Ég kom hingað til starfa hjá fyrirtækinu blautur á bak við eyrun beint úr háskóla og vann mig upp og út,“ segir sjón- varpsstjórinn fyrrverandi. Hermann Hermannsson var yfirmaður allra sjónvarpsstöðva Norðurljósa; Stöðvar 2, Sýnar, Bíórásarinnar, Popp Tíví og Fjölvarpsins. ■ Hraðakstur: Margir stöðvaðir LÖGREGLUMÁL Lögreglumenn á Ak- ureyri stöðvuðu tólf bíla á tveimur klukkustundum í gærdag þegar þeir voru við eftirlit. Lögreglumenn á vakt sögðu þetta mikinn fjölda á ekki lengri tíma en töldu að umferð- ina mætti að einhverju leyti rekja til þess að fótboltamót eru að hefj- ast á Akureyri. Að sögn lögreglu mældust fólksbílar á 115 til 120 kíló- metra hraða. Að auki hefðu bílar með tjaldvagna í eftirdragi verið mældir á 100 til 110 kílómetra hraða, 20 til 30 kílómetrum yfir leyfilegum hámarkshraða. Þá hefði vantað lengri spegla á marga bílana svo þeir sæju aftur fyrir vagnana. ■ Norðurljós: Sjónvarpsstjórinn lætur af störfum NORÐURLJÓS Hermann Hermannsson segist hafa unnið sig upp og út hjá Norðurljósum. ■ Stjórnvöld FYRIR RÉTTI „Það er sýknað í vel- flestum ákæruliðum. Í fljótu bragði sýnist mér þetta sigur varnarinnar,“ segir Sigríður Rut Júlíusdóttir verjandi Péturs Þórs Gunnarssonar en dómur féll í Héraðsdómi Reykjavíkur í því sem nefnt hefur verið Stóra mál- verkafölsunarmálið. Pétur, auk Jónasar Freydal Þorsteinssonar, voru ákærðir fyrir að selja 102 verk sem talin voru fölsuð. Í dómnum segir að hluti verkanna sé falsaður, vafi leiki um nokkurn hluta þeirra og sum séu ekki föls- uð. Pétur Guðgeirsson dómari og meðdómendur hans tveir tóku sér óvenju langan tíma til að komast að niðurstöðu enda málið viðamik- ið og dómurinn í 204 síðna skjali. Pétur Þór hlaut 6 mánaða skil- orðsbundinn dóm og Jónas 4 mán- uði skilorðsbundið. Pétur var jafnframt dæmdur til að greiða fjárfestingarfélaginu Gaumi 625 þúsund í skaðabætur. Ákært var fyrir 102 verk sem talin voru föls- uð en aðeins var sakfellt í örfáum tilvika. Alls voru 181 verk til rannsóknar. Í ákærunni, sem ríkissaksókn- ari gaf út, kemur fram að 14 aðil- ar gerðu skaðabótakröfu á hendur Pétri Þór, 5 á hendur Jónasi Frey- dal og 1 á hendur þeim sameigin- lega. Samtals námu skaðabóta- kröfur, auk miskabótakrafna og lögfræðikostnaðar, um 12,4 millj- ónum auk vaxta. Flest voru verk- in seld á árunum 1992 - 1996 og er um að ræða myndir listamanna á borð við Jóhannes Kjarval, Svav- ar Guðnason, Nínu Tryggvadóttur, Jón Stefánsson og Asgers Jorn. Dýrasta verkið er merkt Nínu og var það selt árið 1996 fyrir krónur 984.000.- Pétur Þór sagði strax eftir að dómur féll í gær að þetta væri mikill léttir en málið hefur nú ver- ið í gangi í um sjö ár. „Ég vonaðist náttúrlega eftir sýknun en bjóst í raun við hverju sem er.“ Karl Georg Sigurbjörnsson verjandi Jónasar Freydal tekur í sama streng og Sigríður Rut og talar um stórsigur í málinu. Hann segist tæplega geta ráðlagt skjól- stæðingi sínum að áfrýja skilorðs- bundnum dómi nema þá að um „prinsipp-mál“ sé að ræða: Að sak- laus maður hafi verið dæmdur sekur. Hann gerir því fastlega ráð fyrir að ákæruvaldið áfrýi – en sagt hefur verið að málið sé svo umfangsmikið að óhugsandi sé annað en það fari fyrir Hæstarétt. „Þetta er málamyndadómur og er ríkið látið bera sjö áttundu af málskostnaði. Í því hlýtur að fel- ast eindregin vísbending um að eitthvað hafi verið í ólagi hjá lög- reglunni.“ „Ég var sýknaður fyrir allt nema tvær myndir. Og þær falsaði ég ekki en samkvæmt dóminum þá hefði ég átt að vita að þær væru falsaðar,“ segir Jónas Freydal sem taldi þetta góðan dag en hann hef- ur staðfastlega haldið fram sak- leysi sínu. „Niðurstaða dómarans kom mér ekki á óvart, það hvarfl- aði aldrei að mér að ég yrði fund- inn sekur. Ég vonaðist til þess að hinir sjálfskipuðu sérfræðingar yrðu teknir í karphúsið og að alla- vega listfræðingar yrðu látnir end- urgreiða þessar miljónir sem þeir fengu fyrir að falsa listasöguna.“ Jón H. Snorrason, yfirmaður efnahagsdeildabrotar ríkislög- reglustjóra, sótti jafnframt málið. Hann kaus að tjá sig ekki um dóm- inn á þessu stigi málsins. Er þetta dýrasta og umfangsmesta lög- reglurannsókn sem gerð hefur verið hérlendis - og nam kostnað- ur við hana milli 40 og 50 milljóna króna. Er þá kostnaður við réttar- höldin ótalinn en þau voru um- fangsmikil og þurftu nokkur vitni að koma til landsins. Vægur dómur í fölsunarmálinu Verjendur telja dóminn í Stóra málverkafölsunarmálinu sigur fyrir sak- borninga. Dómurinn komst að þeirri niðurstöðu að flest málverkin væru örugglega eða líklega fölsuð en þótti sök sakborninga ósönnuð. PÉTUR ÞÓR GUNNARSSON OG SIGRÍÐUR RUT JÚLÍUSDÓTTIR. Sakborningur og verjandi fara yfir dóminn fyrir utan réttarsal í gær. Pétur hlaut afar vægan dóm. Verjandi Jónasar Freydal segist ekki geta ráðlagt skjólstæðingi sínum að áfrýja. JÓN H. SNORRASON Kaus að tjá sig ekki um dóminn fyrr en hann væri búinn að lesa hann. JÓNAS FREYDAL „Ég vonaðist til þess að hinir sjálfskipuðu sérfræðingar yrðu teknir í karphúsið.“ jakob@frettabladid.is hrs@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.