Fréttablaðið - 03.07.2003, Síða 8

Fréttablaðið - 03.07.2003, Síða 8
8 3. júlí 2003 FIMMTUDAGUR Hvað með gallabuxurnar? Það sem gerir fatnað að þjóð- búningum er það að vera notað- ur af þjóðinni í fjölda ára. Dóra Jónsdóttir. DV, 2. júlí. Búðin milli sanda Sennilega væri skynsamlegast að taka með sér golfsettið í vinnuna og æfa sig í að slá upp úr sandglompunni fyrir framan búðina. Rannveig Laxdal, búðareigandi við Bankastræti. DV, 2. júlí. Og frá Spaugstofunni Spaugilegast í þessu máli er að talsmenn Stöðvar 2 láta sem þeir viti ekki af samkeppni við Skjá einn eða Fréttablaðið. Markús Örn Antonsson, útvarpsstjóri. Morgunblaðinu, 2. júlí. Orðrétt Nautgripabændur á Grænlandi: Fá skosk naut LANDBÚNAÐUR Grænlendingar stef- na á aukna nautgriparækt og því hefur Niels Motzfeld, bóndi í ná- grenni við Nuuk, keypt tíu kýr og tvö naut af skoska hálandakyninu. Verða nautgripirnir fluttir frá Danmörku til Grænlands, þar sem freista á þess að ala þá. Grænland hefur upp á lítið und- irlendi að bjóða og er fóðuröflun því erfið. Gripið verður til þess ráðs að rækta sérstaka tegund rúgs sem nær allt að 2,5 metra hæð á aðeins tveimur mánuðum. Fóðuröflun fyrir nautgripina á með því að vera tryggð, þrátt fyr- ir að fóðurgildi rúgsins liggi ekki fyrir. ■ STJÓRNSÝSLA Fjármálaráðuneytið er að semja um sölu sumarbústaðs Lánasýslu ríkisins rétt við Búðir á Snæfellsnesi án þess að auglýsa hann til sölu. Að sögn Haf- steins S. Haf- steinssonar hjá f jármálaráðu- neytinu var talið rétt að verða við óskum eiganda aðliggjandi jarðar um að selja hon- um sumarbústaðinn beint. Umrætt sumarhús var byggt árið 1976 á um 90 hektara strand- jörð sem skipt mun hafa verið út úr jörðinni Kálfárvöllum í byrjun ald- arinnar sem leið. Ábúandinn þar, Bjarni Vigfússon jarðvinnuverk- taki er sagður vilja kaupa bústað Lánasýslunnar ásamt bróður sín- um Sigurði. Bjarni segir þó enn óljóst hverjir munu standa að kaupunum á Tjaldbúðum. „Það er ekkert komið á hreint með þetta,“ segir hann. Framkvæmdasjóður ríkisins leysti á sínum tíma jörðina og leiguréttindin á hekturunum 90 til sín á uppboði og byggði sumarbú- staðinn. Lánasýsla ríkisins yfirtók seinna Framkvæmdasjóð og sum- arhúsið, sem nú er nýtt sem or- lofshús fyrir starfsmenn Lána- sýslunnar. Þeir hafa aðgang að húsinu í síðasta skipti í sumar. Hafsteinn segir málið snúið. Sumarbústaðurinn standi á leigu- lóð með ótímabundnum samningi. Svo virðist sem leiga hafi ekki verið greidd síðustu áratugi. Með- al annars þess vegna þyki rétt að gefa ábúandanum á Kálfárvöllum kost á að kaupa bústaðinn og leiguréttinn. Látið verði reyna á hvort grundvöllur sé fyrir viðun- andi samningum fyrir ríkissjóð. Húsið sem fylgir jörðinni er 77 fermetrar og er brunabótamat þess 6,6 milljónir króna. Að auki eru þar gömul útihús og mann- virki sem tengjast áratuga göml- um og misheppnuðum bleikju- og laxeldistilraunum. Um jörðina rennur áin Kálfá og fellur hún í Búðaós. Samkvæmt nýútgefinni Stangaveiðihandbók selur Bjarni á Kálfárvöllum veiði- leyfi í ána á 1500 krónur. „Það er sáralítil veiði,“ segir Bjarni sjálf- ur um þann búskap. Mikil náttúrufegurð er á þess- um slóðum enda jörðin við hlið friðlandsins í Búðahrauni. Miklar fjörur fylgja jörðinni með tilheyr- andi fuglalífi og reka auk þess sem nokkuð mun vera um sel. Hafsteinn segir samningavið- ræður um söluna á Tjaldbúðum „á viðkvæmu“ stigi og vill ekkert gefa upp um það verð sem fjár- málaráðuneytið vill fyrir eignina. gar@frettabladid.is BRASILÍA, AP Nýjar loftmyndir af Amazon-svæðinu í Brasilíu sýna að eyðing regnskóganna hefur aukist verulega samfara örum vexti í landbúnaði. Áætlað er að um 25.000 ferkíló- metrar af skóglendi hafi horfið frá ágúst 2001 til ágúst 2002. Þetta er um 40% aukning frá árinu áður. Vísindamenn við Umhverfisrann- sóknarstofnun Amazon segja að skýringanna sé einkum að leita í fjölgun bænda sem höggvi skóg- inn til að rýma land fyrir akur- yrkju og búfénað. Regnskógar Brasilíu þekja um fjórar milljónir ferkílómetra eða um 60% af landinu. Á undanförn- um áratugum hafa um 16% af skóglendinu horfið vegna ólög- legs skógarhöggs, landbúnaðar, þéttbýlismyndunar og vegagerð- ar. Niðurstöður rannsókna Um- hverfisrannsóknarstofnunarinnar í samstarfi við bandaríska vís- indamenn benda til þess að allt að 270.000 ferkílómetrar regnskóga muni eyðast á næstu 35 árum þar sem nýir vegir laði að landnema og auðveldi flutning viðar. Stjórnvöld í Brasilíu ætla að kynna tillögur um úrbætur í næstu viku. Skortur á fjármagni og spilling í brasilíska dómskerf- inu hefur hingað til staðið barátt- unni gegn eyðingu regnskóganna fyrir þrifum. ■ SELFOSS Heilbrigðisráðherra hef- ur synjað Lyf & Heilsu um lyf- söluleyfi í Vestmannaeyjum. Fyrir er eitt apótek í Vestmanna- eyjum, Plús Apótek. Eigendur þess lögðust mjög gegn því að fá annað apótek til Eyja og skiptar skoðanir eru um málið í bæjar- stjórn. Á fundi bæjarstjórnar 28. maí var tillaga um að mæla með lyf- söluleyfinu felld með þremur at- kvæðum með, þrír voru á móti og einn sat hjá. Meðmæltir voru tveir fulltrúar V-lista og einn fulltrúi B-lista, á móti voru einn fulltrúi V-lista og tveir fulltrúar D-lista en sá þriðji þeirra sat hjá. Í rökstuðningi ráðuneytisins með synjuninni segir m.a.: „Ráðuneytið telur að umsækj- andi um lyfsöluleyfi hafi ekki sýnt fram á að þjónustu við neyt- endur sé betur borgið verði nýtt lyfsöluleyfi veitt til viðbótar því sem fyrir er í Vestmannaeyjabæ, eða í staðinn fyrir það, þróist mál á þann veg. Draga verður í efa að í 4500 manna byggð sé grund- völlur fyrir rekstur fleiri en einnar lyfjabúðar. Verði reknar tvær lyfjabúðir er sú hætta því fyrir hendi að önnur þeirra neyð- ist til þess að hætta rekstri.“ ■ LONDON, AP Tony Blair, forsæt- isráðherra Bretlands, skoraði í gær á þá sem sakað hafa ríkis- stjórn hans um blekkingar vegna Íraksstríðsins, að færa sönnur á mál sitt. Ríkisstjórn Blairs hefur verið sökuð um að hafa ýkt skýrsl- ur um vopnaeign Íraka en skýrsl- urnar vógu þungt þegar Bretar ákváðu að taka þátt í hernaði gegn Írak. Tony Blair segir það upp- spuna að fullyrðingum um að Saddam Hussein gæti gripið til gereyðingarvopna á þremur stundarfjórðungum, hafi verið bætt inn í fyrrgreinar skýrslur. „Hafi menn gögn sem sýna hið gagnstæða skora ég á menn að leggja þau fram. Ég held að menn ættu ekki að setja fram svo alvar- legar ásakanir nema rökstyðja þær með gögnum,“ sagði Blair. ■ ÓGN EÐUR EI? Tony Blair virðist hafa fengið nóg af ásökunum í garð ríkisstjórnar sinnar vegna Íraksstríðs- ins. Hann skorar á gagnrýnendur að leggja fram gögn til að sanna ásakanir um blekkingar stjórnarinnar. Meintar blekkingar Bretlandsstjórnar: Blair kallar eftir sönnunum BÓNDI Í BRASILÍU Regnskógarnir í Brasilíu eru í bráðri hættu vegna ólöglegs skógarhöggs, fjölgunar bænda, þéttbýlismyndunar og lagningar nýs vegakerfis. Eyðing regnskóganna jókst um 40% á einu ári: 25.000 ferkílómetrar skóglendis horfnir M YN D AP BÚÐAÓS Sumarhúsið á Tjaldbúðum er á tanga við Búðaós gegnt Hótel Búðum. Á fjöru er hægt að ganga þó nokkur hundruð metra sem eru að hótelinu. Sumarhús ríkisins selt án auglýsingar Fjármálaráðuneytið vill selja sumarbústað á 90 hektara landi við Búðir til ákveðins aðila án auglýsingar. Ráðuneytið segir viðkomandi hafa sótt málið fast og telur hann vel að eigninni kominn þar sem hann búi á næstu jörð. Tjaldbúðin „Það er ekkert komið á hreint með þetta. JÓN KRISTJÁNSSON Hefur hafnað því að gefa út lyfsölu- leyfi svo hægt sé að opna nýtt apó- tek í Vestmannaeyjum. Apótekum fjölgar ekki í Vestmannaeyjum: Ráðherra synjar um nýtt lyfsöluleyfi

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.