Fréttablaðið - 03.07.2003, Side 16

Fréttablaðið - 03.07.2003, Side 16
18 3. júlí 2003 FIMMTUDAGUR Undanfarna daga hafa á síðumFréttablaðsins komið fram mis- munandi skoðanir á því hvort konur séu einungis þolendur launamis- réttis eða hvort þær á einhvern hátt viðhaldi því og séu því samábyrgar. Af þessu tilefni langar mig að vekja athygli á rannsókn sem ég hef unnið ásamt samstarfsmönnum mínum. Rannsóknin miðar ekki að því að skoða launamun kynjanna heldur að skoða viðhorf og reynslu unglinga fyrst og fremst af náttúr- unni og náttúrufræðum og þeim áhrifum sem þessir þættir hafa. Jafnframt voru könnuð viðhorf unglinganna til ýmissa þátta sem áhrif gætu haft á starfsval þeirra. Í rannsókninni voru 620 fimmt- án ára gamlir unglingar meðal ann- ars spurðir um 26 þætti sem hefðu áhrif á hugsanlegt framtíðarstarf þeirra og kom fram verulegur mun- ur á svörum drengja og stúlkna. Í stuttu máli kom fram að stúlkur lögðu mun meiri áherslu á að vinna á skapandi hátt, að fá að taka sjálf- stæðar ákvarðanir, að hafa góðan tíma fyrir sjálfar sig, vini sína og fjölskyldur, að starfið væri fjöl- breytilegt, og að þar nýttist kunn- átta þeirra og hæfileikar. Drengirn- ir höfðu mun meiri áhuga á því að fá hátt kaup. Viðhorf kynjanna Rannsóknin varpar ljósi á við- horf unglinga á þeim aldri þegar líð- ur að því að þeir velja sér farveg í lífinu. Munur á viðhorfum kynjanna er athyglisverður og margar spurn- ingar vakna. Þeir sem áhyggjur hafa af stöðu kvenna ættu ef til vill að velta fyrir sér hvort og þá að hve miklu leyti þessi munur á viðhorf- um hefur áhrif á launamun kynj- anna. Aðrir kynnu að hafa áhyggjur af því hvort ofuráhersla sem fimmt- án ára drengir leggja á há laun kunni að vera varasamur fylginaut- ur þegar þessir drengir velja sér starfsvettvang. Vera má að þegar til lengdar lætur skipti aðrir þættir en laun ekki síður máli varðandi starfsánægju og lífshamingju. Hér verður ekki fjallað um hvað kunni að valda þeim mun sem rannsóknin sýnir á viðhorfum kynjanna. Þar er óplægður akur rannsókna sem eru gríðarlega mikilvægar fyrir þá sem vilja bæta samfélagið konum og körlum til hagsbóta. ■ Stúlkur hafa minni áhuga á háum launum Þjóðmál maí 2003 HAUKUR ARA- SON ■ lektor við Kennara- háskóla Íslands, skrifar um launamun kynja Með lögum skal land byggja ogþað er ekki nokkurri þjóð til vansa að eiga atorkusamt og framsækið lögreglulið sem fylgir þeim eftir. Að vísu er hér enginn Morse, Barnaby eða Wallander, né heldur vinsamlegir hverfislög- regluþjónar sem bjarga köttum ofanúr ljósastaurum, hafa hendur í hári hverfisperranna og hjálpa til við óvæntar barnsfæðingar í heimahúsum. En lögregluliðið okkar hefur nú samt staðið sig með prýði við að aðstoða borgar- ana í nauðum og uppljóstrun þeir- ra fremur hversdagslegu glæpa sem reglulega eru framdir hér í borgum og bæjum. Hins vegar virðist nú sem lögreglan sé að til- einka sér breyttar starfsaðferðir sem gefur til kynna að þessi að- ferð, þ.e.a.s. að upplýsa glæpinn eftir að hann er framinn, þyki orð- in gamaldags og jafnvel úrelt. Lögreglan virðist nú vera farin að starfa eftir nýjum forskriftum sem skila áhrifaríkari vinnuað- ferðum og eru til þess fallnar að spara samfélaginu mikið fé. Hin- ar nýju aðferðir felast í forvörn- um, forspám og því að handsama illvirkjana áður en ódæðið er framið og er hagræðing þessa augljós og þríþætt. Í fyrstu er komið í veg fyrir tjónið sem glæp- urinn sjálfur hefði valdið. Því næst er engu til kostað við rann- sókn málsins og handsömun glæpamannanna og að lokum sparast stórfé með því að koma í veg fyrir að málið fari fyrir dóm því enn er ekki réttað í málum þar sem afbrot er ekki framið. Skelfirinn Lalli gripinn Skemmst er að minnast þess þegar Lalli nokkur, íbúi í Þingholt- um til 16 ára (þ.e.a.s frá fæðingu og núorðið þekktur undir nafninu Brókar-Lalli), gekk um Laufásveg- inn með nærbuxur á höfðinu. Þar sem víst þótti að foreldrar Lalla hefðu í æsku hans upplýst hann um þann gamalreynda sið að nærbux- um klæðist menn neðan til, sáu verðir laganna að hann hafði eitt- hvað óeðlilegt í hyggju. Snarlega var gripið í taumana. Brókar-Lalli var handtekinn, plagginu svipt af höfði hans og þar með hafði verið komið í veg fyrir glæpinn. Þar sem ókunnugt er um eðli hins væntan- lega glæps Brókar-Lalla má öllum vera ljóst að afleiðingarnar hefðu getað spannað allan afleiðingaskal- ann, allt frá slæmum upp í ógurleg- ar eftir því hver glæpurinn hefði verið. Undarlegur klæðnaður kemur enn við sögu Næst má minnast þess þegar fregnir bárust af því frá Austur- löndum fjær að Kínverjar í gulum fötum væru þekktir af ýmsu mis- jöfnu. Þar sem vitað var að hópur þvílíkra einstaklinga var væntan- legur til landsins gripu menn snar- lega í taumana. Kínverjarnir voru gripnir og læstir inni í skóla í Njarðvík. Afleiðingin var sú, eins og allir vita, að það tókst að koma í veg fyrir óeirðir, ágang og önnur þau illvirki sem Kínverjarnir voru búnir að ráðgera að fremja hér á landi. Óvarleg innkaup Næst skal minnst kvennanna tveggja sem ætluðu að fremja glæp í Þingholtunum, á svipuðum slóðum og Brókar-Lalli var handsamaður. Þessar konur voru á ferð með eggjabakka og tómatsósuflösku í poka og sá lögreglan undir eins að yfirvofandi var glæpaverk sem ekki mátti ná fram að ganga. Kon- urnar voru handsamaðar, eggin og tómatsósan gerð upptæk og ógninni aflétt. Enginn glæpur framinn og húsmæður í Þingholtum hafa vissu- lega lært að velja ofan í innkaupa- pokana af meiri ábyrgð. Nú í vor gerðist atvik sem sann- aði ótvírætt ágæti hinna nýju vinnuaðferða. Lögreglumenn höfðu víst ekki verið nógu vakandi og því tókst einhverjum óprúttnum að sletta rauðri málningu á Stjórnar- ráðshúsið. Geir Jón, andlit Reyk- vískra lögreglumanna útávið, brást skjótt við og þegar hann birtist í sjónvarpinu þá um kvöldið til þess að lýsa ódæðinu og róa landsmenn sagði hann að nánast væri búið að upplýsa málið. Nú, málið var upp- lýst að því leyti að það var staðfest að illvirkjar hefðu slett málningu á Stjórnarráðið en ekki tókst að hafa hendur í hári þeirra og ganga þeir lausir enn þann dag í dag. Lexían sem dregin verður af þessu er að sjálfsögðu sú að hefðu illvirkjarnir verið handteknir fyrirfram hefði glæpurinn ekki verið framinn. Þú tryggir ekki eftir á Það er líklega í ljósi þessarar bitru reynslu að Geir Jón og glögg- ir menn hans fjarlægðu hóp vænt- anlegra friðarspilla af Austurvelli nú á 17. júní. Óeirðaseggirnir héldu á lofti grænum föndurpappír og uppúrétnum pizzukössum og höfðu krotað á þá kröfur sem ekki þykja sæmilegar. Að þeir skyldu þó ná að komast þetta nálægt því að fremja glæpinn kom til af kænsku og ein- beittum brotavilja því að eigin sögn höfðu þeir falið áhöldin innan á sér þegar þeir laumuðu sér inn á hátíð- arsvæðið. Það munaði litlu að klæk- ir þessir dygðu til að hafa betur í viðureigninni við Geir Jón en þó ekki alveg. Óeirðaseggirnir voru fjarlægðir og truflunin sem af þessu hlaust var minni en sú sem orðið hefði ef lýðurinn hefði náð að fullfremja afbrotið. Nóg þótti nú samt um tillitsleysi og ósvífni þess- ara manna eins og fulltrúi lögregl- unnar sagði í sjónvarpinu. Nú vill maður síður fullyrða um hluti sem ekki eru fullsannaðir en líklegt er að glæpum á landinu hafi fækkað með tilkomu þessarar nýju forvarnastefnu. En hitt er óumdeil- anlegt, að ófrömdum glæpum í Reykjavík hefur fjölgað til mikilla muna, þökk sé okkar vösku vörðum laga og réttar. ■ Vaki, vaki vaskir menn Þjóðmál maí 2003 KRISTÍN ATLADÓTTIR ■ skrifar um vinnuað- ferðir lögreglunar í Reykjavík VERÐDÆMI VERÐ ÁÐUR VERÐ NÚNA Bikini toppur 3.099 kr. 1.550 kr. -50% Bikini buxur 2.799 kr. 1.400 kr. -50% Bikini pils 3.099 kr. 1.550 kr. -50% brjóstahaldari 4.299 kr. 1.290 kr. -70% nærbuxur 1.499 kr. 450 kr. -70% KNICKERBOX ÚTSALAN ER BYRJUÐ 20-70% AFSLÁTTUR G E Ð V E IK T IL B O Ð G E Ð V E IK T IL B O Ð SENDUM Í PÓSTKRÖFU KNICKERBOX KRINGLUNNI, SÍMI: 551 5444 LAUGAVEGI 62, SÍMI: 533 4555 Í I I I, Í I: I , Í I: Nýi Freemanslistinn er kominn út. Vandaðar vörur á góðu verði. Tryggðu þér eintak í síma 565 3900 - pöntunarlínan opin til 22 alla daga Í verslun Freemans stendur yfir útsala - 40% - 50% afsláttur Freemans - Hjallahrauni 8 220 Hafnarfjörður www.freemans.is - s: 565 3900

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.