Fréttablaðið - 03.07.2003, Page 20
22 3. júlí 2003 FIMMTUDAGUR
AKUREYRI • REYKJAVÍK • KEFLAVÍK
Enska knattspyrnan:
Bellion til
United
FÓTBOLTI Frakkinn David Bellion
hefur gengið til liðs við
Manchester United frá Sunder-
land. United reyndi að fá hann til
sín í vetur en tilboði félagsins
upp á 1,5 milljónir punda var
hafnað. Samningur Bellion rann
út á mánudag og skiptir hann því
um félag án þess að Sunderland
fái greitt fyrir félagaskiptin.
Bellion sagði í samtali við vef
BBC að United væri félag sem
unga leikmenn dreymdi um að
leika með og Alex Ferguson
sagði að leikmaðurinn félli vel að
framtíðaráformum félagsins. ■
RALLÍ Þegar sjö umferðum af fjórt-
án er lokið í heimsmeistarakeppni
rallökumanna eru línur farnar að
skýrast í keppni bílasmiða en í
keppni ökuþóra er staðan mun
jafnari en á síðasta ári þegar Finn-
inn Marcus Grönholm sigraði
keppnina með yfirburðum og end-
aði með 40 stiga forskot á næsta
mann, Norðmanninn Petter Sol-
berg.
Grönholm situr eins og er í
þriðja sæti og hefur verið afar
óheppinn með bíl sinn. Hann hefur
þrisvar þurft að hætta keppni
vegna bilana. Af þeim fjórum
keppnum sem hann hefur náð að
klára hefur hann unnið þrjár. Mikl-
ar vonir eru bundnar við norska
ökuþórinn Petter Solberg sem sigr-
aði á síðasta móti sem fram fór á
Kýpur og þykir hafa tekið miklum
framförum síðustu misserin.
Bretinn Richard Burns leiðir
stigamótið en Spánverjinn Carlos
Sainz sem tvívegis hefur unnið
heimsmeistaratitilinn er í öðru
sæti.
Næsta keppni fer fram nálægt
Trier í Þýskalandi þann 24. júlí. ■
STAÐA BÍLAFRAMLEIÐANDA Í
HEIMSMEISTARAKEPPNI
RALLÖKUMANNA
1. Peugeot 81 stig
2. Citröen 73 stig
3. Subaru 47 stig
4. Ford 43 stig
5. Skoda 20 stig
6. Huyndai 6 stig
STAÐA RALLÖKUMANNA
1. Richard Burns Bretlandi 37 stig
2. Carlos Sainz Spáni 36 stig
3. Marcus Grönholm Finnlandi 30 stig
4. Petter Solberg Noregi 29 stig
5. Markko Martin Eistlandi 23 stig
HEIMSMEISTARAKEPPNIN Í RALLAKSTRI
Stigakeppnin er hálfnuð og fá stig skilja að efstu menn.
Heimsmeistaramótið í rallí hálfnað:
Grönholm verið óheppinn
ABRAMOVICH
Rússneski kaupsýslumaðurinn Roman
Abramovich er talinn 19. ríkasti maður Evr-
ópu, næstur á eftir Silvio Berlusconi, for-
sætisráðherra Ítalíu.
Roman Abramovich
keypti Chelsea:
Einn ríkasti
maður
Evrópu
FÓTBOLTI „Þetta var engin skyndiá-
kvörðun,“ sagði ráðgjafi Roman
Abramovich, rússneska kaup-
sýslumannsins sem keypti 140
milljóna punda hlut í Chelsea á
þriðjudag. „Menn hans höfðu áður
skoðað nokkur fótboltafélög,“
sagði ráðgjafinn við BBC og bætti
því við að Abramovich væri tilbú-
inn að gera það sem þyrfti til að
hefja Chelsea í hæstu hæðir evr-
ópskrar knattspyrnu.
Viðskiptatímaritið Forbes telur
Abramovich 19. ríkasta mann
Evrópu. Hann á olífyrirtækið Sib-
neft og sjónvarpsstöðina ORT,
fyrirtæki í áliðnaðinum og stóran
hlut í flugfélaginu Aeroflot. Hann
var valinn í Dúmuna, neðri deild
rússneksa þingsins árið 1999 og
hefur verið héraðsstjóri í
Chukotka í Síberíu. ■
BECKHAM KYNNTUR
Með nýja númerið sitt á bakinu.
Bitur út í Beckham:
Mistök
hjá Real
FÓTBOLTI Sandro Rossell, varafor-
seti Barcelona, þakkar sínum
sæla fyrir að þeir keyptu ekki
David Beckham eftir að hafa ver-
ið vitni að fjölmiðlafárinu sem
gengið hefur yfir síðan hann kom
til Spánar.
„Real Madrid á eftir að lenda í
vandræðum með alla þessa
stjörnuleikmenn innanborðs. Allt
fárið og lætin í kringum Beckham
er ekki eitthvað sem við höfum
áhuga á að sjá hér hjá Barcelona.“
Bitur Rossell gekk einnig svo
langt að spá því að forráðamenn
Real muni fljótt sjá að kaupin á
Beckham voru mistök. ■