Fréttablaðið - 03.07.2003, Síða 22
Við höfum lent í því að taka af mönn-um allt frá naglaþjölum yfir í sagir,
hamra og önnur stór verkfæri en oftar
en ekki bregðast menn vel við og skilja
að þetta eru reglur sem við verðum að
fara eftir,“ segir Kári Gunnlaugsson að-
aldeildarstjóri hjá Tollgæslunni á
Keflavíkurflugvelli.
Fleiri en gera hefði mátt ráð fyrir
flaska á því að reglur eru í gildi um
hvað bera megi í handfarangri inn í
flugvélar. Kári bendir á að þessir hlutir
séu alls ekki bannaðir heldur verði
menn að tékka inn alla slíka hluti. Hann
segist ekki minnast þess að skapast hafi
verulegur vandi vegna dýra hluta sem
illt sé að missa, þeir reyni að leysa úr
málum ef svo beri undir. „Hins vegar
verðum við að farga öllum skærum og
smádóti því magnið er svo mikið að ekki
er hægt að ná í það þegar fólk kemur
aftur til landsins,“ segir hann.
Á hverri viku eru fljót að fyllast ílát-
in sem tólin eru sett í og segir Kári að á
síðasta ári hafi þeir safnað á milli 11-12
þúsund skærum sem fari í sorpeyð-
ingastöð í brotajárn. „Ég held að
menn viti af þessu en athugi það
ekki áður en pakkað er niður. Oft
eru konur með snyrtitöskur sínar í
handfarangri og hugsa ekki út í þessa
hluti. Það hefur breyst og fólk er alltaf
að átta sig betur og betur á að pakka
þessu niður í tösku.“
Kári nefnir einnig að fyrir komi að
útlendingar séu með gaskúta, bensín-
brúsa, veiðihnífa og ýmislegt annað
því tengt. „Það segir sig sjálft að
þegar um það bil 2000 manns fara
í gegn hjá okkur á dag þá eru ílát-
in fljót að fyllast,“ segir Kári
Ef aðeins eitt prósent þeirra
sem fara í gegn á degi hverjum
eru með eitthvað sem þarf að
taka þá eru það 20 skæri og
naglaþjalir á dag. Á einni viku
væru það 140. Það er fljótt að
koma. Menn ættu því að
huga vel að handfarangri
sínum og fara vandlega yfir
hann áður en haldið er í
sumarfríið. ■
Margt ólöglegt leynist í farangri ferðalanga:
Allt frá skærum yfir í
hamar og sög
Það vita það ekki margir, en Akra-fjall stóð eitt sinn fyrir sunnan
Hvalfjörð. Sagan segir að
tröllskessa hafa tekið það upp og
misst það niður á þeim stað þar sem
það stendur núna, þegar sólin kom
upp. Þetta hafði hins vegar þær af-
leiðingar í för með sér að fjallið
brotnaði í tvennt og í dag er það í
raun tvö fjöll, aðskilin af dal sem
kallast Berjadalur. Tröllskessan er
sem betur fer löngu farin og því er
okkur mannabörnunum óhætt að
ganga á fjallið. Gangan hefst við
mynni Berjadals en þangað er hægt
að keyra á afleggjara sem liggur frá
Akranesveginum (vegur 51).
Jókubunga er hæsti tindurinn
(520 m) sunnanmegin á fjallinu og
þangað er ágætt að stefna fyrst.
Þegar upp er komið er þetta fína út-
sýni til Reykjavíkur og yfir fjöllin í
kring, Botnssúlur, Hafnarfjallið,
Skarðsheiðina, Esjuna og svo fram-
vegis. Skemmtilegt er að ganga
hringinn uppi á fjallinu og halda á
Geirmundartind (643) sem er hæsti
tindurinn á Akrafjalli. Þar er svo
góð leið til niðurgöngu. ■
ferðir o.fl.
Vikulegur blaðauki Fréttablaðsins um ferðir – innanlands og utan
Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: ferdir@frettabladid.is. Auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is. Þjónustuauglýsingar: Gula línan, sími 580 8090 – netfang: auglysingar@gulalinan.is.
Þjóðlagahátíð á Siglufirði. Sérstök rækt
við hinn forna söngdans Íslendinga, vikivak-
ann. Hátíðinni lýkur á laugardag.
3. - 7. júlí. Víkur, nes og firðir í ná-
grenni Gerpis. Ferð Útivistar hefst á Norð-
firði og lýkur þar.
20.00 Borgarfjörður Kvöldganga UMSB
og Veiðimálastofnunar við Hítará.
08:30 Sveinstindur - Skælingar Fjög-
urra daga ferð á vegum Útivistar. Lagt af
stað frá BSÍ.
17.00.Fimmvörðuháls, næturganga Úti-
vistar. Gist eina nótt á Fimmvörðuhálsi og
aðra í Básum. Brottför frá BSÍ.
17.00 Básar á Goðalandi . Helgarferð
með Útivist.
hvað?hvar?hvenær?
30 1 2 3 4 5 6
JÚLÍ
Fimmtudagur
UPPTÆKT!
Í handfarangri eru oft
skæri og og önnur tól
til að snyrta neglur. Ef
ekki á að sjá eftir
þeim í dollur tollsins
þá er réttara að pakka
þeim öllum
niður í
tösku.
Fjöllin í kringum Reykjavík:
Gengið á Akrafjall
AKRAFJALL
Blasir við úr Reykjavík nema
í allra verstu veðrum og
þangað er skemmtileg
ganga.
1 2 3 4 5 6 7
Föstudagur
Göngutími: Fimm til sex klst.
Hækkun: Um 500 m
Lengd: Um 12 km
Gjaldey
ris-
gla›nin
gur! Fer›ahandklæ›in
eru komin!