Fréttablaðið - 03.07.2003, Side 24
■ ■ NÁMSKEIÐ
13.30 Árbæjarsafn býður upp á
stutt námskeið um hvernig eigi að tálga
fyrir foreldra og börn, eða afa og ömmu
og barnabörn. Ætlast er til að börn komi
í fylgd með fullorðnum sem aðstoða
börnin. Hvert námskeið stendur þrjár
klukkustundir.
■ ■ TÓNLIST
12.00 Hádegistónleikar í Hall-
grímskirkju. Þetta eru fyrstu hádegis-
tónleikar sumarsins en fram koma
flautuleikarinn Guðrún S. Birgisdóttir
og organistinn Kjartan Sigurjónsson.
Það er tónleikaröðin Sumarkvöld við
orgelið sem stendur að hádegistón-
leikaröðinni ásamt Félagi íslenskra
organleikari.
21.30 Heitur fimmtudagur í Deigl-
unni. Kvartett Ómars spilar með latino-
sveiflu. Ómar Einarsson leikur á gítar,
Snorri Sigurðsson á trompet, Stefán Ing-
ólfsson rafbassi og Benedikt Brynleifs-
son spilar á trommur.
Diskórokktekið & Plötusnúðurinn DJ
SkuggaBaldur skemmta á Víkinni,
Höfn í Hornafirði, en þar er hafin
Humarhátíð.
Trúbadorinn Óskar Einarsson
skemmtir á Ara í Ögri.
Hljómsveitin Sign leikur á Grand
Rokk.
Hljómsveitirnar Vínyll og Leaves
halda tónleika á Gauknum.
■ ■ SÝNINGAROPNANIR
Hjördís Árnadóttir opnar myndlist-
arsýningu í gamla bókasafninu að
Hafnarbraut 36 á Höfn. Sýningin er lið-
ur í menningardögum á Höfn í Horna-
firði.
26 3. júlí 2003 FIMMTUDAGUR
Ég er kominn hingað til landsvegna heimsóknar forseta
Þýskalands. Þetta kom þannig til
að ég var í Austur-Afríku fyrir
nokkrum árum þar sem ég hitti
þjóðverja nokkurn. Hann sagði
mér frá því að hann væri á leið til
Berlín að læra íslensku og í kjöl-
farið til Íslands til að starfa sem
sendiherra,“ segir Guðni A. Em-
ilsson hljómsveitarstjóri og bætir
því við að eftir að hafa rætt við
hann í Afríku hafi þeir ekki verið
í neinu sambandi. „Það var síðan
núna fyrir stuttu að hann hringdi í
mig og bað mig um að koma með í
opinbera heimsókn til Íslands.“
Guðni er hingað kominn með
Kammersveit Tubingen en hún
var stofnuð árið 1957 og hefur
Guðni stjórnað henni allt frá ár-
inu 1998. „Ég er búin að vera bú-
settur í Þýskalandi frá árinu 1986
og stjórnað meðal annars Sifóníu-
hljómsveit Æskunnar í Tubinen,
er einnig reglulegur gestastjórn-
andi hjá Ríkishljómsveit Thessa-
loniki á Grikkalandi auk þess sem
ég tók við stjórnarstarfi Suk
Kammersveitarinnar í Prag
haustið 2000.“
Aðspurður hvernig það sé að
ferðast í fylgd Johannes Rau,
þýska forsetans, segir Guðni það
vera mjög gaman en jafnframt
sérstakt. „Forsetaembættið í
Berlín vildi endilega fá mig með
og tengja þannig saman menn-
ingu landanna.“
Að sögn Guðna munu þau
leika mjög fjölbreytta dagskrá í
kvöld, meðal annars verk eftir
Mozart, Bach og Schubert en
enda síðan á fallegu lagi eftir
Þórarinn Guðmundsson í
útsetningu Atla Heimis
Sveinsonar.
Einleikarar með
sveitinni verða tveir,
fiðluleikararnir Sus-
anne Calgéer og Jul-
ia Galic. Tónleikarn-
ir hefjast klukkan 20
í kvöld í Salnum.
vbe@frettabladid.is
■ TÓNLIST
GUÐNI A. EMILSSON
Kemur hingað til lands
með Kamarsveit
Tubinen í tilefni að komu
Johannes Rau, þýska for-
setans. Sveitin heldur
tónleika í Salnum í
kvöld klukk-
an 20.
DR. BALDUR ÞÓRHALLSSON
Baldur á heiður af hugmyndinni um
stofnun Rannsóknarseturs um smáríki.
Rannsóknarsetrið verður formlega opnað í
dag í Hátíðarsal Háskólans klukkan 13.
Smáríkjum
fundinn
staður
Ídag verður formlega opnaðRannsóknarsetur um smáríki í
Háskóla Íslands. Þema opnunar-
innar verður staða smáríkja í al-
þjóðasamfélaginu. Stjórnarfor-
maður Rannsóknarsetursins er
dr. Baldur Þórhallsson og mun
hann kynna starfsemi setursins.
Starfsemi Rannsóknarsetursins
heyrir undir Alþjóðamálastofnun
Háskóla Íslands og er markmið
hennar að auka rannsóknir og
fræðslu í smáríkjafræðum. Und-
irbúningur að stofnun Rannsókn-
arsetursins hefur staðið allt frá
haustinu 2001 og var það að frum-
kvæði Baldurs. Hugmyndin að
stofnun þess féll í mjög góðan
jarðveg og hefur hún meðal ann-
ars hlotið verðlaun í hugmynda-
samkeppninni „Upp úr skúffun-
um“ og styrki frá ERASMUS.
Sérstakir gestir munu ávarpa
hátíðina en það eru herra Ólafur
Ragnar Grímsson forseti Íslands,
dr. Peter Katzenstein prófessor
við Cornell háskólann í Banda-
ríkjunum, Lennart Meri fyrrver-
andi forseti Eistlands og stjórn-
arformaður sambands smáeyja-
þjóða innan Sameinuðu þjóðanna.
Hátíðin hefst klukkan 13 í Há-
tíðarsal Háskólans. ■
Í fylgd forsetans
■ RANNSÓKNIR
Borgarskjalasafn Reykjavíkur
www.rvk.is/borgarskjalasafn, sími: 563 1770
Hver var Lárus?
Sýning um Lárus Sigurbjörnsson,
skjala- og minjavörð Reykjavíkurbæjar
1954-1968 á 3. hæð, Tryggvagötu 15.
Opin alla virka daga kl. 10-16.
Aðgangur ókeypis.
www.ljosmyndasafnreykjavikur.is • 563 1790
Frumefnin Fimm -
Ferðadagbækur Claire Xuan
24. maí - 1.sept. 2003
Tekið er á móti hópum eftir samkomulagi,
nánari upplýsingar í síma 563 1790.
Afgreiðsla og skrifstofa opin virka daga
frá 10-16. Opnunartími sýninga virka daga
12-19 og 13-17 um helgar.
Aðgangur ókeypis
www.listasafnreykjavikur.is
Sími 590 1200
HAFNARHÚS, 10-17
Smekkleysa í 16 ár,
Alþjóðleg samtímalist á Íslandi, Erró - Stríð
Leiðsögn alla sunnud. kl. 15.00
KJARVALSSTAÐIR, 10-17
Íslensk samtímaljósmyndun,
Kjarval.
Leiðsögn alla sunnud. kl. 15.00
ÁSMUNDARSAFN, 10-16
Ásmundur Sveinsson – Nútímamaðurinn
Minjasafn Reykjavíkur
Árbæjarsafn - Viðey
www.arbaejarsafn.is
s: 577-1111
Árbæjarsafn:
Tónleikar laugardag
Fornbíladagur sunnudag
Ljúffengar veitingar í Dillonshúsi
Námskeið í jurtalitun í næstu viku
Viðey:
Fjölskyldudagur sunnudag
Ganga þriðjudag kl. 19.30
Menningarmiðstöðin Gerðuberg
www.gerduberg.is • sími 575 7700.
LOKAÐ VEGNA
SUMARLEYFA
s. 563 1717
BÆKUR Í FRÍIÐ
til að lesa úti í sólinni
eða inni í rigningunni.
Hugmyndir að sumarlestri
á heimasíðu Borgarbókasafns.
Upplýsingar á heimasíðu safnsins
www.borgarbokasafn.is
Minjasafn Orkuveitunnar
Minjasafn Orkuveitunnar í
Elliðaárdal er opið
sun. 13-17
og eftir samkomulagi
í s. 567 9009