Fréttablaðið - 03.07.2003, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 03.07.2003, Blaðsíða 27
FIMMTUDAGUR 3. júlí 2003 ótroðnar slóðir... ÍS LE N SK A A U G L SI N G A ST O FA N /S IA .I S U TI 2 14 07 06 /2 00 3 Smáralind mán.-fös. kl. 11-19 lau. kl. 11-18 sun. kl. 13-18 Glæsibæ mán.-fös. kl. 10-18 lau. kl. 10-16 OPI www.utilif.is Smáralind - Glæsibæ Sími 545 1550 og 545 1500 Þeir sem fara Þú getur treyst góðum ráðum og vönduðum útivistarbúnaði. Dakota Frábært fjölskyldutjald. Stórt fortjald sem opnast á tvo vegu. Létt og fyrirferðalítið. Auðvelt í uppsetningu. Verð: 3ja manna 24.990 kr. 4ra manna 29.990 kr. 5 manna 34.990 kr. ...nota alvöru útbúnað og n ta sér ráð sérfræðinga. High Peak Sonic Góður fjölskyldupoki fyrir sumar, vor og haust. Mesta kuldaþol -10°C. Þyngd 2,1 kg Verð áður 7.990 kr. Tilboð 5.990 kr. Meindl Malaysia Léttir og liprir gönguskór, góðir í útileguna. Verð áður 12.990 kr. Tilboð 9.990 kr. Tvöföld vindsæng með innbyggðri rafknúinni pumpu og velúráferð. Verð áður 9.990 kr. Tilboð 7.990 kr. Metallica verður risi Metallica tók sér lengri tíma en vanalega við gerð næstu plötu. Lagasmíðar urðu hefðbundnari og einfaldari enda platan blygðunar- laus tilraun sveitarinnar til að kom- ast alla leið upp á yfirborðið, sem tókst. Platan, sem hét nafni sveitar- innar en hefur verið kölluð „Svarta platan“, kom út árið 1991. Lög á borð við Nothing Else Matters og Enter Sandman áttu vel upp á pall- borðið hjá MTV. Með aðstoð upp- tökustjórans Bob Rock náði sveitin til breiðari hóps en venjulega og án þess að missa staðfastan aðdáenda- hóp sinn. Platan fór á toppsölulista um allan heim og seldist í sjö millj- ónum eintaka í Bandaríkjunum. Í kjölfarið eyddi Metallica tveimur heilum árum í tónleikaferð um heiminn. Liðsmenn brenndu sjálfa sig út á stífu tónleikahaldi og tóku sér gott frí. Fimm ár liðu frá útgáfu svörtu plötunnar til þeirrar næstu. Þegar Load kom út höfðu liðs- menn sveitarinnar allir tekið sig til og klippt á sér hárið. Allt í einu birtust þeir, sem alla sína tíð höfðu haft andúð á glamúr, stílesaðir og töffaralegir með vatnsgreitt hárið í hlýrabolum. Fyrsta smáskífulagið, Until It Sleeps, var stórfínt en plat- an náði á engan hátt að uppfylla gæðaloforð þess og fékk slæma út- reið gagnrýnenda. Hún seldist þó í milljónum eintaka. Til þess að maka krókinn gaf sveitin út af- gangsplötuna Re-Load árið eftir sem þótti mikið feilspor miðað við hversu bragðvondur aðalrétturinn hafði verið. Sex ár í limbó Á næstu árum gaf Metallica ein- ungis út safnplötur, tónleikaplötur og tökulagaplötur. Sveitin átti eitt og eitt nýtt lag í kvikmyndum en svo virtist sem peningahugsjónin hefði náð yfirvöldum. Ulrich gerð- ist helsti baráttumaður gegn frjálsri skiptingu tónlistar á netinu og fór í einkamál gegn veffyrir- tækinu Napster og vann. Bassaleikarinn Jason Newsted hafði nýtt sér tækifærið í krossferð Ulrich til þess að taka nokkur hliðar- spor frá sveitinni. Þar á meðal gerði hann plötu með hljómsveit sinni EchoBrain í fyrra sem fékk góða dóma. Eitthvað fór þetta í taugarnar á Ulrich og Hetfield, en Hammett hafði leikið á plötunni. Segja má að sveitin hafi sprungið í miðju viðtali við Rolling Stone þegar sauð upp úr á milli þeirra. Stuttu síðar barst til- kynning frá Newsted þar sem hann sagðist hættur vegna þess „heilsu- tjóns sem hann hafði hlotið við að leika tónlistina sem hann ann“. Metallica endurhlóð batteríin í San Francisco, þar sem liðsmenn urðu m.a. fyrir nýrri andagift á tónleikum Sigur Rósar. Þremenningarnir tóku upp plöt- una án þess að bæta við sig bassa- leikara. Aftur var leitað á náðir Bob Rocks sem plokkaði bassann. St. Anger var lengi í vinnslu enda glímdi Hetfield við Bakkus og bak- verki. Hann sigraðist á þeim fyrri og mætti allsgáður með bakverk í hljóðverið. Hvort sem þakka má fráhvarfi Newsted og Bakkusar, eða bara eldmóði liðsmanna, þá er útkoman að minnsta kosti besta plata Metall- icu í ein tólf ár. biggi@frettabladid.is BREIÐSKÍFUR METALLICU: 1983 Kill ‘Em All 1984 Ride the Lightning 1986 Master of Puppets 1988 ...And Justice for All 1991 Metallica (Svarta platan) 1996 Load 1997 Re-Load 2003 St. Anger HELSTU SÖFN OG TÓNLEIKAPLÖTUR: 1998 Garage Inc. 1999 S&M (Live)

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.