Fréttablaðið - 03.07.2003, Qupperneq 34
34 ÁRA „Ég er ekki mikill afmælis-
maður,“ segir Baldur Þór Bjarna-
son, leikmaður Fram sem á afmæli
í dag. „Ég hef gaman af að fara í af-
mæli hjá öðrum, en ég held ekki
upp á mitt nema kannski með einni
köku og nánustu fjölskyldu. Ég er
ekki partímaður. Ég hef aldrei hald-
ið partí á afmælisdaginn.“
Baldur er flugmaður hjá Flug-
leiðum og vaknar í Liege í Belgíu á
afmælisdaginn. Flaug þangað í
gærkvöldi. „Svo kem ég heim og
sef til hádegis. Ætli maður reyni
svo ekki að fara í hjólatúr með fjöl-
skyldunni. Mér finnst alltaf best að
eyða deginum þannig.“
Baldur tók fram skóna á ný á
þessu ári eftir nokkurt hlé. „Það er
heilmikið púsluspil að láta flugið
og fótboltann ganga upp.“ Hann
segir samstarfsmenn sína liðlega
með að skipta á vöktum þegar hann
þarf að spila leiki. Hann skiptir
ekki á flugvakt fyrir afmælisdag-
inn. „Nei, það er frekar fyrir fót-
boltann. Ég er nú að komast á síð-
asta snúning í fótboltanum.“ Aldur-
inn er afstæður og bráðungir menn
eru gamlir reynslujaxlar í boltan-
um. „Ég stefni á að spila næsta
sumar líka og jafnvel þarnæsta.
Við verðum að sjá hvað lappirnar
þola.“ Þegar færi gefst fer Baldur í
sumarbústað fjölskyldunnar við
Laugarvatn. „Þar er maður að plan-
ta eitthvað“. Hann nýtur við það
grænna fingra foreldranna sem
rekið hafa verslunina Blómaval um
árabil.
Framliðið átti heldur slaka byrj-
un í Íslandsmótinu. „Við verðum að
taka þetta á okkur gömlu mennirn-
ir sem eigum að draga vagninn,“
segir Baldur og er ekki í nokkrum
vafa um að liðið eigi eftir að hala
inn mörg stig í næstu leikjum.
Baldur spilaði sem framliggj-
andi miðjumaður og sem kantmað-
ur en hefur fært sig yfir í vörnina.
„Ég var alltaf skammaður fyrir það
hér áður að ég gæti ekki spilað
vörn. Svo er maður bara settur í
vörnina og látinn bjarga sér. Maður
má ekki gera neina vitleysu þegar
maður er í vörninni.“ Menn muna
betur eftir mistökum varnarmanns
sem kosta mark en þegar sóknar-
maður nýtir ekki færi. „Það er nú
fyrirgefið ef maður klúðrar einu og
einu færi.“
haflidi@frettabladid.is
36 3. júlí 2003 FIMMTUDAGUR
Hvernig stendur á því að þú veist alltsem hægt er að vita um nágranna
þína?
Ég passaði páfagaukana þeirra um
síðustu helgi.
Pondus eftir Frode Øverli
Með súrmjólkinni
Afmæli
BALDUR ÞÓR BJARNASON
■ flýgur heim frá Belgíu á afmælisdag-
inn. Reiknar með að fara út að hjóla
með fjölskyldunni. Hann er ekki mikið
fyrir að halda afmælispartí.
hö
nn
un
: V
ík
ur
fr
ét
tir
Jói...þessi blóm...þú
hefðir ekki átt að...
Nei, ekki
orð um það
meir!
Ég MEINA það...þú
hefðir ekki átt að
gera þetta!
Svona er ég
nú bara, elsk-
an mín!
Hv
íl í f
riði
BALDUR ÞÓR BJARNASON
Ætlar út að hjóla með dóttur sinni Hildi Völu Baldursdóttur á afmæisdaginn. Hann vill
gjarnan taka því rólega á afmælisdaginn.
Afmælið víkur
fyrir flugi og fótbolta
Þetta var óperusýning eins ogþær gerast allra bestar; stór-
kostlega hugmyndarík uppsetn-
ing, flutningurinn magnaður og
tilfinningaþrunginn. Í einu orði
sagt stórfenglegt,“ segir í hinu al-
þjóðlega óperutímariti Opera
Now um sýningu Íslensku óper-
unnar á Macbeth á liðnum vetri.
Útsendari blaðsins, Neil Jones,
var viðstaddur sýningu 2. mars og
í nýútkomnu hefti blaðsins birtist
gagnrýni hans ásamt grein um
starfsemi Íslensku óperunnar,
auk þess sem fjallað er um Óperu-
stúdíó Austurlands og Sumaróp-
eru Reykjavíkur.
Jones byrjar umsögn sína á því
að fara jákvæðum orðum um leik-
mynd, lýsingu og mikilvægt hlut-
verk kvennakórsins.
„Ólafur Kjartan Sigurðarson
var stórkostlegur Macbeth þótt
hann sé í yngri kantinum fyrir
hlutverkið, en Elín Ósk Óskars-
dóttir skóp ógleymanlega lafði
Macbeth. Hæstu tónarnir hjá
henni voru glæsilegir og túlkun
hennar kyngimögnuð. En gæðin
lágu víðar. Guðjón Óskarsson í
hlutverki Bancos, Jóhann Frið-
geir Valdimarsson sem Macduff
og Snorri Wium sem Malcolm
sungu allir og léku mjög vel.
Hulda Björk Garðarsdóttir var
mjög þokkafull í hlutverki hirð-
meyjar lafði Macbeth en það er
synd að frá hendi Verdis er hlut-
verkið svo lítið, að falleg söng-
rödd hennar fékk ekki að njóta sín
frekar.“ ■
Ópera
■ Sýning Íslensku óperunnar á
Macbeth eftir Verdi hlaut mikið lof hér á
landi. Erlendir gagnrýnendur eru líka
himinlifandi yfir sýningunni.
ÓLAFUR KJARTAN SIGURÐARSON
Hann ásamt félögum sínum í Íslensku óp-
erunni fá afar lofsamlega dóma fyrir upp-
færsluna á Macbeth hjá gagnrýnanda al-
þjóðlega óperutímaritsins Opera Now.
Hrifning með Macbeth
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
-
H
EL
M
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
■ Jarðarfarir
13.30 Sigurður Jónsson frá Einarsstöð-
um verður jarðsunginn frá Grafar-
vogskirkju.
14.00 Anna Ólafsdóttir, áður Seljahlíð
13A, Akureyri, verður jarðsungin
frá Glerárkirkju.
■ Andlát
Halldóra Jónsdóttir, Lóló, Austurbergi
2, lést 1. júlí.
Guðmundur Marteinsson, Tucson,
Arisona, lést í Tucson 30. júní.
Ingibjörg Finnsdóttir, Gullsmára 7,
Kópavogi, lést 30. júní.
Oddbjörg (Stella) Thors lést í Bandaríkj-
unum 21. júní.
Védís Hólmfríður Hallsdóttir lést 11.
júní. Útförin hefur farið fram.
Þráinn Þorvaldsson, Oddakoti, Austur
Landeyjum lést 27. júní.