Fréttablaðið - 07.07.2003, Síða 2
2 7. júlí 2003 MÁNUDAGUR
Nei, nei. Brussel er ekkert að
bögga mig.
Árni Mathiesen sjávarútvegsráðherra skrifaði bréf
til Brussel þar sem hann taldi sig nauðbeygðan til
að auka kolmunnakvótann vegna ákvörðunar ESB
um aukningu. Þá hefur ESB samið við Grænlend-
inga um kaup á grálúðukvóta, sem skemmir fyrir
samningaviðræðum Íslands og Grænlands um
sameiginlega stofninn.
Spurningdagsins
Árni, er Brussel að bögga þig?
■ Lögreglufréttir
1.499,-L E I Ð B E I N A N D I V E R Ð
SPENNANDI FERÐ FÉLAGAR
„Afar hrífandi
frásögn sem heltekur
lesandann.“
Lektørudtalelse, Dansk Biblioteks Center:
„Einstæð frásögn af þjáningum
og þrekraunum,
kjarki og hetjudáðum,
djörfung og áræði
... líflega skrifuð.“
Magnús Magnússon sjónvarpsmaður, Bretlandi:
AFNOTAGJÖLD Mistök við skráningu
sjónvarpstækja vegna afnota-
gjalda Ríkisútvarpsins eru dýr-
keypt og er leiðrétting í mörgum
tilfellum illmöguleg. Næturvörð-
urinn Viðar Friðfinnsson telur sig
hafa verið ranglega skráður fyrir
sjónvarpstæki og segir tækjaleit-
endur RÚV hafa beitt bellibrögð-
um. Fleiri hafa svipaða sögu að
segja.
„Þeir komu upp á tröppur til
mín og spurðu hvort ég ætti sjón-
varpstæki. Ég neitaði réttilega, en
fékk síðan gíróseðil. Ef grunur
leikur á að maður eigi sjónvarp,
er sendur gíróseðill. Í framhaldi
af því fer þetta fyrir dómstóla þar
sem hægt er að verja sig, en það
er ódýrara að borga heldur en að
leggja út fyrir lögfræðingi,“ segir
Finnur Frímann, fisksali í Kópa-
vogi.
Annar viðmælandi Frétta-
blaðsins, sem vildi njóta nafn-
leyndar, var skráður fyrir sjón-
varpstæki gegn vilja sínum.
Tækjaleitendur sáu það liggja á
gólfinu í íbúð þar sem hann var
gestkomandi við tölvuvinnu. Sjón-
varpstækið sneri að vegg og var
ekki með rafmagnskló, en þrátt
fyrir ítrekaðar tilraunir hefur
skráningin ekki fengist leiðrétt.
Ragnar Sigurðsson, vélvirki í
Reykjavík, lenti í skilnaði fyrir
tæpu ári síðan, en hefur ekki
fengið afskráð sjónvarpstæki
barna sinna af nafni sínu. Fyrr-
verandi eiginkona gerði sér ferð í
RÚV og afskráði sjónvarp heimil-
isins af Ragnari yfir á sitt nafn, en
tvö sjónvörp barnanna og eitt út-
varpstæki fylgdu ekki með.
„Ég fékk gíróseðil og fór í af-
notadeild RÚV. Þar skýrði ég þá
málavexti fyrir starfsmanni, að
ég ætti ekki sjónvörpin og sýndi
skilnaðarplöggin. Hún sagði að ég
ætti víst sjónvarpstæki og sakaði
mig um lygar. Það er ekki hægt að
hnika RÚV,“ segir Ragnar.
Á dögunum fékk Ragnar hring-
ingu frá vörslusviptingarfyrir-
tæki, þar sem honum var tilkynnt
að menn væru á leiðinni að sækja
sjónvarpstækin tvö. Eitt bréf var
sent um vörslusviptingu hvors
sjónvarpstækis og stendur hann
því frammi fyrir tvöföldu vörslu-
sviptingargjaldi. Hann segir 20
þúsunda króna skuld á afnota-
gjöldum hækka í 80 þúsund við
innheimtukostnað, dráttarvexti,
dráttarvexti á innheimtukostnað
og vörslusviptingu. „Ábyrgðin
ætti að vera hjá RÚV að sanna að
ég eigi sjónvarpstæki,“ segir
hann.
jtr@frettabladid.is
Sjónvarpslausir
á afnotagjöldum
Erfiðlega gengur fyrir fólk að fá nöfn sín afskráð hjá Ríkisútvarpinu eft-
ir að hafa verið skráð fyrir sjónvarpstæki. Dæmi eru um að menn telji
sig ranglega skráða af tækjaleitendum og verði að greiða afnotagjöld.
RÍKISÚTVARPIÐ
Margir segja farir sínar ekki sléttar af viðskiptum sínum við afnotadeild RÚV og eru
dæmi um að menn telji sig mæta yfirgangi og dónaskap þegar leiðréttingar á skráningu
sjónvarpstækja er óskað.
BLÓM TIL MINNINGAR
UM HINA LÁTNU
Sjálfsmorðsárásin kostaði fimmtán manns
lífið og eru ellefu alvarlega slasaðir.
Sjálfsmorðsárás:
Fimmtán
látnir
MOSKVA, AP Fimmtán létust í sjálfs-
morðsárás á tónlistarhátíð í
Moskvu á laugardagskvöld. 48
voru enn á spítala í gærdag vegna
árásarinnar. Áætlað er að 40.000
manns hafi verið á tónleikunum.
Enginn hefur verið handtekinn
eða lýst ábyrgð árásarinnar á
hendur sér, en embættismenn
segja vegabréf hafa fundist á
vettvangi sem sýni að önnur
kvennanna sem að árásinni stóðu
sé tsjétsjénsk.
Vladimir Putin, forseti Rúss-
lands, aflýsti opinberri heimsókn
til Úsbekistan og Malasíu vegna
árásarinnar. ■
65 TEKNIR FYRIR HRAÐAKSTUR Í
VÍK Lögreglan í Vík í Mýrdal var
búin að taka 65 bílstjóra fyrir
hraðakstur um fjögurleytið í gær.
Mikil umferð var vestur á föstu-
dag og muna lögreglumenn þar
ekki eftir því að hafa þurft að
stöðva jafn marga bíla í sumar.
MAÐUR MEIDDIST Á ÚTIHÁTÍÐ
SNIGLANNA Gestur á útihátíð
Sniglanna í Njálsbúð var fluttur
með sjúkrabíl á slysadeild eftir
að hafa fallið um einn metra.
Ekki er vitað af hverju maðurinn
féll en lögreglan sagðist halda að
hann hefði verið að gantast með
félögum sínum.
LONDON „Þú getur ekki sakað for-
sætisráðherra um alvarlegra at-
vik en að ég hafi skipað hernum
til orustu á grundvelli upplýs-
inga sem ég falsaði,“ sagði Tony
Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, í viðtali við sunnudags-
blaðið Observer. Þar var hann að
svara ásökunum um að starfs-
menn hans, sérstaklega Alistair
Campbell, upplýsingafulltrúi
hans, hafi bætt röngum upplýs-
ingum inn í skýrslu um gereyð-
ingarvopnaeign Íraka fyrir inn-
rás.
„Ég lít á þetta sem eins alvar-
lega árás og hægt er að gera á
trúverðugleika minn, ásökunin
er ósönn og ég vona að þeir við-
urkenni það,“ sagði Blair í viðtal-
inu. Hann vildi ekki ganga svo
langt að krefja BBC, sem hefur
haldið þessu fram, um afsökun-
arbeiðni en ítrekaði að stjórn-
endur þess ættu að viðurkenna
að frétt þeirra þessa efnis væri
röng.
Litlar líkur eru til þess að
BBC bakki með frétt sína á næst-
unni. Observer greindi frá því í
gær að yfirmaður bresku leyni-
þjónustunnar MI6 hefði greint
háttsettum stjórnendum BBC frá
því fyrir nokkru að meiri hætta
hefði stafað af Íran og Sýrlandi
en Írak. ■
Enn harðnar stríð Tony Blairs og breska ríkissjónvarpsins:
Ekki til alvarlegri ásökun
TONY BLAIR
BBC hefur eftir ónafngreindum heimilda-
manni að forsætisráðuneytið breska hafi
bætt röngum upplýsingum í upplýsinga-
skýrslu. Því neita Tony Blair og samstarfs-
fólk hans.
Andlát ungs manns í
Mýrargötu rannsakað:
Flest bendir
til slyss
LÖGREGLUMÁL Tæplega þrítugur
maður fannst látinn við Mýrargötu
um klukkan tvö aðfaranótt sunnu-
dags. Aðstæður benda til þess að
maðurinn hafi fallið, en málið er
rannsakað út frá þeim möguleika
að glæpur kunni að hafa átt sér
stað. Vegfarendur komu að mann-
inum látnum við brattar tröppur að
yfirgefnu húsi og tilkynntu lög-
reglu um málið. Engin vitni að at-
burðinum hafa gefið sig fram. Ekki
er leitað að geranda á þessu stigi
rannsóknarinnar.
Krufning fer fram í dag eða á
morgun og mun hún varpa
frekara ljósi á tildrög þess að
maðurinn lést. Málið er í hönd-
um R-3 deildar lögreglunnar,
sem rannsakar brot gegn lífi og
líkama. Samkvæmt upplýsing-
um lögreglu bendir flest til þess
að slys hafi orðið. ■
MÝRARGATA
Talið er að maður sem fannst um miðja nótt við tröppur að yfirgefnu húsi á Mýrargötu
hafi látist við fall.
Patreksfjörður:
Bílþjófar
keyrðu út af
SLYS Tveir menn voru sóttir með
þyrlu Landhelgisgæslunnar og
fluttir á Landspítalann í Fossvogi
í gærmorgun eftir að bíll þeirra
fór út af við Ódrjúgsháls milli
Bjarkalundar og Flókalundar.
Mennirnir, sem báðir voru um tví-
tugt, stálu bílnum á Patreksfirði
og óku af stað til borgarinnar.
Meiðsli þeirra eru ekki talin lífs-
hættuleg en báðir voru lagðir inn
og verða undir eftirliti.
Ökumaður bifreiðarinnar er
grunaður um ölvun. Erill var hjá
lögreglunni á Patreksfirði vegna
ölvunaraksturs um helgina. ■
Banaslys á
Vesturlandsvegi:
Áttræður
maður lést
SLYS Áttræður maður lést eftir að
hann ók í veg fyrir annan bíl á
Vesturlandsvegi síðdegis á laug-
ardag. Að sögn lögreglu varð slys-
ið þegar maðurinn ók bíl sínum
vestur Hvalfjarðarveg í veg fyrir
annan bíl sem ók norður Vestur-
landsveg.
Tveir voru í hinum bílnum og
voru þeir fluttir á Sjúkrahúsið á
Akranesi en meiðsl þeirra reynd-
ust ekki alvarleg. Bílarnir eru
báðir mikið skemmdir. ■
MINNIHÁTTAR BRUNI Í FELLA-
HVERFI. Lögreglunni var tilkynnt
um bruna í íbúð í Fellahverfi um
klukkan átta á laugardagskvöldið.
Bruninn reyndist minniháttar en
mikill reykur kom frá íbúðinni.
Einn maður var fluttur á sjúkra-
deild, hugsanlega með reykeitr-
un.
BARIST GEGN FORDÓMUM Löggjaf-
ar víðsvegar að úr Evrópu hittust í
Rotterdam um helgina. Samþykkti
hópurinn ályktun þar sem stjórn-
völd eru hvött til þess að sam-
þykkja lög til að koma í veg fyrir
hatursglæpi .
SYNTU FRÁ FRAKKLANDI Þremur
mönnum var á laugardag bjargað
frá drukknun í Ermasundi undan
ströndum Englands. Mennirnir
hugðust sækja um pólitískt hæli í
Englandi.
NÝ RÍKISSTJÓRN Frjálslyndi flokk-
urinn og Jafnaðarmannaflokkurinn
í Belgíu hafa samþykkt ríkisstjórn-
arsáttmála. Báðir flokkarnir unnu
stórsigur í kosningunum.
■ Lögreglufréttir
■ Evrópa