Fréttablaðið - 07.07.2003, Blaðsíða 37

Fréttablaðið - 07.07.2003, Blaðsíða 37
MÁNUDAGUR 7. júlí 2003 19 SÍMI 553 2075 Sýnd kl. 6, 8 og 10 HOW TO LOOSE ... kl. 5.50, 8 og 10.10 Sýnd kl. 6, 8 og 10 Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10 b.i. 12 kl. 6.10, 6.50, 8.30, 9.10, 10.50, 11,30. PS kl. 6, 8 og 10 PEOPLE I KNOW AGENT CODY BANKS kl. 6 IDENTITY kl. 8 og 10 b.i. 16 FRUMSÝNING Sýnd kl. 5.30, 8, og 10.10 Sýnd kl. 6, 8 og 10 b.i. 14 Hér er svo sannarlega sett í stuð-gírinn! Þessi danski sprelli- dúett eyðir ekki einni sekúndu í vangaveltur eða djúpar heimsspeki- legar pælingar. Hér er hásumar, græjurnar úti á götu og hljóðstyrk- urinn í botni. Hér er ekki eitt ein- asta lag sem fær menn til þess að staldra við og velta sér yfir böli heimsins. Það ætti meira að segja að vera auðvelt að gleyma því algjör- lega að tilfinningar á borð við dep- urð, þunglyndi eða sorg séu yfir höf- uð til ef menn lifa sig 100% inn í tón- listina. Allt er gert fyrir augnablik- ið, og bara gert nokkuð vel. Hljómurinn er eins konar hræri- grautur af fjörugu gítarrokki átt- unda áratugarins, grúví Stevie Wonder, lagasörpun Fatboy Slim og töffaralátum The Rolling Stones. Slagarinn „Move Your Feet“ hefði alveg eins geta verið valinn af handahófi af þessari plötu. Hér eru ekkert nema stuðslagarar sem ættu að renna í útvarpsspilun á hásumar- tímanum. Þessi plata á án efa eftir að fljóta um í meginstraumum, al- veg þangað til að við verðum komin með hundleiða á henni. Það er ör- ugglega ekkert svo erfitt heldur. Þetta er hámarks skammtur af „je, je, je“ hrópum, „klappið saman höndunum“ og „er’iggi allir í stuði?“. Svona tónlist má líkja við tequilaskot. Frábært á meðan partí- ið er í gangi, en það síðasta sem menn geta hugsað sér í þynnkunni daginn eftir. Endist stutt í tækinu, en sprengir hátalarana á stuttum líf- daga sínum. Birgir Örn Steinarsson Umfjölluntónlist „Er’iggi allir í stuði?“ JUNIOR SENIOR: D-D-Don´t Don´t Stop the Beat frítt 13. júlí KVIKMYNDIR Leið Indiana Jones upp á hvíta tjaldið virðist vera vörðuð steinum. Nú berast þær fréttir að leikstjórinn Steven Spielberg sé hættur við að leikstýra myndinni. Hvort þetta verði til þess að myndin verði aldrei gerð er ekki vitað en Harrison Ford hafði áður sett það sem skilyrði fyrir því að hann léki fornleifafræðinginn aftur að bæði Spielberg og Lucas myndu vinna að myndinni. Spielberg er víst mjög upptekin maður og með mörg verkefni í burð- arliðnum. Sean Connery, sem hefur þegar tekið að sér að leika föður Indy aftur, sagði í viðtali við Empire að honum hefði verið sagt að Spiel- berg hefði fórnað Indiana Jones fyr- ir annað verkefni. „Ég var mjög vonsvikinn að heyra að Steven ætli sér ekki að leik- stýra, en á endanum snýst þetta allt um hversu gott handritið verður, hvort hægt sé að vinna með það.“ Fyrir skömmu var það tilkynnt að myndin færi í tökur næsta haust en ef þetta reynist satt verður líklegast einhver frestun á því. Aðdáendur Indiana Jones verða því af öllum lík- indum að bíða aðeins lengur. ■ Indiana Jones: Spielberg ætlar ekki að leikstýra INDIANA JONES Er ferð Indiana Jones kannski á enda eftir allt saman? Sex And The City leikkonanKristin Davis, sem leikur Charlotte York, góðu stelpuna, minnist þess með hryllingi þegar hún lék í ofursápuni Melrose Place um miðjan síðasta ára- tug. Þar lék hún Brooke, aðal tík þáttarins. Hún seg- ir aðdáendur MP hafi oftar en ekki ruglað saman veruleika og skáldskap og það hafi verið erfitt. Einhverju sinni var hún til dæm- is í húsgagnaverslun þegar hún heyrir hvíslað „hei, þarna er Brooke. Hvílík tík!“. Leikstjórinn Ang Lee, sem hefurm.a. gert myndirnar The Ice Storm, Crouching Tiger Hidden Dragon og The Hulk á ferli sínum, segist vera að hugleiða að setjast í helgan stein. Hann segist þurfa lengri og lengri tíma á milli mynda til þess að jafna sig og að hann sé að verða of gamall til þess að sinna verkefnunum almenni- lega. Til dæmis hafi hann þurft heilt ár til þess að jafna sig á Crouching Tiger, Hidden Dragon. Maðurinn er 58 ára gamall. Smáa en knáa ólétta leikkonu-ljóskan Reese Witherspoon er sérlega ánægð með dvöl sína í London um þessar mundir. Það er vegna þess að leikarar þar fá ekki sérstaka athygli. Hún stendur í tök- um á kvikmyndun skáldsögunar „Vanity Fair“. Hún segist geta skroppið í matvörubúð án áreitis og farið með krakkann sinn í lystigarð án þess að neinn kippi sér upp við það. „Mér líkar vel við þá hugmynd að leikarar séu bara einn hlekkur af mörgum við gerð myndar, partur af stórum hópi þar sem enginn er öðrum hærri. Hér er ekki mikið um sérmeðferð á leikurum.“ Hvar eru svo hinir illræmdu bresku pappar- azzi ljósmyndarar?

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.