Fréttablaðið - 07.07.2003, Qupperneq 21
fast/eignirMÁNUDAGUR 7. júlí 2003 7
Sumarið er tími framkvæmdavið garðinn og þá nota marg-
ir tækifærið og koma upp lang-
þráðum palli. Í byggingavöru-
verslunum borgarinnar fengust
þær upplýsingar að mikið væri
keypt af timbri þessa dagana og
sumarfríið gjarnan notað.
Timburverslanir á höfuð-
borgarsvæðinu eru einungis
þrjár og í þeim stærstu er verð-
ið nákvæmlega það sama. Þriðja
timburverslunin er Meistara-
efni ehf. en þar er verðið 120
krónur og að sögn eigandans
ræður hann ekki við að vera
með tilboð á sínu timbri. Hann
vill þó meina að hans timbur sé
gæðaefni frá Svíþjóð en stóru
verslanirnar flytja inn frá Lett-
landi og Eistlandi þar sem þær
eiga verksmiðjurnar sjálfar.
Í Byko kostar lengdarmetr-
inn af A-gagnvörnu pallaefni í
stærðinni 22x95, 99 krónur á til-
boði. Í Húsasmiðjunni er verðið
það sama og er einnig á tilboði.
Því er tækifærið núna að kaupa
efni í pallinn eða girðinguna ef
taka á til hendinni. ■
VERÐ Á PALLAEFNI
Byko *22X95 kr. 99 lengdarm.
Húsasmiðjan *21X95 kr. 99 lengdarm.
Meistaraefni ehf. 21X95 kr. 120 lengdarm.
(Í Byko og Húsasmiðjunni er tilboð á efninu
en ekki hjá Meistaraefni ehf.
Efnið er A-gagnvarið hjá öllum.)
Byko og Húsamiðjan/
Svipað verð á pallaefni
ÞENSLA OG SAMDRÁTTUR VEGNA HITABREYTINGA
HAFA YFIRLEYTT Í FÖR MEÐ SÉR FLÖGNUN, TÆRINGU
OG SPRUNGUMYNDUN. SLÍKT GETUR VALDIÐ ÞAKLEKA
OG STYTT VERULEGA ENDINGU ÞAKKLÆÐNINGAR.
HIÐ MIKLA TEYGJUÞOL PACE
ÞAKEFNANNA GERIR AÐ ÞAU
STANDAST ÁLAGIÐ OG ÞAKIÐ
ÞITT HELDUR ÁFRAM AÐ
VERA FALLEGT OG ÞÉTT
PACE
ÞAK ER
BETRA
ÞAK !
SÓLPALLUR
Verð á pallaefni er svipað
hjá byggingavöruverslunum.
VILLIGRÓÐUR Í GARÐINUM
Blettir með villtum plöntum úr íslenskri
náttúru geta verið mjög fallegir í þéttbýlis-
garðinum. En það er margt sem þarf að
hafa í huga ef fólk langar að koma sér
upp þannig reit.
Villtur gróður
í görðum/
Fallegur
en vand-
meðfarinn
Villtur gróður í görðum í þétt-býli getur verið mjög fallegur
og gefið garðinum sérstakt yfir-
bragð. Þá er ekki verið að tala um
arfann, sem fólk vill auðvitað
helst losna við, heldur ýmsar fal-
legar, íslenskar plöntur sem lifa í
villtri náttúru.
Tryggvi Arnarson, garðyrkju-
fræðingur hjá Garðheimum, segir
að villtur gróður hafi á löngum
tíma aðlagast rýrum jarðvegi og
því sé mikilvægt að undirbúa
jarðveginn í garðinum þannig að
hann sé ekki mjög frjór eða
kalkríkur. En þá getur fólk líka
verið með hvaða plöntur sem því
dettur í hug. „Það eru að sjálf-
sögðu margar mjög fallegar
plöntur í íslenskri náttúru eins og
til dæmis móbergið, fjalldrapi og
eyrarrós. Líka eru trjátegundir
sem vaxa villtar fallegar í svona
reit eins og einir, birki og reynir.“
Tryggvi bendir á að í svona reit
sé æskilegt að nota frekar lífræn-
an áburð en ólífrænan, því í flest-
um tilfellum séum við með súran
jarðveg í görðunum. „Það getur
líka verið góð hugmynd að af-
marka þetta svæði með þili sem
væri þá rétt í yfirborðinu, næði
svona um það bil 20 sentímetra
niður, en svo er auðvitað líka
hægt að láta þetta ná saman. Þá er
þó alltaf sú hætta fyrir hendi að
villti gróðurinn dreifi sér yfir á
svæði þar sem fólk ætlar að hafa
skipulag á hlutunum,“ segir
Tryggvi. ■