Fréttablaðið - 07.07.2003, Qupperneq 13
Rétta útimálningin
getur sparað þér tugi þúsunda króna
Steinakrýl
- mjög góð viðloðun, gott
rakagegnstreymi og mikið
veðrunarþol
Kópal Steintex
- frábært á múr og
steinsteypta fleti þar sem
krafist er mikils veðrunarþols
Steinvari 2000
- besta mögulega vörn fyrir húsið
- yfirburðamálning fyrir íslenskar aðstæður
- verndar steypuna fyrir slagregni
- flagnar ekki og hefur frábært veðrunarþol
Málning hf. hefur tekið þátt í viðamiklum rannsóknum á steinsteypu og
áhrifaþáttum yfirborðsmeðhöndlunar með helstu sérfræðingum á þessu sviði
hér innanlands. Á rannsóknarstofu Málningar er jafnframt haft strangt eftirlit
með framleiðslu og hráefnum og unnið kröftuglega að vöruþróun þar sem
nýjungar á sviði yfirborðsmeðhöndlunar með tilliti til íslenskra aðstæðna hafa
skapað málningu frá okkur sérstöðu.
Við erum sérfræðingar í útimálningu
fyrir íslenskar aðstæður.
Útsölustaðir Málningar:
Byko Kópavogi • Byko Hringbraut • Litaver Grensásvegi • Byko Hafnarfirði • Málningarbúðin Akranesi • Byko Akranesi
• Axel Þórarinsson, málarameistari, Borganesi • Verslunin Hamrar, Grundafirði • Litabúðin Ólafsvík • Núpur
byggingavöruversl. Ísafirði • Vilhelm Guðbjartsson, málarameistari, Hvammstanga • Verslunin Eyri, Sauðárkróki • Byko
Akureyri • Versl. Valberg, Ólafsfirði • Versl. Vík, Neskaupstað • Málningarþjónustan Selfossi • Miðstöðin Vestmannaeyjum
• Byko Keflavík • Bláfell Grindavík.
ÉG ER TÝNDUR
Hvaða barn vill ekki eiga svona stól
sem hægt er að fela sig í?
Felustóll
Barnaherbergi eru alltaf aðverða meira og meira við
hæfi barna. Úrval sérhannaðra
barnahúsgagna eykst og þar ræð-
ur gjarnan litagleðin ríkjum.
Þessi stóll fæst í Ikea og er hann
hugsaður fyrir yngri börnin. Yfir
honum er segl sem hægt er að
draga alveg niður. Hver man ekki
eftir barnæskunni og þeirri þörf
að búa til hús úr teppum og alls
kyns hlutum til að fela sig í. Þessi
stóll ætti að koma í veg fyrir rask
af því tagi á heimilinu. ■
VINSÆLL TÁGASTÓLL
Þeir hafa lengi verið til í Ikea þessir stólar.
Skemmtilegt er að leggja í þá gæru.
Tágastólar
úti og inni
Tágastólar hafa lengi verið vin-sælir og að sögn verslunar-
stjóra í Ikea er ekkert lát á því.
Stólana má setja út á pall á sumr-
in og margir hafa notað þá þannig.
Gæta verður þess að kippa þeim
inn ef fer að rigna því þótt þeir
þoli vætu er ekki gott að þeir
standi úti.
Fólk hefur einnig tekið þá tals-
vert í barnaherbergi. Þá er ekki
síður hægt að dubba upp og hafa
upp í stofunni. Tilvalið er að nota
svona gæru og gera þá hlýlega og
notalega með því. ■
Fyrir fólk sem langar að búa tilgott expressókaffi, en er svo
óheppið að eiga ekki expressóvél, er
einfaldast að nota mokkakönnu.
„Það þarf þá hreint vatn í neðsta
hlutann, alveg upp að ventlinum,“
segir Ása Pettersson, Íslandsmeist-
ari kaffibarþjóna, „en það þarf að
varast að vatnið fari upp fyrir
ventilinnn. Svo setur maður sigtið
yfir og kaffi, sem er sérstaklega
malað fyrir mokkakönnur, í sigtið.
Ekki troða of miklu í sigtið, en það
má heldur ekki vera of lítið,“ segir
Ása. Að því búnu skrúfar maður
efsta hlutann á og setur könnuna á
eldarvélarhellu, á næsthæsta hita.
Ása segir að þegar byrjar að
seytla upp um stútinn eigi að taka
könnuna af. „Kaffið er svo tilbúið
þegar allt vatnið er komið upp um
stútinn.“ Henni finnst best að nota
dökkristað kaffi en nota má allar
tegundir. ■
Mokkakanna á hellu:
Best að
nota dökk-
ristað kaffi
ÁSA MEÐ MOKKAKÖNNU
Þeir sem komast upp á bragðið með
að nota mokkakönnur eru yfir sig
hrifnir af þeim.
13MÁNUDAGUR 7. júlí 2003