Fréttablaðið - 07.07.2003, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 07.07.2003, Blaðsíða 11
11MÁNUDAGUR 7. júlí 2003 Collector 33 Rafmagnssláttuvél 1000W rafmótor 27 ltr grashirðupoki Euro 45 Bensínsláttuvél 4 hestöfl B&S mótor 55 ltr grashirðupoki Silent 45 Combi Bensínsláttuvél 4 hestöfl B&S mótor 55 ltr grashirðupoki Verð: 17.900 Verð: 34.900 Verð: 44.900 Hágæða sláttuvélar Vetrarsól - Askalind 4 - Kópavogi - Sími 564 1864 A U G L Ý S I N G A S E T R I Ð                        ! "    #"$% &   '       (  "     " ) (!   (     *'   '     +++   ,,   ! -#.!!' /!! "!(0  1&&2                          ! "                    # $            %         #    !& 3 '   (    (    !     HJÓLREIÐAR Bandaríkjamaðurinn Lance Armstrong er talinn sigur- stranglegastur í Frakklandshjól- reiðakeppninni (Tour de France) sem hófst á laugardag. Armstrong stefnir að fimmta sigrinum í röð en aðeins Miguel Indurain frá Spáni hefur unnið slíkt afrek. Yf- irburðir Armstrong hafa verið það miklir síðustu árin að keppnin var uppnefnd Tour de Lance. Armstrong telur Þjóðverjann Jan Ullrich sinn helsta keppinaut. Ull- rich sigraði í keppninni árið 1997 og hefur þrisvar lent í öðru sæti síðan þá. Keppnin var fyrst haldin árið 1903. Hugmyndin að baki hennar var söluátak dagblaðsins L’Auto sem tókst það vel að það gerði út af við helsta keppinautinn Le Velo. Í fyrstu keppninni hjóluðu sextíu keppendur 2.428 kílómetra á nítján dögum. Maurice Garin sigraði á fyrsta áfanga og hélt for- ystunni til loka. Keppnin var mjög erfið þótt ekki lægi leiðin um Alpana eða Pýreneafjöllin eins og síðar varð. Hjólin voru frumstæð, vegirnir bágbornir og keppendum var ekki boðið upp á hvíld eða gistingu. Keppni þessa árs hófst 5. júlí í París og lýkur á sama stað 22 dög- um síðar. Keppendur hjóla 3.361 kílómetra í 20 áföngum, þrjá í Ölpunum og fjóra í Pýreneafjöll- unum. Leiðin frá Nevers til Lyon (6. áfangi, 11. júlí) um Rhone-dal- inn er lengsti áfanginn, 230 kíló- metrar. Hann er annar tveggja áfanga sem var einnig hluti fyrstu keppninnar fyrir 100 árum. Hinn er lokakaflinn á götum Parísar. Hæst liggur leiðin í 2.645 metra hæð á Galibier-tindinn (Col de Galibier) í Ölpunum. Keppendur hjóla úr 1.411 metra hæð í 2.645 metra og aftur niður í 722 metra. Á þessum kafla varð fyrsta dauðsfallið í keppninni þegar Spánverjinn Francesco Cepeda féll af hjóli sínu í keppninni árið 1935. Brattasti kaflinn er samt við Cote de Larrau í Pýreneafjöllun- um, miðja vegu milli Pau og Bayonne. Þar hjóla keppendur úr 630 metrum í 1.327 metra á aðeins 2,4 km. og er hallinn 10,5%, eða áþekkur og í Kömbunum. ■ Aldargömul keppni Lance Armstrong stefnir að fimmta sigrinum í röð í Tour de France. Hundrað ár eru nú liðin frá því fyrst var keppt í þessari 3.361 kílómetra löngu hjólreiðakeppni. LANCE ARMSTRONG Lance Armstrong stefnir að fimmta sigrinum í röð í Tour de France. FLESTIR SIGRAR 1903-2002 Jacques Anquetil (Frakklandi) 5 1957-1964 Eddy Merckx (Belgíu) 5 1969-1974 Bernard Hinault (Frakklandi) 5 1978-1985 Miguel Indurain (Spáni) 5 1991-1995 Lance Armstrong (Bandaríkjunum) 4 1999-2002 Gullmótin í frjálsum: Tvær keppa um gullpottinn FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR Chandra Sturrup frá Bahamas eyjum og Maria Mutola frá Mózambík eiga einar möguleika á gullpottinum þegar tveimur mótum af sex er lokið. Báð- ar sigruðu á fyrsta mótinu á Bislett og aftur á Stade du France á föstu- dag. Sturrup sigraði í 100 metra hlaupi á 11,01 sekúndu en Kelli White frá Bandaríkjunum varð önn- ur og heimastúlkan Christine Arron þriðja. Maria Mutola sigraði í 800 metra hlaupi á 1.57,58 eftir harða keppni við slóvensku stúlkuna Jol- anda Ceplak. Mina Ait Hammou frá Marokkó varð þriðja. ■ CHANDRA STURRUP Chandra Sturrup kemur í mark í 100 metra hlaupinu í París á föstudag.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.