Fréttablaðið - 07.07.2003, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 07.07.2003, Blaðsíða 10
10 7. júlí 2003 MÁNUDAGUR TEKIÐ Á 2.600 manns tóku þátt í þríþraut nálægt þýsku borginni Nurnberg í Þýskalandi í gær. Keppnin samanstendur af 3,8 kíló- metra sundi, 18 kílómetra hjólreiðakeppni og maraþonhlaupi. Þríþraut HANDBOLTI „Það er nú svo að maður lærir alltaf mikið á að lenda í vandræðum í lífinu,“ sagði Patrekur Jóhannesson handbolta- kappi um vandræði sín af banni þýska handboltasambandsins en hann var dæmdur í sex mánaða keppnisbann fyrir að hrækja að dómara í síðasta leik sínum með Essen í Þýskalandi. Bannið hefði mögulega þýtt að nýr tveggja ára samningur Patreks við spænska félagið Bidasoa hefði runnið út í sandinn. Í vikunni var banninu svo hnekkt fyrir dómstólum og því getur Patrekur andað léttar. „Málið er allt saman mjög furðulegt og ótrúlegt hvað margir fjölmiðlar fóru rangt með. Ég á ekkert auðvelt með að verja það sem ég gerði en í stuttu máli þá var mér á þessum tímapunkti mjög í mun að spila vel þennan umtalaða leik. Ekki af því að hann skipti liðið einhverju máli heldur af því að þetta var minn síðasti leikur hjá félagi sem mér þykir vænt um. Ég var sjö ár í Essen og það var tilfinningaríkt að vera að spila sinn síðasta leik með félag- inu og öllum þeim vinum sem maður eignaðist þar. Ég lét skapið hlaupa með mig í gönur eitt sek- úndubrot, það var brotið á mér en dómarinn sá það ekki og ég í stundarbræði lít á dómarann og hræki á gólfið. Hann horfði beint á mig og gaf mér umsvifalaust krossinn. Það þýðir alvarlegt brot en mig grunaði aldrei að það færi alla þessa leið sem það svo fór. Fjölmiðlar töluðu mikið um að ég hefði hrækt á dómarann sjálfan en svo var alls ekki. Það voru átta metrar í dómarann og ég hefði aldrei getað hrækt þangað þó ég hefði viljað.“ Patrekur er mjög sáttur við hlutskipti sitt í lífinu. „Ég hef ver- ið ákaflega heppinn í lífinu. Mín vinna er mitt áhugamál og áhug- inn hefur sjaldan verið meiri. Núna fer ég með fjölskyldu minni á nýjar slóðir sem okkur hefur langað til í nokkurn tíma og ég hef alltaf tíma til að vera með þeim og njóta lífsins. Það er nokkuð sem ekki er öllum gefið að geta það og það er dýrmætt.“ ■ Tíminn með fjöl- skyldunni dýrmætur Patrekur Jóhannesson, leikmaður Bidasoa í handbolta, hefur rekið sig oftar en einu sinni á í líf- inu en alltaf lært af því. Þessi hávaxni Garðbæingur er fullur sjálfstrausts og hlakkar til að takast á við ný verkefni á Spáni. PATREKUR JÓHANNESSON Hvílir sig nú heima en heldur til Spánar innan tíðar. TENNIS Serena Williams vann syst- ur sína Venus í úrslitaleik Wimbledon-mótsins á laugardag. Venus vann fyrsta settið 6:4 en Serena vann hin tvö 6:4 og 6:2. Venus var meidd á læri, mjöðm og í maga en hafði samt forystu framan af leiknum. Gömul meiðsli tóku sig upp í undanúr- slitaleiknum gegn Kim Clijsters og átti hún í miklum erfiðleikum þegar á leikinn leið. Venus komst í 4:0 í öðru settinu en gaf eftir og tapaði 4:6. Hún varð að taka sér góða hvíld fyrir þriðja settið en krafturinn í uppgjöfunum var greinilega minni og Serena vann örugglega 6:2. „Hún er harðari af sér en ég hélt“, sagði Serena eftir leikinn en viðurkenndi að hún hafi nýtt sér meiðsli systur. „Ég gat ekki hlaupið hratt, ég gat ekki teygt mig og sendi boltann í netið af því að það varð erfiðara að teygja sig eftir honum,“ sagði Venus eftir leikinn en það kom aldrei til greina hjá henni að gefa leikinn eða hætta leik. „Ég sagði við sjálfa mig að þetta væri Wimbledon og ég fengi hugsan- lega ekki annað tækifæri. Þetta varð til þess að ég barðist meira og hugarfarið var rétt. ■ Wimbledon-mótið: Serena vann annað árið í röð SERENA WILLIAMS Serena Williams vann systur sína Venus Williams í úrslitaleik Wimbledon-mótsins.  16.35 RÚV Fótboltakvöld (e).  16.50 RÚV Helgarsportið (e).  18.30 Sýn Íslensku mörkin (e).  19.00 Sýn Bein útsending frá leik Grindavíkur og ÍA í Landsbankadeild karla. Grindvíking- ar hafa sigrað í þremur síðustu viður- eignum liðanna suður með sjó.  20.30 Skjár 1 Mótor - Sumarsport. Þáttur um aksturs- íþróttir sem fjallar m.a. um kvartmílu, mótorkross, sandspyrnu, go kart, hrað- bátarall, listflug, mótordreka og svifflug.  23.15 Sýn Gillette-sportpakkinn. Þáttur um íþrótta- viðburði um víða veröld.  23.45 Sýn Sýnt frá leik Grindavíkur og ÍA í Lands- bankadeild karla (e). hvað?hvar?hvenær? 4 5 6 7 8 9 10 JÚLÍ Mánudagur Næstu tvö til þrjú árin verðamjög mikilvæg í sögu klúbbs- ins,“ sagði Patrick Vieira, leikmaður Arsenal, í viðtali við News of the World. Hann bætti því við að hann langaði mikið til að vera áfram hjá félaginu. Talið er að hann skrifi undir samning sem tryggir honum 70.000 pund, rúm- ar níu milljónir króna, í vikulaun. Eftir að rússneskur auðmaðurkeypti Chelsea linnir ekki sögum af því að félagið leggi fram háar fjárhæðir til að tryggja sér nýja leikmenn. Bresku sunnu- dagsblöðin birtu flest greinar þess efnis að Chelsea undirbúi nú 30 milljóna punda til- boð í Wayne Rooney, hinn unga sóknarmann Everton. Litlar líkur þykja þó á því að hann verði seld- ur. Ekkert verður af því að MarkViduka, sóknarmaður Leeds, fari til Barcelona. Varaforseti Barcelona sagði í gær að félagið væri hætt að reyna að fá hann til sín. Ástæðan var sögð sú að liðið hafi þegar of marga leikmenn frá löndum utan evrópska efnahags- svæðisins. Óvíst er að hinn sterki varnar-maður Middlesbrough, Ugo Ehiogu, leiki nokkuð fyrir jól. Við upphaf æfinga fyrir næsta tíma- bil kom í ljós að hann átti við hnémeiðsli að stríða. ■ Fótbolti Landsbankadeild karla: Sharpe er velkominn aftur FÓTBOLTI „Á föstudagskvöldi feng- um við okkur bjór heima hjá ein- um leikmannanna,“ sagði Lee Sharpe, fyrrum leikmaður Grindavíkur í viðtali við enska dagblaðið Sunday People. „Við höfðum leikið fyrr um kvöldið og áttum annan leik á þriðjudegi. Ég áttaði mig ekki á því að það var regla um viku bindindi fyrir leik og við brutum hana. Ég hélt að þetta væri eins og á Englandi og það voru bara nokkrir dagar í leik. Þarna er þetta ein vika. En það er ekki þess vegna sem ég fór aftur til Englands.“ Lee Sharpe var meiddur eins og fram kom í viðtali Sunday People við Ingvar Guðjónsson, fram- kvæmdastjóra Grindavíkur. „Þeir héldu partí eitt föstudagskvöldið. Stuðningsmennirnir komust að því og voru ekki ánægðir. Leikmönn- unum var refsað en það er fráleitt að segja að Lee hafi farið vegna þessa. Hann var meiddur. Hann hafði staðið sig vel hjá okkur þeg- ar hann meiddist. Það tekur fjórar til sex vikur að ná sér af þessum meiðslum og það verður of seint. Hann er velkominn aftur hvenær sem er. Hann má koma aftur þegar hann nær sér af meiðslunum en ég efast um að af því verði.“ ■ SHARPE Lee Sharpe, til hægri á myndinni, fór frá Grindavík í síðasta mánuði.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.