Fréttablaðið - 07.07.2003, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 07.07.2003, Blaðsíða 36
7. júlí 2003 MÁNUDAGUR18 JOHNNY ENGLISH kl. 4 og 6 THE MATRIX R.. 10 b.i 12 BRINGING DOWN... kl. 3.45, 5.50, 8, 10.15 Sýnd kl. 6, 8, og 10 bi 14 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 b.i. 12 ára kl. 6NÓI ALBINÓI kl. 6, 8 og 10 RESPIRO kl. 4, 6, 8 og 10 TÖFRABÚÐINGURINN m/ísl. kl. 4 ANGER MANAGEMENT 5.45, 8, 10.30 Sýnd kl. 5.45, 8, og 10.15 b.i. 12 ára Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.15 b.i. 12 kl .3.20 5.40 8, 10.20 Sýnd í lúxus kl. 3.40, 6, 8.30 og 10.50 kl. 5.40, 8 og 10.20 b.i. 14DARK BLUE kl. 8 og10 b.i. 16FILMUNDUR: DUMB AND DUMB 4, 6, 8 og 10 AGENT CODY BANKS kl. 3.40 SKÓGARLÍF 2 m/ísl. kl. 4 KANGAROO JACK kl. 4, 6 og 8 DARK BLUE kl. 8, og 10.20 b.i 16 TRICKY LIFE Karlleggur The White Stripes,Jack White, hefur tekið að sér að útsetja og stjórna upptökum á nýjustu plötu kántrístjörnunnar Lorettu Lynn. Eftir að hún frétti að metsöluplatan White Blood Cells væri tileinkuð sér hafði hún samband og bauð fyrrum hjóna- kornunum á sveitabæ sinn. Þar fóru þau yfir nýju lögin og Jack heillaðist mikið. Svo mikið að hann segir að lögin komi sér til að gráta af fegurð. Lynn vill víst færa sig frá þeim sótthreinsaða hljómi sem ríkir í meginstraums kántrí í dag og fá hrárri hljóm. Þar ætti White að vera á heimavelli. Hin hæfileikaríka og rassfríðaofurstjarna með meiru, Jenni- fer Lopez, er farin í mál við fyrr- um umboðsmann sinn, Benny Medina. Hún vill að hann endurgreiði sér þá 100.000 doll- ara sem hann vann sér inn vegna vinnu fyrir hana. J-Lo rak kauðann í síðasta mánuði, en þá hafði hann unnið fyrir hana í 5 ár. Segir hún ástæðu þessa alls vera að hann hafi hvorki verið fullnuma né löglegur um- boðsmaður hæfi- leikafólks. Lög- fræðingur söng- og leikkonunar segir að henni finnist hún hafa verið blekkt og rangt farið með hennar mál. Medina segir hinsvegar að þetta framferði hennar lýsi algjöru van- þakklæti og engum skilningi á hlutverki annarra í gerð stór- stjörnu og um leið hreinni og beinni aurasýki og græðgi. Tökur á síðustu Star Wars mynd-inni eru hafnar og auðvitað eru aðdáendur byrjaðir að skiptast á orðrómi á netinu. Mynd af leikar- anum Hayden Christensen í hlut- verki Anakin Skywalker í nýjustu myndinni lak út á netið. Þar kom mörgum mikið á óvart að sjá að Anakin verð- ur með axlasítt hár í kafla 3. Fréttiraf fólki Lúxus kl. 5,30, 8 og 10.30 VIP TÖLVULEIKUR „Tomb Raider:The Angel of Darkness“ er fyrsti í seríunni sem kemur út í hinni nýju kynslóð leikjatölva, nú fyrst á PlayStation og PC en GameCube og X-Box síðar. Miklar breytingar og bætingar hafa verið gerðar á leiknum að sögn Core, höfunda leiksins, og ekki bara hvað varðar augljósar betrumbætur á grafík- inni. Eftir röð keimlíkra fram- haldsleikja vildu þeir sjá til þess að næsti leikur færi ótroðnar slóðir og blési nýju lífi í seríuna. Kvikmynd, myndabálkar í tísku- ritum, myndasögur og auglýsing- ar um Tomb Raider og Löru voru gerð og hefur það í raun dregið mun meiri athygli að fyrirbærinu en sjálfir leikirnir sem sífellt færri spiluðu með hverju fram- haldinu. Þessu vildi Core spyrna gegn með Angel of Darkness. Ímynd og útlit Löru ásamt and- rúmslofti leiksins var það fyrsta sem fór undir skurðhnífinn: Per- sóna Löru var dýpkuð, hinum klassíska búningi var breytt og dregið var úr ýktum líkama henn- ar, þ.e.a.s. brjóstin voru minnkuð. Allt í allt má segja að Lara sé orð- in eilítið villtari, enda stundar hún innbrot í listasöfn og flýr lögguna í nýja leiknum. Sögunni var svo gefið meira rými en umfjöllunar- efni leiksins eru langsamlegast þau dekkstu hingað til; fjöldamorðingjar og leynileg, valdaóð trúfélög. Spilun leiksins var einnig breytt þó nokkuð. Stærsta breyt- ingin þar er að Lara getur nú læðst um og litið fyrir horn leyni- lega, í stíl við Solid nokkurn Snake. Aukin áhersla á mannlega óvini og nútímaumhverfi í sumum tilfellum auk annarrar persónu til að spila hluta leiksins með eru svo allt nýjar viðbætur. Aðall Tomb Raider leikjanna; að hoppa ótrú- legar vegalengdir milli syllna í lífshættulegri hæð, leysa flóknar þrautir, varast gaddagryfjur og rúllandi hnullunga og að murka lífið úr mönnum og dýrum er enn aðaluppistaða leiksins. Tomb Raider hóf líf sitt árið 1996, og varð fyrsti leikurinn þá nánast fyrir slysni svar PlaySta- tion leikjatölvunar við „Mario 64“ leik Nintendo manna sem var stærsti og mest seldi leikur nýju Nintendo 64 tölvunnar. Tomb Raider átti stóran þátt í að gera PlayStation að vinsælustu leikja- tölvu áratugarins og í að færa tölvuleiki til eldri aldurshóps. Nú þegar fjöldinn allur af eftirherm- um og áþekkum leikjum hefur komið út og nýjar leikjatölvur lifa góðu lífi verður fróðlegt að sjá hvort spánýr Tomb Raider heldur enn áhuga spilara. david@frettabladid.is Úr grafránum í fjölda-morð og þjófnað Sjötti leikurinn um brjóstagóða fornleifafræðinginn Löru Croft kom í verslanir hér á Fróni um helgina, og er það eflaust mörgum aðdáendum mikið gleðiefni enda hefur nýi leikurinn verið lengi á leiðinni. TEIKNIMYNDIR Í kjölfar kvikmyndar- innar Hulk hefur Marvel útgáfan eytt smá auka púðri í gerð nýjustu myndasagnanna um græna risann. Síðasta árið eða svo hefur mynda- söguhöfundurinn Bruce Jones þrætt örlagaþræði Banners í blaða- seríunni The Incredible Hulk. Snillingurinn John Romita Jr. hefur teiknað. Nýlega hefur sögu Jones, Re- turn of the Monster, verið safnað saman í bækur. Þegar hér kemur við sögu eru það þekkt sannindi að Bruce Banner og Hulk eru einn og sá sami. Reiði skrímslisins er orðin algerlega stjórnlaus og er því kennt um dauða lítillar stúlku. Báð- ir eru því hundeltir, bæði af fjöl- miðlum og lögreglu. Nálgun Jones er góð og allt útlit til fyrirmyndar. Einnig er hægt að kaupa blað sem inniheldur söguþráð kvik- myndarinnar. Þar er hann reyndar mjög einfaldaður og mikið styttur. Í raun svo mikið að hægt er að tala um útdrátt en ekki heilan sögu- þráð. Aftur er það Jones sem sér um skriftirnar en Mark Bagley teiknar. Í myndasögubúðinni Nexus rík- ir hálfgert Hulk æði þessa dagana. Allskyns leikföng eru þar fáanleg auk þess sem búðargestir geta fengið frítt eintak af nýjasta tölu- blaðinu af The Incredible Hulk. ■ Athyglisverðar myndasögur: Auka púður í myndasöguútgáfu HULKÆÐI Í NEXUS Myndasöguverslunin Nexus tekur að sjálfsögðu þátt í Hulk æðinu. E in n t v e ir o g þ r ír 2 8 5. 0 17 DRANGEY Laugavegi og Smáralind TOMB RAIDER: THE ANGEL OF DARKNESS: Hefur hlotið misjafna dóma gagnrýnenda. Hverafold 1–5 S. 567-6511 Ú T S A L A 20 - 60% afsláttur

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.