Fréttablaðið - 26.07.2003, Page 4
4 26. júlí 2003 LAUGARDAGUR
Áttu von á að Saddam Hussein
finnist?
Spurning dagsins í dag:
Ætlar þú að skipta við nýju olíufélögin?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
22,6%
56,2%
Nei
8,8%Veit ekki
12,4%Alveg sama
Já
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
■ Lögreglufréttir
FLÓTTAMENN Rúmensk fjölskylda
sem verið hefur á flótta síðastlið-
in tólf ár var í gær flutt nauðug úr
landi. Fjölskyldan, hjón og tíu ára
tvíburar, hafði sótt um hæli hér-
lendis af mannúðarástæðum en
þeirri beiðni var hafnað. Fjöl-
skyldan hefur verið hér á landi
síðan í desember síðastliðnum.
Fjölskyldufaðirinn tilheyrir
ungverskum minnihluta í Rúmen-
íu og sótti um hæli hér á landi á
þeim forsendum að hann hefði
þurft að sæta ofsóknum vegna
stjórnmálaskoðana sinna og at-
burða sem gerðust í byltingunni
1989.
Dómsmálaráðuneytið synjaði
beiðni fjölskyldunnar á þeim for-
sendum að framburður hjónanna
hafi ekki þótt trúverðugur. Þá
kemur fram í úrskurði ráðuneyt-
isins að Evrópusambandið hafi
komist að þeirri niðurstöðu að
rúmensk stjórnvöld mismuni
ekki þegnum sínum eða láti
mannréttindabrot viðgangast.
Katla Þorsteinsdóttir, lög-
fræðingur Alþjóðahúss, gagnrýn-
ir að skýrsla Evrópusambandsins
hafi verið notuð til þess að kom-
ast að niðurstöðu í málinu, en
málið eitt og sér ekki verið rann-
sakað sérstaklega eins og stjórn-
sýslulög segi til um. „Mér finnst
að við hefðum átt að skoða þetta
mál út frá mannúðarsjónarmið-
um,“ segir Katla. ■
Þeir sem geta flýja
land vegna hita
Flosi Arnórsson, sjómaðurinn í Dubai, er enn í farbanni og eru komnir
þrír mánuðir síðan hann var hnepptur í gæsluvarðhald. Hann segir mál
sitt enn vera á byrjunarstigi og veit ekki hvenær það kemst lengra.
FARBANN „Ég er búinn að vera hér
í þrjá mánuði. Það er víst bara
eðlilegur gangur mála hér,“ segir
Flosi Arnórsson, sjómaðurinn í
Dubai. Flosi var hnepptur í gæslu-
varðhald 22. apríl fyrir að vera
með riffil í farangri sínum á flug-
vellinum í Dubai. Hann var ásamt
öðrum Íslendingum á heimleið
eftir að hafa siglt Svani RE til
nýrra eigenda.
Flosi losnaði úr gæsluvarð-
haldi á sjómannadaginn og var
settur í farbann í staðinn. Fyrst
um sinn dvaldi
hann á hóteli í
Dubai. Fyrir
nokkru flutti hann
á norskt sjómanna-
heimili þar í borg.
„Það fer vel um
mig hérna, ég hef
allt til alls. Við búum tveir í ein-
býlishúsi, ég og prestur heimilis-
ins.“
Flosi segir að ekkert sé að ger-
ast í sínum málum. Tveir lögfræð-
ingar séu að vinna í málinu en
hann sé yfirleitt að bíða þess að
heyra frá þeim. Síðast hafi þeir
ætlað að hafa samband við hann
fyrir þremur til fjórum dögum en
hann hafi ekkert heyrt enn. Málið
sé á byrjunarstigi og hann viti
hreinlega ekki hvenær það komist
lengra.
Hann hefur verið af og til í
sambandi við norska konsúlinn
sem er nú í Svíþjóð. „Allir sem
mögulega geta flýja land á þess-
um tíma árs vegna hita. Það er
ekki einu sinni svalandi að fara í
sjóinn. Á daginn er hitinn upp
undir 45 stig og á bilinu 35 til 37
stig á kvöldin.“
Flosi segir að tíminn sé orðin
langur og þessu megi gjarnan
fara að ljúka. Þó sé hann ósköp ró-
legur, ekkert annað sé að gera í
stöðunni. „Ég er farinn að fara í
ræktina til þess að hafa ofan af
fyrir mér. Eitthvað verður maður
að gera.“
hrs@fretttabladid.is
Samgönguráðherra:
Olísformaður
yfir flugráð
SAMGÖNGUMÁL Sturla Böðvarsson
samgönguráðherra skipaði í vik-
unni nýtt flugráð. Formaður flug-
ráðs er Gísli Baldur Garðarsson,
hæstaréttarlögmaður og stjórnar-
formaður Olís. Aðrir í flugráðs-
menn eru Bjarni Benediktsson al-
þingismaður, sem er varaformað-
ur, Magnús Ólafsson bóndi, Jón
Karl Ólafsson framkvæmdastjóri,
Jens Bjarnason flugrekstrarstjóri
og Erna Hauksdóttir fram-
kvæmdastjóri. ■
FYRIRSÁT
Bandarískir hermenn segjast nálgast í leit
sinni að Saddam. Tugur manna sem taldir
eru tilheyra einkalífverði forsetans fyrrver-
andi var handtekinn í gær.
Leitin að Saddam:
Hringurinn
þrengist
WASHINGTON, AP Bandarískar her-
sveitir réðust í gær inn í hús í
borginni Tíkrít í Írak. Tugur
manna sem taldir eru tilheyra
einkalífverði Saddams Husseins,
fyrrum Íraksforseta, var hand-
tekinn. Ábending um íverustað
hermannanna barst frá íröskum
manni en bandaríski herinn fær
ógrynni slíkra ábendinga daglega.
Tíkrít er heimaborg Saddams og
þar er andspyrnan gegn innrásar-
hernum öflugust.
Ray Odierno, yfirmaður í
bandaríska hernum, sagði óljóst
hvort hinir handteknu hefðu gætt
Saddams nýlega. Stöðugt styttist í
að Saddam yrði handtekinn, með-
al annars hefðu bandarískir her-
menn nýlega rætt við eina af eig-
inkonum Saddams.
„Við herðum snöruna sífellt að
hálsi Saddams,“ sagði Odierno. ■
Á WALL STREET
Bandarísk hlutabréf eru enn hóflega verð-
lögð en ekki jafn vanmetin og fyrir
nokkrum mánuðum.
Erlend hlutabréf:
Útsölunni
lokið
VIÐSKIPTI Kauptækifærum á hluta-
bréfamörkuðum hefur fækkað að
undanförnu samhliða hækkun
hlutabréfavísitala og aukinni
bjartsýnni á efnahagshorfum.
Flestar hlutabréfavísitölur
heims hafa hækkað um fjórðung
til þriðjung frá því í mars. Már
Wolfgang Mixa hjá SPH verð-
bréfum segir mælingar sýna að
bandarísk hlutabréf séu enn hóf-
lega verðlögð gagnvart skulda-
bréfum en vanmatið sé orðið tölu-
vert minna en það var síðasta vet-
ur. Þá héldu stríðsótti og neikvæð-
ur fréttaflutningur gengi bréfa
niðri. „Það mætti því segja að út-
sölunni á bandarískum hlutabréf-
um sé lokið í bili, þó svo að þau
séu enn skynsamlegur fjárfest-
ingarkostur,“ segir Már. ■
KEIKÓ Keikó hefur haldið sig við
strendur Noregs undanfarið ár
og er ekkert fararsnið á honum.
Hann er í Taknes-flóa en þangað
synti hann frá Vestmannaeyjum
fyrir um ári síðan í fylgd með
villtum háhyrningum.
Vonast var til að Keikó hefði
samband við villta háhyrninga í
vetur þar sem nokkur fjöldi
þeirra leggur leið sína í Taknes-
flóa ár hvert. Síðasti vetur var
þó undantekning þar sem ekkert
sást til ferða villtra háhyrninga.
Nú binda umsjónarmenn Keikós
von við sumargotssíldina sem
kemur að ströndinni innan
skamms en háhyrningar eru
sólgnir í hana.
Formaður Free Willy Keiko
stofnunarinnar segir að Keikó
veki enn mikla athygli í Noregi
og koma ferðamenn í rútum til
Taknes-flóa til að fylgjast með
honum synda. Um tíu ár eru lið-
in frá því að byrjað var á því að
frelsa Keikó en kostnaður við
verkið nemur í heildina um 20
milljónum dala. ■
FLUGSTÖÐ LEIFS EIRÍKSSONAR
Rúmenarmir fengu í fyrradag að vita að þeim hefði verið vísað úr landi, en fjölskyldan fór
af landi brott í gær.
Rúmensk fjölskylda flutt nauðug úr landi:
Á flótta síðustu
tólf árin
M
YN
D
/A
P
KEIKÓ
Háhyrningurinn er nú í Noregi og starfa fjórir umsjónarmenn við að koma honum í kynni
við villta háhyrninga.
Keikó ennþá í Noregi:
Svamlar við ströndina
■
Á daginn er hit-
inn upp undir
45 stig og á bil-
inu 35 til 37
stig á kvöldi.
FLOSI ARNÓRSSON ÁSAMT NORSKA KONSÚLNUM
Flosi segir hitann vera svo mikinn í Dubai að ekki sé einu sinni svalandi að fara í sjóinn.
VEGARKANTUR GAF SIG Vegar-
kantur gaf sig þegar rúta með
sextíu farþegum mætti öðru öku-
tæki. Rútan hallaði um fjörutíu
gráður og hjálpaði björgunar-
sveitin í Vík við að rétta hana af.
Engum varð meint af og gátu
ferðalangarnir haldið ferð sinni
áfram. Vegagerðin mun laga veg-
inn, sem er töluvert skemmdur.