Fréttablaðið - 26.07.2003, Blaðsíða 18
■ ■ ÚTIVIST
9.00 Dagsferð Ferðafélags Íslands
verður farin á Vörðufell á Skeiðum.
Gengið verður upp á Vörðufell framhjá
Úlfsvatni. Hækkun er um 400 metrar og
tekur ferðin um 8 klst. Fararstjóri er
Trausti Pálsson. Lagt verður af stað frá
BSÍ með viðkomu í Mörkinni 6. Áætluð
heimkoma er síðdegis. Verð kr. 2.100/
2.400.
■ ■ HÁTÍÐIR
Listrænn laugardagur verður í
Reykjavík á vegum Magnaðrar mið-
borgar. Listafólk í miðborginni hjálpast
að við að skapa listræna stemningu,
gullsmiðir bjóða fólk sérstaklega vel-
komið, útimessa verður haldin á Lækjar-
torgi, tónlistarfólk flytur tónlist og dans-
að verður á götum úti, svo fátt eitt sé
nefnt af fjölbreyttri dagskrá.
Miðbæjarhátíð á Akureyri. Fjöl-
breytt dagskrá í miðbæ Akureyrar frá
morgni til kvölds.
Lifandi laugardagur í Reykjanesbæ
með bílasýningu, listflugi og krafta-
keppni. Verslanir verða með útimarkað
á Hafnargötunni og handverksfólk sýnir
framleiðslu sína.
Listasumar á Sólheimum í Gríms-
nesi er hluti af listahátíðinni List án
landamæra sem er haldin í tilefni af Evr-
ópuári fatlaðra 2003. Í dag verður opinn
útimarkaður fyrir listmuni og lífrænt
grænmeti á Aðaltorgi Sólheima. Tré- og
hljóðfærasmiðjan verður opin almenn-
ingi og leirgerð Sólheima sýnir afrakstur
vinnu sinnar í Ingustofu. Þar er einnig
legósýning Árna Alexanders.
■ ■ ÚTIMARKAÐUR
12.00 Útimarkaður að Moss-
kógum í Mosfellsdal. Boðið er upp á
lífrænt grænmeti sem er tekið upp
úr garðinum jafnóðum, splunkunýj-
an, spriklandi silung og murtu úr
Þingvallavatni, nýskornar rósir frá
Gísla í Dalsgarði, lífrænar olíur og
smyrsl með góðum húsráðum. Og
Diddú mætir auðvitað með sínar
heimsfrægu pestósósur sem hún
syngur bragðið í.
■ ■ OPNANIR
14.00 Daði Guðbjörnsson opnar
málverkasýningu í Listsýningasal Salt-
fiskseturs Íslands í Grindavík, Hafnar-
götu 12a. Sýningin stendur til 31 ágúst.
Listsýningasalur Saltfiskseturs Íslands er
opinn alla daga vikunnar frá kl. 11-18.
14.00 Sýning á verkum Gerhards
Königs verður opnuð við Sesseljuhús á
Sólheimum. Sýningin ber yfirskriftina
Lífsform og samanstendur af sjö verkum
sem Gerhard hefur unnið tvö síðustu
sumur á Sólheimum.
17.00 Víðir I. Þrastarson opnar
málverkasýningu á Kaffi Sólon. Verkin
eru í draumkenndum stemningarstíl, og
er yfirskrift sýningarinnar „Minning“. Sýn-
ingunni lýkur 23. ágúst.
■ ■ MYNDLIST
15.00 Ólafur Engilbertsson verður
með leiðsögn um sýninguna Humar
eða frægð.
■ ■ KVIKMYNDIR
14.00 Tónleikamynd Sykurmol-
anna, Á Guðs vegum, verður sýnd í
Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhús-
inu.
16.00 Í Listasafni Reykjavíkur
verður frumsýnd upptaka frá tónleikum
Jasshljómsveitar Konráðs Bé á Hótel
Borg haustið 1990.
■ ■ TÓNLIST
12.00 Einn efnilegasti organisti
Dana af yngri kynslóðinni, Lars
Frederiksen, organisti Frúarkirkjunnar í
Óðinsvéum, flytur verk eftir Bach á há-
degistónleikum í Hallgrímskirkju.
14.00 Sumartónleikar í Skálholti:
Hollenski fiðluleikarinn Jaap Schröder
ræðir um strengjaverk Josephs Haydns í
Skálholtsskóla.
15.00 Strengjakvartettinn „Sjö orð
Krists á krossinum“ eftir Joseph Haydn
verður fluttur á Sumartónleikum í Skál-
holti. Flytjendur eru Jaap Schröder á
fiðlu, Rut Ingólfsdóttir á fiðlu, Svava
Bernharðsdóttir á víólu og Sigurður Hall-
dórsson á selló.
15.30 Kritikal Mazz leikur nokkur
lög í Listasafni Reykjavíkur í Hafnar-
húsinu.
16.00 Íslensk-danska klezmer-
hljómsveitin Schpilkas spilar á áttundu
tónleikum sumartónleikaraðar veitinga-
hússins Jómfrúarinnar við Lækjargötu.
Hljómsveitina skipa þeir Haukur Gröndal
á klarinett, Nicholas Kingo á harmóniku,
Peter Jörgensen á bassa og Helgi Svavar
Helgason á trommur.
16.00 Sumarkabarett í kaffihúsinu
Grænu könnunni á Sólheimum. Söng-
sveit Leikfélags Sólheima verður með
söngdagskrá þar sem hljóma bítlalög,
Grease-lög, Abbalög og fleiri smellir.
17.00 Sumartónleikar í Skálholti:
Guðrún Óskarsdóttir flytur á sembal
þrjár franskar svítur eftir Johann Sebasti-
an Bach í Skálholtskirkju.
21.00 Á sumartónleikum við Mý-
vatn flytja Hildigunnur Halldórsdóttir
fiðluleikari og Sólveig Anna Jónsdóttir
píanóleikari fjölbreytta efnisskrá í
Reykjahlíðarkirkju. Meðal verka eru
tangóar og danslög frá fyrri hluta aldar-
innar í útsetningu Fritz Kreisler og einnig
Rómansa eftir Árna Björnsson og
sónötuþættir eftir Beethoven.
21.00 Íslensk-danska klezmer-
hljómsveitin Schpilkas spilar í Caffé
Kúlture við Hverfisgötu. Hljómsveit-
ina skipa þeir Haukur Gröndal á klar-
inett, Nicholas Kingo á harmóniku,
Peter Jörgensen á bassa og Helgi
Svavar Helgason á trommur.
■ ■ SÝNINGAR
Brynhildur og Finna kynna Nýja
Hluti í Gallerí Nema hvað, Skólavörðu-
stíg 22c. Opið laugardag og sunnudag
14-17 og mánudag til miðvikudags
15.30-19.00.
Ljósmyndasýningin World Press
Photo 2003 er nú í Kringlunni. Þetta er
þekktasta samkeppni í heiminum á sviði
fréttaljósmyndunar og hefur verið haldin
árlega síðan 1955. Sýningin stendur til
2. ágúst.
„Meistarar formsins“ nefnist stór
höggmyndasýning í Listasafni Akur-
eyrar, sem gerð er í samvinnu við
Ríkislistasafnið í Berlín. Á sýning-
unni eru verk eftir 43 listamenn, þar
af 11 Íslendinga.
Hlynur Hallsson er með sýninguna
BÍÓ-KINO-MOVIES í aðalsal Ketilshúss-
ins á Akureyri. Finnska listakonan
Senja Vellonen sýnir jafnframt bókverk
á svölum.
Snorri Ásmundsson, forsetaefni og
heiðursborgari, er með sýninguna „Til
Þín“ í Kling og Bang gallerí, Laugavegi
23. Á sýningunni opinberar hann sitt
sérstaka vinasamband við almættið og
deilir því með þeim sem móttækilegir
eru.
Dýrfinna Torfadóttir, gullsmiður og
skartgripahönnuður, sýnir verk sín í List-
húsi Ófeigs, Skólavörðustíg 5. Dýrfinna
sýnir í þetta sinn skart unnið úr íslenskri
ull með ívafi hefðbundinna eðalmálma.
Sýningin stendur til 31. júlí.
Sýningin “Look out for my love, it’s
in your neighbourhood“ er í Gallerí
Hlemmi. Þetta er fyrsta einkasýning
Hrafnhildar Halldórsdóttur hér á landi,
en hún er búsett í Glasgow þar sem
hún útskrifaðist frá Glasgow School of
Art árið 2001.
Starfsemi Gallerí Dvergs er hafin
að nýju með opnun á myndlistarsýn-
ingu Hugins Þórs Arasonar, sem
hann nefnir „Hundraðshluta“. Sýning-
arhúsnæðið er í kjallara að Grundar-
stíg 21.
Sýning á verkum þriggja listamanna í
Listasafni ASÍ. Verkin eru eftir lista-
mennina Svavar Guðnason, Nínu
Tryggvadóttur og Kristján Davíðsson.
Sýnd verða verk frá 5. og 6. áratug síð-
ustu aldar sem öll eru í eigu safnsins.
Um er að ræða verk sem safnið hefur
hlotið að gjöf frá velunnurum sínum.
Sýning á verkum Matthew Barney
stendur í Nýlistasafninu til 27. júlí.
Íslensk og alþjóðleg samtímalistaverk
eru til sýnis í Safni, Laugavegi 37.
Olíumálverk eftir Ólaf Elíasson eru
til sýnis í Steinaríkinu á Akranesi.
Ríta og Páll sýna skartgripi og aðra
muni úr horni, hrosshári, ull og fiðu í
Listmunahorninu á Árbæjarsafni nú
um helgina.
Í aðalsal Hafnarborgar, menningar-
og listastofnunar Hafnarfjarðar, stendur
yfir afmælissýning í tilefni 20 ára af-
18 26. júlí 2003 LAUGARDAGUR
hvað?hvar?hvenær?
23 24 25 26 27 28 29
JÚLÍ
Laugardagur
Hljómsveitin Úlfarnir
frá Akureyri
í kvöld
GUÐLAUGUR ÞÓR ÞÓRÐARSON
Mig hefur lengi langað til aðfara í skipulagðar gönguferð-
ir, en einhvern veginn ekki komið
mér í það ennþá,“ segir Guðlaug-
ur Þór Þórðarson, þingmaður og
borgarfulltrúi. „Listrænn laugar-
dagur hljómar líka mjög vel. Það
er alltaf stemning að fara í mið-
borgina, ekki síst þegar svona
nokkuð er í gangi. Þá væri örugg-
lega ekki úr vegi að kíkja á Lista-
sumar á Sólheimum í Grímsnesi.
Þar virðist vera afskaplega
skemmtileg starfsemi á ferðinni.
Svo hlýtur tónleikamynd með
Sykurmolunum að vera alger
snilld og gaman að rifja upp þá
tíma þegar Einar Örn og Björk
gerðu garðinn frægan ásamt
fleirum.“
Val Guðlaugs
Þetta lístmér á!
✓
Það er svo gaman að fá að ráðaþessu. Þetta er algjör drauma-
staða, að geta raðað saman öllum
sínum uppáhaldsverkum og valið
með sér fólk til þess að spila þau,“
segir Steinunn Birna Ragnars-
dóttir píanóleikari. Hún hefur
undanfarin sjö ár skipulagt
þriggja daga tónleikahátíð í
Reykholti með klassískum tón-
leikum, sem þetta árið hófst í
gærkvöld með flutningi á verkum
eftir Schubert.
Í dag verða tvennir tónleikar á
Reykholtshátíðinni. Klukkan þrjú
flytur danski tenórinn Jens
Krogsgaard ljóðatónlist ásamt
Steinunni Birnu. Í kvöld mætir
síðan Brindisi-tríóið frá Bretlandi
og flytur tónlist eftir Mozart,
Fauré og Brahms.
Steinunn Birna segir hefð fyrir
því að hafa lokatónleikana á
sunnudeginum fjölbreytta. Þar
verða að þessu sinni flutt þekkt
verk eftir Haydn, Dohnányi og
Brahms og svo frumflutt verk eft-
ir Hildigunni Rúnarsdóttur við
texta eftir Snorra Sturluson.
„Þetta er stórskemmtilegt verk
og þótt enginn botni í þessum
texta skiptir það engu máli. Þetta
er mjög dramatískt og kjarnyrt og
flott.“
Steinunn Birna segist hafa
gengið með þann draum eftir að
hún kom utan úr námi að koma á
fót tónlistarhátíð af þessu tagi
fjarri ys og þys höfuðborgarinnar.
„Það er eins og fólk sé opnara
fyrir því að njóta tónleikanna hér,
kannski bara vegna þess að fólk
er komið í umhverfi þar sem það
getur slakað á og nýtur bara
stundarinnar. Flytjendur hafa líka
svo gott af því að finna þessi
sterku og jákvæðu viðbrögð frá
áhorfendum.“
gudsteinn@frettabladid.is
■ TÓNLIST
Fjarri ys og þys
STEINUNN BIRNA RAGNARSDÓTTIR
Tvennir tónleikar verða á Reykholtshátíð í dag.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
✓
✓
✓
✓