Fréttablaðið - 26.07.2003, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 26.07.2003, Blaðsíða 32
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500 12 spor Bakþankar EIRÍKS JÓNSSONAR www.IKEA.is Laugardaga kl. 10:00 - 18:00 | Sunnudaga kl. 12:00 - 18:00 | Mánudaga - föstudaga kl. 10:00 - 18:30 | www.ikea.is Settu strik í reikninginn með IKEA ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S I KE 21 49 3 0 7/ 20 03 Ósvikin fjölskyldustemning í IKEA - fjöldi spennandi verðtilboða. DAGANA 24.JÚL Í T I L 10.ÁGÚST Á félaga sem er heldur drykk-felldur fyrir eigin smekk og ann- arra. Reyni stundum að koma honum til hjálpar þegar Bakkus bankar upp á og býður á bömmer. Hef svo sem reynt ýmislegt. Skutlað honum í Nes- kirkju í messu eða lánað honum bíl- inn fullan af bensíni og sagt honum að fara Gullfossgeysihringinn. Ekki með sérstökum árangri. Í fyrra til- fellinu endaði hann á Mímisbar á Hótel Sögu og í því seinna á Útlagan- um á Flúðum. Rífandi kjaft. FANN svo ráðið óvænt í miðbæ Reykjavíkur. Hefur dugað vel hingað til. Felst í því að leiða þennan sí- þyrsta félaga í gegnum Kaffi Aust- urstræti en á þeim bar eru tvennar dyr. Aðrar í portinu sem liggur úr Veltusundi út á Austurvöll og hinar í Austurstræti. Gangan í gegnum bar- inn tekur nákvæmlega 12 spor. YFIRLEITT fer ég með hann Veltu- sundsmegin. Helst í hádeginu því þá er ljósið bjartast og skuggarnir lengstir. Strax í fyrsta sporinu viður- kennir félagi minn vanmátt sinn. Við barinn sitja yfirleitt tveir eða þrír langdrukknir menn á miðjum aldri. Bardaman um sjötugt og þrífur lát- laust upp dreggjar dagsins sem sull- ast víða. Við borð sitja menn og kon- ur. Vel timbruð eftir ævintýri nætur- innar. En til í fleiri. Sæmilega til fara og bera þess óljós merki að hafa einhvern tíma verið í lagi. Í ÁTTUNDA spori er félaginn far- inn að finna til æðruleysis. Hávaðinn eykst og það glittir í Lalla Johns við Austurstrætisgluggann. Hann er að blanda í pípu. Við hlið hans situr Grænlendingur sem lítur ekki út fyr- ir að vera túristi. Annar nývaknaður, hinn ósofinn. Bardaman þurrkar af borðinu hjá Lalla en gætir þess vel að strjúka framhjá hassblöndunni, sem er mini-útgáfa af heysátu og dygði til að svæfa flóðhest væri hann á barnum. Sem hann er ekki. Guði sé lof. Í TÓLFTA spori er stigið út á gang- stéttina í Austurstræti. Í því þrett- ánda áfram út í lífið. Líklega eina gönguferð í heimi sem kallar ekki fram þorsta. Eins og gefur að skilja. Félaginn segir sporin tólf í gegnum barinn gagnast sér betur en hin sem kennd eru við AA. Og mælir með þeim. Alveg bláedrú. ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.