Fréttablaðið - 26.07.2003, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 26.07.2003, Blaðsíða 21
Breski leikstjórinn John Schles-inger, sem vann Óskarsverð- laun fyrir myndina „Midnight Cowboy“, er látinn, 77 ára að aldri. Öndunarvél sem Schlesinger var tengdur við var aftengd eftir að heilsu hans hafði hrakað umtals- vert. Síðasta mynd Schlesinger áður en hann fékk hjartaáfall árið 2000 var „The Next Best Thing“ með Madonnu og Rupert Everett í aðalhlutverkum. Næsta smáskífa Radiohead, „Goto Sleep,“ verður gefin út í Bretlandi þann 18. ágúst. Þetta er önnur smáskífan af plötunni „Hail to the Thief.“ Þar verður að finna nýtt lag sem kallast „I Am Citizen Insane“ auk tónleikaútgáfu af laginu „Fog“. Hljóð- versútgáfu af því lagi var að finna á smá- skífunni „Knives Out“ af plötunni Amnesiac. Radiohead er um þess- ar mundir að undirbúa sig fyrir tónleikaferð um Bandaríkin. Hljómsveitin The Flaming Lipsvar kosin sú besta sem kom fram á tónleikunum T in the Park í Skotlandi af lesendum tímaritsins NME. Fékk hún 9,5 af 10 fyrir frammistöðu sína. Sveitin hljóp í skarðið á tónleikunum fyrir The White Stripes sem hætti við á síð- ustu stundu. Skammt á hæla The Flaming Lips í einkunnagjöfinni komu sveitirnar Coldplay og REM. Leikkonan Reese Witherspoonætlar að flytja í hið vinsæla hverfi Notting Hill í Lundúnum ásamt eiginmanni sínum Ryan Philippe. Fjöl- margar stór- stjörnur búa í hverfinu, þeir- ra á meðal Robbie Willi- ams, Geri Hall- iwell og leik- konan Minnie Driver. Hjúin eiga von á sínu öðru barni í nóv- ember og vilja finna góðan stað til að setjast að með fjölskylduna. Söngvarinn Paul Weller hefurgert útgáfusamning við fyrir- tæki milljónamæringsins Richards Bransons, V2. Eitthvað virðist Weller hafa snúist hugur því fyrir skömmu jós hann reiði sinni yfir útgáfufyrirtæki og sagði þau vera handónýt með öllu. Að sögn Bran- sons hafði það verið draumur hans undanfarin 30 ár að semja við Weller. Chester Bennington, söngvarirokkaranna í Linkin Park, losn- ar bráðlega við dular- fulla maga- og bakverki sem hafa hrjáð hann undanfarið. Kappinn mun á næstunni gangast undir skurðað- gerð til að fá bót meina sinna eftir að tónleikaferð sveitarinnar lýkur. Bennington segist alltaf vera óglatt og kasta meira að segja oft upp á miðjum tónleikum. LAUGARDAGUR 26. júlí 2003 21 Kidman of upptekin fyrir Von Trier: Leikur ekki í næstu mynd KVIKMYNDIR Nicole Kidman hefur dregið sig út úr samstarfi sínu við Lars Von Trier, en mynd þeirra Dogville var fyrsti hluti þríleiks. Ástæðan er troðin dagskrá leikkon- unnar sem leyfir henni ekki að hefja tökur fyrr en í október á næsta ári, en svo lengi er Von Trier ekki tilbúinn að bíða. Hann ætlar því að taka næstu mynd, Mand- erlay, með aðra leikkonu í aðalhlut- verkinu, en óráðið er í öll hlutverk myndarinnar enn. Þessi yfirlýsing kom mörgum á óvart, því Kidman og Von Trier höfðu lýst því yfir há- tíðlega á Cannes-kvikmyndahátíð- inni, þar sem Dogville keppti um Gullpálmann, að Kidman væri ör- ugg í allan þríleikinn sem aðalper- sónan Grace. „Okkur langaði virki- lega að fá hana, og hana langaði að leika, en af fjárhagslegum ástæð- um og vegna fjölda annarra verk- efna hjá Lars verðum við bara að halda okkur við mars-apríl byrjun- ina sem var áætluð,“ sagði fram- leiðandi myndanna, Vibeke Windeloev. „Ameríkanar eru ef- laust vanir frestunum á heilu myndunum bara út af stjörnum, en við gátum bara ekki gert það í þessu tilviki.“ ■ SJÓNVARP Spaugarinn og spjallþátta- stjórnandinn Jay Leno hefur gefið út myndskreytta barnabók sem ber heitið „Ef roast beef gæti flogið“. Hugmyndin að bókinni er fengin úr æsku Leno þegar hann var að leika sér með roast beef í grillveislu á heimili sínu. Þetta er ekki fyrsta bók Leno því árið 1998 gaf hann út ævisögu sína, „Leading with My Chin“, sem náði metsölu í Bandaríkjunum. Hann hefur einnig gefið út bækur þar sem safnað er saman fyrirsögnunum og lögreglusögunum sem hann greinir iðulega frá í þáttum sínum. ■ JAY LENO Leno er að stjórna kvöldþætti sínum 12. árið í röð. Samkvæmt nýundirrituðum samningi til ársins 2005 nema laun hans nú um 1,3 milljörðum króna á ári. Jay Leno: Skrifar barnabók NICOLE KIDMAN Þótti standa sig með afburðum í Dogville, en leikur ekki í framhaldinu. JET LAG kl. 6 FAST & FURIOUS 2 kl. 10.10 bi.12 GULL PLÁNET ísl.tal-kl. 4 Tilb. 3oo.kr SKÓGARLÍF 2 ísl.tal. kl. 4 Tilb. 3oo.kr HOW TO LOSE A GUY... kl. 8 kl. 5.50 - 8 - 10.10 b.i.16 Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8, 10.10 Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30 b.i. 14 ANGER MANAGEM. 3, 5.30, 8 og 10.30CHARLIE´S ANG.. 3, 5.40, 8 og 10.20 Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 SÍMI 553 2075 Kl. 4, 6:30, 9 og 11:35 CHARLIE´S ANGELS2 kl. 4, 6 8, og 10 THE IN-LAWS-FRUMSÝNING Kl. 4, 6, 8 og 10

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.