Fréttablaðið - 26.07.2003, Qupperneq 10
Eiffel-turninn í París var opn-aður að nýju á dögunum eftir
að lítilsháttar eldsvoði kom þar
upp.
Turninn, sem er 324 metra hár,
hefur lengi verið einn vinsælasti
ferðamannastaður í heimi. Hann
var byggður árið 1889 í tilefni af
heimssýningunni í París, en þá
voru liðin hundrað ár frá frönsku
byltingunni.
Það var verktakinn Gustave
Eiffel sem byggði turninn, sem
eitt sinn var sá hæsti í heimi.
Turninn var settur saman úr
18.000 hlutum og tók verkið tvö
ár, tvo mánuði og fimm daga, sem
verður að teljast vel af sér vikið.
Um sex milljónir gesta skoða
Eiffel-turninn á hverju ári og frá
því hann var byggður hafa rúm-
lega 200 milljónir gesta látið sjá
sig.
Útsýnið úr turninum er rómað
enda sést vel yfir alla París. Á
efstu hæð turnsins er eftirlíking
af skrifstofu Gustave Eiffel. Þar
má sjá vaxmyndir af Gustave,
dóttur hans Claire og vini þeirra,
bandaríska uppfinningamann-
inum Thomas Edison. Þar er m.a.
að finna grammófón sem Edison
gaf Gustave.
Eiffel-turninn er opinn alla
daga ársins. 10.000 ljósaperur eru
notaðar til að lýsa hann upp og til
þess þarf um 80 kílómetra af raf-
magnssnúrum. ■
Að tala fyrir stofnun hers hér álandi án þess að geta útskýrt
hvaða hlutverki hann á að gegna
og án þess að leggja fram hættu-
mat eða skilgreina varnarhags-
muni landsins slær flesta líklega
svipað og hugmynd um að allir Ís-
lendingar ættu að
ganga með sundkút
eða björgunarhring
frá morgni til
kvölds. Það bera
allir virðingu fyrir
björgunarhringj-
um og átta sig á því
að þeir geta ráðið
úrslitum um líf eða
dauða á örlagastundu. Þess utan er
í besta falli fyndið að ímynda sér
að vera girtur slíku flotholti. Hug-
myndin um her er svolítið svipuð. Í
því sambandi er þó vert að taka
fram að magninnkaup á sundkút-
um væri hræódýr aðgerð í saman-
burði við stofnun hers.
Væri komið á fót 21.000 manna
varaliði sem haldið væri í þjálfun
af fámennari fastaher eins og hug-
myndir eru um þyrfti aðeins að slá
á kostnaðinn við skófatnað vara-
manna til að byrja að fá mynd af
því sem við væri að etja. Ef góð
kjör fengjust á voldugum leður-
stígvélum lætur sjálfsagt nærri að
eitt par á mann myndi kosta um
210 milljónir króna miðað við
10.000 krónur á par. Kannski
mætti fá betri afslátt. En þá eru
líka eftir sokkar, buxur, treyjur, ut-
anyfirgallar, hjálmar og belti. Að
ekki sé minnst á mannvirki og far-
artæki.
Og svo eru blessuð vopnin. Í út-
tekt Fréttablaðsins á dögunum
kom fram að hríðskotabyssa eins
og þær sem herinn í Luxemburg
hefur yfir að ráða kostar eina
milljón stykkið. Við skulum vona
að varaliðsmönnum sé ekki ætlað
að hafa eina slíka tiltæka á heimil-
um sínum, vegna kostnaðar ef ekki
annars. Það er miklu ódýrara að
skammbyssuvæða liðið sam-
kvæmt sömu úttekt, 1.260 milljón-
ir króna.Við skulum spara okkur
að ræða kostnað við orrustuþotur,
herþyrlur eða stýriflaugar í landi
þar sem það tók sjómenn áralanga
baráttu og ótal mótmælastöður að
knýja fram kaup á nýrri björgun-
arþyrlu.
Helsti kosturinn við hugmynd-
irnar um her eru þau óumflýjan-
legu raunveruleikatengsl sem af
þeim leiða. Það verður býsna skilj-
anlegt að Bandaríkjamenn vilji
flytja dýran vígbúnað frá friðsam-
legum stöðum til heimshorna þar
sem hans er þörf. Ekki ósvipað því
að björgunarhringir og sundkútar
sjást helst við sundlaugar eða sjó.
Um leið verður það áleitið um-
hugsunarefni að forsætisráðherra
haldi heilan blaðamannafund um
viðræður um varnarmál án þess að
víkja orði að hættumati íslenskra
stjórnvalda. Og án þess að nokkur
spyrji.
Ábyrgð Íslands og
sýnilegri löggæsla
Það má leiða ýmis sanngjörn rök
að því að Ísland eigi að axla meiri
ábyrgð í samfélagi þjóðanna. Varn-
arsamstarfið við Bandaríkin er þar
ekki undanskilið. Áður en sannfær-
andi hættumat er lagt fram eru þó
mörg verkefni brýnni en að setja á
laggirnar innlendan her. Framlög til
þróunarsamvinnu eru í hrópandi
ósamræmi við aðrar höfðatölu-
stærðir sem að Íslendingum snúa.
Meðal þeirra ríkustu skipum við
okkur í flokk þeirra sem láta minnst
af hendi rakna. Sömu sögu má segja
um friðargæslu og alþjóðlegt björg-
unarstarf.
Það er jafnframt engu líkara en
að hugmyndir um her taki mið af
öðrum fjárlögum en þeim sem
taka til löggæslu, öryggis- og
björgunarmála. Misserum saman
hefur verið daufheyrst við ábend-
ingum um aukna og sýnilegri lög-
gæslu. Hverfalöggæsla hefur ekki
verið efld frá því sem hún var fyr-
ir áratug þrátt fyrir að sýnt hafi
verið fram á fækkun afbrota í
kjölfar stofnunar slíkra stöðva. Á
síðustu þremur árum hefur lög-
reglumönnum á næturvöktum í
Reykjavík fækkað um 15% og úr
13 í 9 í miðborginni um helgar frá
því þegar mest var. Þriðjungi
færri almennir lögreglumenn
voru við lögregluna í Reykjavík
árið 2002 en árið 1976. Þarf að
segja meira? Þó við spörum okkur
ekki annað en hermannabomsurn-
ar er það yfrið nóg til að stórauka
sýnilega löggæslu. ■
10 26. júlí 2003 LAUGARDAGUR
Útgáfufélag: Frétt ehf.
Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson
Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson
Ritstjórnarfulltrúar: Reynir Traustason
og Steinunn Stefánsdóttir
Auglýsingastjóri: Þórmundur Bergsson
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing:
Suðurgötu 10, 101 Reykjavík
Aðalsími: 515 75 00
Símbréf á fréttadeild: 515 75 06
Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is
Rafpóstur auglýsingadeildar:
auglysingar@frettabladid.is
Setning og umbrot: Frétt ehf.
Prentvinnsla: Ísafoldarprentsmiðja ehf.
Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuð-
borgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er
hægt að fá blaðið í völdum verslunum á lands-
byggðinni. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu
sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni
blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds.
ISSN 1670-3871
Vitaskuld má til sanns vegarfæra hjá Davíð Oddssyni að
hún er töluvert „fyndin“, sú staða
sem Þórólfur Árnason borgar-
stjóri er nú lentur í vegna upp-
ljóstrana um ólöglegt samráð
olíufélaganna. Hann var á sínum
tíma markaðsstjóri eins félag-
anna og virðist – ef marka má þá
búta úr skýrslu
Samkeppnisstofn-
unar sem búið er
að birta – hafa ver-
ið í hópi „samráðs-
manna“. Ekki veit
ég hvort hann átti
persónulega hlut
að máli, hvað þá
frumkvæði að ein-
hverjum þeim
ákvörðunum sem
ólöglegar mundu
dæmast. Hitt er
vissulega „fyndið“
að sú Reykjavíkurborg sem hann
stýrir skuli nú samþykkja álykt-
un um að ef í ljós komi að olíufé-
lögin hafi hlunnfarið borgina
áskilji hún sér allan rétt í málinu
– sem þýðir að boðuð er lögsókn
gegn olíufélögunum.
Þórólfur Árnason er fyndinn
Ef sú lögsókn yrði rekin undir
forystu Þórólfs borgarstjóra og
beindist meðal annars gegn hátt-
semi Þórólfs markaðsstjóra, þá
væri málið hætt að vera „fyndið“
og orðið beinlínis neyðarlegt. Því
er ástæða til að hvetja Þórólf til
að láta nú sem fyrst af nó-
kommentum sínum og gera
hreint fyrir sínum dyrum. Sjálf-
stæðismenn vonast auðvitað til
þess að málið verði til þess að
Þórólfur hrökklist úr starfi í
borginni og vandræði R-listans
aukist við það. Og það væri vissu-
lega „fyndið“ ef fyrsta og (látið
ykkur ekki koma það á óvart)
kannski eina fórnarlamb olíu-
svindlsins yrði borgarstjóri
Reykjavíkurlistans. Hvort ein-
hverjar horfur eru á að svo þurfi
að fara veit ég ekki. Hitt er nú
komið á daginn að þegar fyrst
var ámálgað við Þórólf að hann
yrði borgarstjóri nefndi hann við
Ingibjörgu Sólrúnu að hann
kynni að lenda milli tannanna á
fólki vegna yfirvofandi skýrslu
um samráð olíufélaganna og hún
taldi það ekki koma í veg fyrir að
hann gegndi starfinu. Því er alls-
endis óvíst að Þórólfur þurfi að
verða fyrir áföllum vegna máls-
ins. En þögnin er orðið vand-
ræðaleg – einkum í ljósi þess ef
„mál“ Þórólfs á að verða til að
skyggja á hina raunverulegu
sökudólga í málinu; olíufélögin
sjálf og æðstu stjórnendur
þeirra.
Davíð Oddsson er fyndinn
Það kann að virðast ósann-
gjarnt að Þórólfur Árnason sé nú
á góðri leið með að verða einn
helsti sökudólgurinn en þeim
mun mikilvægara er fyrir hann
og R-listann að afgreiða málið
fljótt, vel og hreinlega – án tillits
til skammtímahagsmuna, per-
sónulega eða pólitískt. Ef þetta
olíuhneyksli á að verða til ein-
hvers góðs á endanum og auka á
einhvern hátt siðferði í viðskipta-
lífi er mikilvægt að taka strax til
hendinni og sýna að með nýjum
herrum komi nýir siðir. Því
gömlu herrarnir streitast enn
við. Það er nefnilega fleira „fynd-
ið“ í málinu en þáttur Þórólfs og
Reykjavíkurborgar. Það er til
dæmis í sjálfu sér mjög „fyndið“
að heyra forsætisráðherra lýsa
hneykslun sinni á framferði olíu-
félaganna. Davíð hefur að sönnu
aldrei unnið hjá olíufélagi eins og
Þórólfur en muniði ekki eftir
gamla frasanum: „Segðu mér
hverjir eru vinir þínir og ég skal
segja þér hver þú ert“? En reynd-
ar fer nú líklega mjög fækkandi
„vinum“ æðstu stjórnenda olíufé-
laganna, miðað við alla þá mekt-
armenn og forkólfa í viðskiptalíf-
inu og ýmiss konar pólitík sem
skyndilega eru alveg uppfullir af
undrun og hneykslun yfir hátt-
erni þeirra.Það er allt mjög
„fyndið“. Þegar Eimskip og út-
gerðarfélögin og Flugleiðir fara í
mál við olíufélögin fyrir að hafa
hlunnfarið sig og meira og minna
sömu kallarnir í öllum stjórnun-
um, þá mun ég eflaust beinlínis
engjast sundur og saman af
hlátri, svo „fyndið“ verður það.
Pétur Blöndal er fyndinn
Það er líka „fyndið“ að heyra
Pétur Blöndal allt í einu leggjast
sérstaklega gegn verulegum um-
ræðum um viðskiptasiðferði – en
hafa þeim mun meiri áhyggjur af
því að skýrsla Samkeppnisstofn-
unar skuli hafa lekið út. Það sé
hið alvarlegasta í málinu. Og að
hjálpa Samkeppnisstofnun að
ljúka málinu áður en það fyrnist?
Nei! Það tekur Pétur Blöndal
ekki í mál. Hann hefur greinilega
breyst. Hann hefði brugðist öðru-
vísi við fyrir aðeins fáeinum
misserum. Eiginlega það eina í
málinu sem ekki er alveg grenj-
andi „fyndið“, það eru viðbrögð
ríkislögreglustjóra. Nei. Hann
ætlar sko aldeilis ekki að láta
rannsaka málið – sama hvað
stendur í frumskýrslu Sam-
keppnisstofnunar. Ekki kannski
fyrr en það fyrnist. Enda hefur
Haraldur öðru að sinna. Og vafa-
laust mikilvægara en kannski
hundraða milljóna króna „þjófn-
aður“ frá almenningi og fyrir-
tækjum í formi hærra bensín- og
olíuverðs en ella hefði verið. ■
Útvarp
Kántrýbæ til
Reykjavíkur
Hallbjörn Hjartarson kántrýkóngur skrifar:
Kæru höfuðborgarbúar. Útsend-ingar Útvarps Kántrýbæjar
náðust á höfuðborgarsvæðinu um
tíma og naut stöðin töluverðra vin-
sælda. Á þeim tíma stóðu aðstand-
endur SkjásEins alfarið að kostun
útsendinganna. Eftir að útsending-
ar hættu hafa margir haft sam-
band við okkur á útvarpsstöðinni
og spurst fyrir um hvort ekki sé
hægt að senda út á höfuðborgar-
svæðinu á ný. Við höfum kannað
þann möguleika og fengið jákvæð
svör hvað kostun varðar.
Útvarp Kántrýbær er einkarek-
in útvarpsstöð sem öllum hefur
verið frjálst að hlusta á. Til þess að
framkvæma þá hugmynd að út-
varpa á höfuðborgarsvæðinu þarf
að fjármagna sendibúnað og
greiðslur stefgjalda mánaðarlega.
Af því leita ég til ykkar með þá
hugmynd að stofna félag um þenn-
an rekstur. Ef áhugi er fyrir hendi
myndi þetta félag sjá um rekstur
sendibúnaðarins auk þess að ná
inn fé með sölu auglýsinga. Þá
myndi hver félagsmaður greiða
500 krónur á mánuði í styrktar-
gjald. Höfuðstöðvar útvarpsins
yrðu sem fyrr á Skagaströnd og út-
sendingar yrðu sendar suður sím-
leiðis í móttökustöð.
Útvarp Kántrýbær hefur starf-
að í 11 ár. Þetta eru lengri lífdagar
en margar aðrar stöðvar sem
mætti ætla að hefðu sterka bak-
hjarla. Okkar takmark hefur fyrst
og fremst verið að veita sem flest-
um kærleik og yl. Starfsemin hef-
ur ekki snúist um fjármagn okkur
til handa og verður engin breyting
þar á, nái hugmyndin fram að
ganga.
Styrktarreikningur hefur verið
opnaður og númer hans er 0307-26-
967. Nú liggur á að vita hvort hug-
ur fylgir máli svo útsendingar geti
hafist. Allar nánari upplýsingar
gefur Guðmundur Ólafsson í síma
452 2769 og 861 3033. ■
ILLUGI
JÖKULSSON
■
skrifar um ólöglegt
samráð olíufélag-
anna og þögn
Þórólfs Árnasonar
borgarstjóra.
■ Bréf til blaðsins Hermannabomsur
eða lögregluvakt
Sex milljónir gesta á ári
Baksviðs
■ Af Netinu
Forræðishyggja ríkisvaldsins
Það er gersamlega úr takt við tímann
að skattyfirvöld á Íslandi stjórni því
með skattlagningu hvað landsmenn
borða. Hvers vegna á að skattleggja
pilsner eða kolsýrt vatn sérstaklega
umfram kaffi og mjólk? Af hverju er
vörugjald og hærri virðisaukaskattur
á súkkulaði en ekkert vörugjald og
lægri virðisaukaskattur á feitu kjöti?
Er ekki mál að slíkri forræðishyggju
linni á nýrri öld?
SVEINN HANNESSON AF VEFNUM SI.IS
Ísland í ESB – herinn burt
Í umræðunni er að við Íslendingar
ættum að halla okkur að Evrópu varð-
andi varnir. Sé ekki alveg hvaða hern-
aðaraðstoð við fengjum þaðan. Það er
enn nokkuð langt í ESB-herinn.
INGÓLFUR MARGEIRSSON AF VEFNUM KREML.IS
■
En þögnin er
orðið vand-
ræðaleg – eink-
um í ljósi þess
ef „mál“ Þór-
ólfs á að verða
til að skyggja á
hina raunveru-
legu sökudólga
í málinu; olíu-
félögin sjálf og
æðstu stjórn-
endur þeirra.
■
Þó við spörum
okkur ekki ann-
að en her-
mannaboms-
urnar er það
yfrið nóg til að
stórauka sýni-
lega löggæslu.
Skoðun dagsins
DAGUR B. EGGERTSSON
skrifar um íslenskan her.
Um daginnog veginn
Grín og glens
í olíumálinu