Fréttablaðið - 26.07.2003, Page 31
Fréttiraf fólki
31LAUGARDAGUR 26. júlí 2003
Ómar Gunnarsson á Húsavíkhefur bruggað lengi. Og það
með eiginkonu sinni. Nú er svo
komið að vín þeirra hjóna er kom-
ið í sölu hjá ÁTVR og kostar 1.790
krónur flaskan. Ómar og eigin-
kona hans kalla mjöðinn Kvöldsól:
„Við vorum að prófa okkur
áfram með bruggið og duttum nið-
ur á þessa samsetningu. Vínið
okkar er bruggað úr krækiberjum
og rabarbara og kryddað með ís-
lenskum kryddjurtum. Vínið nýt-
ur sætunnar úr berjunum og
sýrunnar úr rabarbaranum.
Kryddjurtirnar gera svo útslag-
ið,“ segir Ómar, sem annars er yf-
irkokkur á Fosshótelinu á Húsa-
vík og langreyndur í meðferð
matvæla og drykkja. „Vínið væri
hægt að votta sem lífræna afurð
því krækiberin eru ekki úðuð né
mykja sett á rabarbarann, svo
ekki sé minnst á kryddjurtirnar,
sem vaxa villtar,“ segir hann.
Það tók Ómar og eiginkonu
hans fimm vikur að koma víninu í
hillur ÁTVR og með fylgdi mikil
skriffinnska. En allt hófst það að
lokum.
Ómar bruggar í tíu þúsund
lítra tanki í gömlu mjólkurstöð-
inni á Húsavík en sultuframleið-
andi er honum innan handar við
blöndunina Flest annað gera
Ómar og kona hans í höndunum.
Kvöldsólin er 12 prósent að styrk-
leika og Ómar segir að fólk verði
ekki fullt af henni, bara milt:
„Einn viðskiptavina minna kallaði
vínið sturtuvín því alltaf þegar
konan hans smakkar það vill hún
fara í sturtu og fá karlinn með sér.
Það þykja mér meðmæli með
þessi góða víni,“ segir Ómar yfir-
kokkur og vínframleiðandi á
Húsavík. ■
SKÁLAÐ Í
KVÖLDSÓL
Ómar (t.v.)
skálar við fé-
laga sinn á
Húsavík.
Bruggarinn
á Húsavík
Vín
■ ÁTVR hefur hafið sölu á ávaxtavíni frá
Húsavík. Það heitir Kvöldsól og er brugg-
að af yfirkokkinum á Fosshótelinu
á staðnum. Eiginkonan bruggar
með honum.
Yfirþjónn og kokkur ítalskaveitingahússins Galileo á
Hafnarstrætishorninu hafa yfir-
tekið rekstur staðarins af fyrri
eigendum, sem hafa í næg horn
að líta. Reka þeir fyrir Kaffi
Viktor í sama húsi auk Sólons í
Bankastræti og Thorvaldsens-
bars í Austurstæti, sem þeir tóku
yfir þegar landsfrægir sjón-
varpsmenn þurftu að láta hann af
hendi í tengslum við mál aðal-
gjaldkera
Símans.
Þykja veit-
ingamenn-
irnir
galdra-
menn í rek-
stri slíkra
staða, sem
blómstra í
höndum
þeirra.
Ég er mjög pólitískur í eðlimínu og get vel ímyndað mér
að ég eigi eftir að halla mér meira
að málum á þeim vettvangi í
framtíðinni,“ segir Sigursteinn
Másson, formaður Geðhjálpar.
Hann segir starf formanns geta
verið erilsamt á köflum og það
komi toppar í það, en starfsfólk
Geðhjálpar vinni mikið og gott
starf.
Sigursteinn vinnur við eigið
fyrirtæki í almannatengslum
dags daglega og hefur nóg að gera
við þá vinnu. Fyrir nokkru lauk
hann við að vinna þætti um saka-
mál sem sýndir voru í sjónvarpi.
Þar var rifjuð upp atburðarás í
mörgum stærstu sakamálum síð-
ustu áratuga. „Ég var nýlega úti á
landi og það kom á óvart að fólk
spurði mikið um framhald á þátt-
unum. Það er ómögulegt að vita
hvað ég geri í því í framtíðinni en
mér sýnist að það sé ekki vanþörf
á því. Þau sakamál sem virðast
vera í uppsiglingu í viðskiptalíf-
inu gæti verið gaman að skoða
þegar þar að kemur,“ segir Sigur-
steinn.
Í frítíma sínum hefur Sigur-
steinn gaman af að hreyfa sig og
ná í þá næringu og frelsi sem
hann þarfnast. Hann bendir á að
það besta við borgina og nágrenni
séu öll þau góðu útivistarsvæði
sem þar sé að finna en Sigursteinn
býr í Kópavogi. „Mér líkar ágæt-
lega að búa þar en finnst þó bær-
inn vera að færast nær og nær því
að vera eins og amerískur svefn-
bær. Það hefur gleymst að hugsa
fyrir góðum miðbæ eins og er í
Hafnarfirði. Þar er höfn og mið-
bær sem ég gæti vel hugsað mér
að búa nærri. Aldrei að vita nema
maður færi sig um set.“
Sigursteinn er í sambúð og seg-
ist eiga fáa en góða vini enda sé
maðurinn þannig gerður að þurfa
samneyti við fólk. ■
SIGURSTEINN MÁSSON
Hann var mikið spurður um framhald á ís-
lenskum sakamálaþáttum á ferðalagi sínu
um landsbyggðina fyrir skemmstu.
Langar að skipta sér meira af pólitík
Persónan
SIGURSTEINN MÁSSON
■ formaður Geðhjálpar rúllar sér í frítíma
sínum á línuskautum um opin svæði í
Reykjavík. Kannski að hann fari að láta
að sér kveða í pólitíkinni.
KÓNGULÓ
Kónguló, vísaðu mér á berjamó. Þetta er
gósentíð fyrir kóngulær og um að gera að
láta þær í friði. Það er ljótt að drepa.