Fréttablaðið - 29.07.2003, Qupperneq 8
8 29. júlí 2003 ÞRIÐJUDAGUR
Lausnin á vandanum
„Leiðin til úrbóta fyrir okkur al-
menning er að koma hér á val-
kosti við einkabílinn; lestasam-
göngum svo að maður þurfi ekki
að reka bíl...“
Guðmundur Andri Thorsson í Fréttablaðinu 28. júlí.
Hversu mikið er það?
„Ef vandi Tony Blair eykst ekki
meira en orðið er vegna stríðsins
í Írak og eftirmála þess og fram-
vindu þá mun hann líklega lifa
kreppuna af og leiða flokkinn í
næstu kosningum.“
Björgvin G. Sigurðsson í Morgunblaðinu 28. júlí.
Heyr, heyr
„Það á ekki einungis að vera
skylda ríkis og sveitarfélaga
heldur miklu fremur keppikefli
að ná sem mestum árangri í inn-
kaupum og spara skattgreiðend-
um um leið mikla fjármuni.“
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson í DV 28. júlí.
Orðrétt
Stærsta fíkniefnamál Ástralíu:
Áratugafangelsi
fyrir kókaínsmygl
BRISBANE, AP Ástrali, búsettur í
Bandaríkjunum, var í vikunni
dæmdur í 22 ára fangelsi fyrir
stórfellt fíkniefnasmygl. Kevin
Phillip Nudd, 52 ára, sem talinn er
tengjast suður-amerískum smygl-
hring, var sakfelldur fyrir inn-
flutning á 89 kílóum af kókaíni til
Ástralíu fyrir rúmum tveimur
árum. Þetta er eitt stærsta fíkni-
efnamál sem komið hefur upp í
Ástralíu. Nudd var handtekinn í
Bandaríkjunum eftir að lögregla
hafði fylgst með honum um tíma.
Lögregla hafði fengið ábendingar
um að reynt yrði að smygla til
landsins fíkniefnum að andvirði
1.200 milljónum íslenskra króna.
Bandaríkjamenn framseldu Nudd
til Ástralíu í febrúar síðastliðnum.
Félagi Nudds, Peter Fancher
Jackson, skipstjóri og sá sem flutti
kókaínið á báti sínum til Ástralíu,
var í fyrra dæmdur í 25 ára fang-
elsi vegna málsins. Dómarnir yfir
þeim félögum eru þyngstu dómar
sem kveðnir hafa verið upp vegna
fíkniefnasmygls í Ástralíu. ■
Fjallgöngumaður
í Bandaríkjunum:
Lést af völd-
um eldingar
WYOMING, AP Ung kona lést þegar
eldingu laust niður í hana í Wyom-
ing í Bandaríkjunum um helgina.
Fimm samferðamenn konunnar
slösuðust lítillega. Konan sem lést,
Erica Summers, var ásamt fleirum
að klífa fjallið Grand Teton í sam-
nefndum þjóðgarði þegar elding-
unni laust niður. Þrátt fyrir rigning-
ar og illt veðurútlit hélt fólkið af
stað í fjallgönguna. Fólkið segir að
tveimur eldingum hafi lostið niður,
önnur þeirra varð Summers að
bana. Þrennt hefur látist af völdum
eldinga í Grand Teton þjóðgarðin-
um það sem af er ári. ■
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
H
U
S
21
83
0
0
7/
20
03
byrjar í Húsasmiðjunni
1.990 kr.
1.690kr.
9.980 kr.
7.990kr.
Regnsett
blá, gul, græn og camo
5868465-5868471
Gönguskór 389
leður, með gritex öndun
5860542-5860552
stærðir 37-47
Flíspeysur
kvenpeysur með hettu (nýtt)
5860180-5860189
Flísteppi
150x200 sm
5860387-5860392
grænt, beige og blátt
3.995 kr.
Verð
2.990 kr.
Verð
Gasvörur í miklu úrvali
20% afsláttur
RJÚPA Nóatún íhugar nú aukinn
innflutning á rjúpum í kjölfar
ákvörðunar umhverfisráðherra
um alfriðun rjúpunnar næstu
þrjú árin. Nóatún flutti inn rjúp-
ur frá Skotlandi á síðasta ári og
einnig kemur til greina að flytja
inn rjúpur frá Svíþjóð og Græn-
landi, að sögn Sólmunds Odds-
sonar, innkaupastjóra Nóatúns.
Nóatún selur árlega 60-80 þúsund
rjúpur.
„Ég vona að neytandinn geti
fengið sína villibráð á jólaborð-
ið,“ segir Sólmundur og bætir við
að skoska rjúpan bragðist ágæt-
lega, en hún er nokkuð stærri en
sú íslenska. ■
Friðun rjúpunnar:
Aukinn innflutningur
SKIP Björgunarskipið Stakkanes,
sem vinnur að björgun skipsins
Guðrúnar Gísladóttur af hafs-
botni, er væntanlegt úr viðgerð á
allra næstu dögum. Þá hófu kafar-
ar störf á sunnudagsmorgun og
vinna hörðum höndum við undir-
búning björgunaraðgerða.
„Við erum að klára und-
irbúning fyrri áfangans,“ segir
Haukur Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Íshúss Njarðvíkur,
sem keypti skipið. Fyrri áfanginn
felst í því að blása skipið upp og
snúa því upp á kjölinn, en það
liggur nú á hliðinni. Enn er þó
beðið eftir einum tanki, sem að
sögn Hauks er væntanlegur í dag,
til þess að hægt sé að hefja verk-
ið. ■
Guðrún Gísladóttir:
Kafarar við störf á ný
GUÐRÚN GÍSLADÓTTIR
Guðrún Gísladóttir sökk úti fyrir ströndum
Lófóten í Noregi í júní á síðasta ári. Enn
er unnið að því að bjarga skipinu af hafs-
botni.
TÓNLISTARSKÓLAR Tónlistarnemar á
framhalds- og háskólastigi, sem
stundað hafa nám við tónlistar-
skóla í Reykjavík en eiga lögheim-
ili annars staðar á landinu, fá ekki
að halda áfram námi í Reykjavík
nema sveitarfélag viðkomandi
ábyrgist greiðslu kostnaðar sem
af náminu hlýst. Forsvarsmenn
sveitarfélaganna neita hins vegar
að borga kostnaðinn á þeim fors-
endum ekki sé í verkahring sveit-
arfélaga að niðurgreiða nám á
framhalds- og háskólastigi.
„Það er verið að mismuna nem-
endum eftir búsetu og þar með
brotið á jafnrétti til náms,“ segir
Jóna Fanney Svavarsdóttir, söng-
nemi í Nýja tónlistarskólanum.
Jóna Fanney bætir því við að fyr-
irspurnir til þeirra aðila sem að
málinu standa hafi lítinn árangur
borið. „Svörin sem við fáum eru
lítil sem engin. Málið er í nefnd er
mjög algengt svar,“ segir Jóna
Fanney.
Að sögn Jónu Fanneyjar eru
tónlistarnemendur að falla á tíma.
„Nú þurfum við að fara að geta
skipulagt okkar skólaár, hvort
sem við ætlum að leita okkur að
vinnu eða sækja um skólavist er-
lendis,“ segir hún. „Auk þess
rennur frestur til að sækja um
námslán út 15. ágúst og þá þurfa
nemendur að vera komir með vísa
skólavist.“ ■
TÓNLISTARNEMENDUR
Framhaldsnemendur í tónlist sem búsettir eru utan Reykjavíkur eiga ekki vísa skólavist í
tónlistarskólum Reykjavíkur í vetur.
Tónlistarnemendum mismunað eftir búsetu:
Brotið á jafn-
rétti til náms
BAK VIÐ LÁS OG SLÁ
Búið er að kveða upp dóma í einu
stærsta fíkniefnamáli sem komið hefur
upp í Ástralíu. Tveir menn fengu 22 ára
og 25 ára fangelsi fyrir innflutning á 89
kílóum af kókaíni.
NÓATÚN
Hyggur á aukinn innflutning á rjúpum í
kjölfar ákvörðunar um friðun rjúpunnar.
KARLAR
L U J T Mörk Stig
Fylkir 11 6 2 3 16:9 20
KR 11 6 2 3 15:13 20
Grindavík 11 6 1 4 17:17 19
Þróttur 11 6 0 5 19:16 18
FH 12 5 3 4 20:19 18
ÍBV 11 5 1 5 18:16 16
KA 11 4 2 5 18:17 14
ÍA 11 3 5 3 14:13 14
Valur 12 4 0 8 16:22 12
Fram 11 2 2 7 14:25 8
Valur 2:3 FH