Fréttablaðið - 29.07.2003, Blaðsíða 22
Fréttiraf fólki
29. júlí 2003 ÞRIÐJUDAGUR22
TÓNLIST „Þessi hljóðfærasamsetn-
ing býður upp á mjög mikið af
skemmtilegum hljóðum og tónum.
Þegar svo rafmagnið og tölvurnar
bætast við þá er hægt að búa til
mjög spennandi tónlist,“ segir Áki
Ásgeirsson trompetleikari.
Hann ætlar að flytja splunku-
nýja brasstónlist og raftónlist eftir
íslensk tónskáld á Gauknum í
kvöld ásamt félögum sínum tveim-
ur, þeim Helga Hrafni Jónssyni á
básúnu og Stefáni Jóni Bernharðs-
syni á horn.
Tónlistin er stundum í ætt við
nútímatónlist, stundum meira í ætt
við elektróník eða ambient tónlist.
Verkin eru meðal annars eftir Kol-
bein Einarsson, Hilmar Þórðarson,
Davíð Franzson og Áka Ásgeirsson.
„Öll þessi verk eru samin á síð-
ustu vikum og dögum fyrir utan
verk eftir Inga Garðar, sem er
skrifað fyrir tveimur árum, hann
er ennþá að læra í listaháskólan-
um. Brasshljóðfærin eru tiltölu-
lega óklassísk hljóðfæri. Beet-
hoven og Mozart skrifuðu aldrei
fyrir svona hljóðfærasamsetn-
ingu.“
Fyrir utan brasstríóið kemur
fram á þessum tónleikum heimilis-
tækjahljómsveitin Mulinex. Þar
eru á ferðinni þeir Áki og Ólafur
Björn Ólafsson, sem hafa verið að
gera tilraunir með að spila á hár-
blásara, rakvélar og fótanuddtæki,
svo nokkuð sé nefnt af heimilis-
tækjunum sem þeir búa til tónlist
úr.
„Við fundum leið fyrir nokkrum
mánuðum til þess að láta tölvu
stjórna heimilistækjum. Þetta
verður því í rauninni hálfgerð
tölvutónlist, þótt engir hátalarar
komi við sögu. Að þessu sinni verð-
um við kannski með rafmagnsgít-
ara líka og fleiri hljóðfæri, sem við
látum tölvuna kveikja á með sömu
aðferð.“
gudsteinn@frettabladid.is
Heimilistækjahljómsveitin Mulinex mun koma fram ásamt brassbandi
nokkru, skipuðu þeim Áka, Helga og Stefáni, á Gauknum í kvöld.
Virkilega svöl stemmning á ferðinni þar.
Áhættusamt og viðburðaríkt starfalþjóðlegs njósnara (Michael
Douglas) hefur því miður komið nið-
ur á einkalífi hans. Fyrrum eigin-
kona hans (Candice Bergen) hatar
hann eins og pestina, og einkasonur
hans er orðinn langþreyttur á því
hvað gamli maðurinn er oft fjarver-
andi, og sú útskýring að hann sé svo
upptekinn við að selja ljósritunar-
vélar er orðin dáldið slitin. Nú ætlar
ungi maðurinn að ganga í heilagt
hjónaband með rólegri stúlku af
góðum borgaralegum ættum. Pabbi
hennar (Albert Brooks) er fótasér-
fræðingur, mikill nákvæmnismaður
og snyrtipinni, sem nýtur mikils
álits í sinni grein. Og auðvitað fer
allt úr böndunum þegar fótasér-
fræðingurinn og alþjóðanjósnarinn
hittast.
Njósnarinn dregur fótafræðing-
inn óvart með sér nauðugan inn í
hringiðu alþjóðlegrar glæpastarf-
semi þar sem fótsveppir eru ekki
lengur helsta ógn sem blasir við
mannkyninu. Engum er greiði gerð-
ur með því að lýsa þeirri undarlegu
atburðarás sem leyst er úr læðingi -
sem þó er ekki hótinu heimskulegri
heldur en söguþráðurinn í Bond-
myndum eða myndum um Tortím-
andann.
Það sem prýðir þessa mynd er að
þarna er enginn að taka sig hátíðlega
og góðir leikarar skila hlutverkum
sínum af frábærri fagmennsku svo
að maður hrífst með. Vel lukkað grín.
Þráinn Bertelsson
UmfjöllunKvikmyndir
THE IN-LAWS (Tengdafjólskyldan)
Aðalhlutverk: Michael Douglas, Albert Brooks,
Candice Bergen, David Suchet
Handrit: Andrew Bergman, Nat Mauldin
Leikstjórn: Andrew Flemming
Fótasveppir
og hryðju-
verkamenn
Útsölustaðir:
Lyf & Heilsa: (Kringlan - Mjódd - Austurver - Melhagi).
Hringbrautarapótek - Árbæjarapótek - Kaupfélag Skagfirðinga
- Ólafsvíkurapótek - Vestmannaeyjaapótek.
smart®
strípulitir
• fyrir skapandi fólk!
• aflitun
• m/hettu
• ál-strípur
• tvílitar ál-strípur
• f/undirhár og toppa
Auðveldir í notkun.
Allt í einum pakka.
sniðin að þörfum
húðarinnar
með mildum ilmi
Krem
sápa
ph 3,5
e
in
n
t
v
e
ir
o
g
þ
r
ír
2
8
5.
0
18
NBC sjónvarpsstöðin í Banda-ríkjunum gerir sér fulla grein
fyrir hrakandi skerpu og lengd at-
hyglisgáfu nútímafólks, og hefur
tekið málin í sínar hendur. Ekki
með því að reyna að auka tímann
sem fólk fylgist með heldur stytta
tímann sem þarf til að horfa: Einn-
ar mínútu kvikmyndir. Þegar er
búið að taka tíu myndanna sem
verða svo sýndar í auglýsingahlé-
um. NBC segist alltaf hafa stutt
framandi og ögrandi frásagnar-
máta og að þetta form ætti að
víkka til hins ítrasta getu sjón-
varps á marga vegu.
Tim Burton ætlar að ráðast í end-urgerð myndarinnar “Charlie
and the Chocolate
Factory“, eða
„Kalli og sælgæt-
isgerðin“ sem
byggð var á gífur-
lega vinsælli
barnabók. Í fyrstu
var talið að hann
ætlaði sér að fá
annað hvort Christopher Walken
eða Micheal Keaton til að leika
súkkulaðimeistarann og verk-
smiðjueigandann Villa Vonka en
þeir hafa báðir leikið í myndum
Burtons áður. Nú telja þó sumir að
Johnny Depp sé líklegri til að
hreppa hlutverkið eftir sérlega
góða, og léttgeggjaða, frammi-
stöðu sína í „Pirates of the
Caribbean: The Curse of the Black
Pearl“. Depp hefur svo einnig unn-
ið áður með Burton, til að mynda í
„Sleepy Hollow“.
Þó slúðurblaðamenn hafi slegiðþví föstu nýlega að ofur-
stjörnuparið Jennifer Lopez og Ben
Affleck ætli að gifta
sig á Hawaii í októ-
ber virðist ekkert
öruggt í þeim efn-
um. Á frumsýningu
nýrrar myndar
þeirra svaraði
prakkarinn Affleck
hverjum blaða-
manni á aðra
vegu en þeim
síðasta, þegar
þeir þrýstu á
hann að segja
sér hvernig brúð-
kaupsmálum yrði
háttað. Einum
sagði hann það
yrði jú á Hawaii,
þeim næsta að Suð-
ur-Ameríka væri
málið o.s.frv. Allt í
allt heyrðust 7 mis-
munandi staðir á
hnettinum nefndir.
ÞRÍR BLÁSARAR
Á Gauki á Stöng verður
rafmögnuð brasstónlist-
arveisla í kvöld.Rafmagnaður
blástur og Mulinex
Gera á kvikmynd eftir klass-ískri barnabók C.S. Lewis
“Ljónið, nornin
og skápurinn“,
vinsælasta hluta
sjö hluta bókar-
aðar um ævin-
týraríkið Narníu
þar sem fjallað er
um fjóra krakka
sem ráfa inn í
annan heim gegnum fataskáp.
Leikstjórinn Andrew Adamson
stýrir verkefninu, en hann leik-
stýrði „Shrek“ og framhaldi henn-
ar sem kemur í kvikmyndahús á
næstunni. Hann hefur einnig
fengið tölvubrellufyrirtækið sem
stóð að baki brellunum í Hringa-
dróttinssögu-myndunum til liðs
við sig því margar af furðuverum
skógarins verða tölvuteiknaðar.
Það hefur þá vakið upp spurning-
ar um hvernig ljónið Aslan muni
birtast fólki í myndinni en Adam-
son segist hafa lesið bækurnar í
æsku og þá fannst honum veröld-
in mjög raunveruleg og að það sé
lykilatriði. „Aslan verður fyrst og
fremst að vera raunverulegt
ljón.“
kl. 6, 8 og 10 b.i. 12 ára
kl. 6NÓI ALBINÓI-Enskur texti
kl. 8RESPIRO
5.50 og 10HOLLYWOOD ENDING
Ástríkur&Kleópatra-ísl.tal Forsýnd kl. 3
kl. 6.10 og 10.10USSSS b.i. 12
Sýnd kl. 4, 6, 8, 10 og 11.10 b.i. 16 ára
kl. 8 b.i. 14DARK BLUE
kl. 4, 5.40, 8 og 10.20
TÖFRABÚÐINGURINN m/ísl.tali
kl. 5.30, 8 og 10.30
Lúxus kl. 6, 8.30 og 11 b.i. 14
DUMB AND DUMBERER 6
PHONE BOOTH b.i. 14 kl. 8 og 10
kl. 4
2 FAST 2 FURIOUS 2 kl. 8 b.i. 12
THE MATRIX RELOADED kl. 10
KANGAROO JACK kl. 4 - 6
kl. 3.45 - 5.50 - 8 - 10.10 bi.16
Sýnd í lúxus kl. 5.50 - 8 - 10.10 VIP
Sýnd kl. 3.45 - 5.45 - 8.30 - 10
LIZZIE MAGUIRE kl. 6 - 8
WHAT A GIRL. 3.45, 5.50, 8, 10.10