Fréttablaðið - 29.07.2003, Blaðsíða 31

Fréttablaðið - 29.07.2003, Blaðsíða 31
Bókajólin eru að skýrast út hjáútgefendum landsins. Meðal annars sem heyrist er að ævisaga Lindu Pétursdóttir eigi eftir að komast hátt á sölulista en Vigdís Gríms- dóttir er líka að reyna að klára bók sem gæti gert ágætis hluti. Það er þó ekki víst hvort hún nær að klára. Þráinn Ber- telsson er svo með „Sjálfsævi- sögur“ í smíðum sem ætti að ná útgáfu, auk þess sem Guðbergur Bergsson hefur lokið við seinni hluta þýðingar sinnar á bestu bók allra tíma, „Don Kíkóta“, en sú bók var spútnik ársins í fyrra. Enginn bjóst við því að hún seld- ist en bókin endaði á metsölulist- um. Fólk hlýtur að muna eftir síðari hlutanum, svo höfundurinn Miguel de Cervantes er líklegur til afreka þessi jólin. Ný bók er í fæðingu hjá IllugaJökulssyni. Situr hann nú við skriftir og ritar ævisögu leikar- ans góðkunna Gunnars Eyjólfs- sonar. Gunnar hefur sem kunnugt er lif- að viðburðaríku lífi sem teygir sig yfir mörg lönd og ekki færri á sviði andans. Það er JPV-útgáfa sem gefur út ævi- sögu Gunnars, sem er nýbakaður afi. Dóttir hans og væntanlegur mennta- málaráðherra, Þorgerður Katrín, eignaðist stúlkubarn á dögunum. Ævisaga þeirra beggja kemur ef til vill síðar. ÞRIÐJUDAGUR 29. júlí 2003 ■ Leiðrétting Að gefnu tilefni skal tekið fram að varasamt getur verið að drepa vespur. Við dauða gefa þær frá sér lykt sem dregur aðrar vespur að. Dauði einnar getur því kallað að fjöldann all- an af öðrum - lifandi. MIKIÐ ÚRVAL AF GALLABUXUM OG STRIGASKÓM DIESEL LEVI'S WRANGLER LEE gallabuxur gallabuxur gallabuxur gallabuxur frá: frá: frá: frá: 5.990 4.990 4.990 4.990 NIKE DIESEL X-18 PUMA skór skór skór skór frá: frá: frá: frá: 3.990 4.990 3.990 3.990 Kringlunni s.533 1717 www.ntc.is HENSON peysur nýir litir ný sending af adidas skóm og fatnaði ný sendingÞað er alveg ljóst að svalir á hús-um og sólpallar alls konar hafa fengið nýtt hlutverk hér á landi. Nú notar fólk svalirnar til að reyk- ja á því víðast hvar er bannað að reykja innivið,“ segir Magnús Skúlason arkitekt, sem eins og aðr- ir hefur orðið vitni að þessari breytingu. Eins og íslenska orðið svalir segir til um er hlutverk þeir- ra á húsum það að svala fólki þeg- ar heitt verður inni. Sjaldnast hafa svalirnar þó verið notaðar í þeim tilgangi hér á landi enda yfirleitt næðingur og kuldi á þeim. „Svalir eru í flestum tilfellum teiknaðar á hús hér á landi en yfir- leitt hafa þær verið hugsaðar sem björgunarop í eldsvoðum eða til að viðra sængur og teppi. En nú hafa reykingarnar sem sagt bæst við og í sjálfu sér gott að hægt sé að nota þær til slíks,“ segir Magnús Skúla- son. ■ ■ Bókafréttir Tóbak ■ Svalir eru ekki lengur einvörðungu notaðar til að viðra sængurföt eða sem björgunarop í eldsvoða. Þær eru orðnar reykingasvæði. REYKINGAR Það er af sem áður var. Æ algengara er að sjá fólk á svölum íbúðarhúsa sinna. Svalir fá nýtt hlutverk

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.